Morgunblaðið - 19.09.2015, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.09.2015, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Er Miklavatn að breytast í Mikla- fjörð, voru þær hugsanir sem flugu í gegnum huga minn er ég heimsótti æskuslóðirnar um daginn.“ Þannig hefst grein sem Kristín Sigurjónsdóttir á Siglufirði ritar ný- verið á vefinn siglo.is um Miklavatn í Fljótum. Greinina nefnir hún „Er Miklavatn að hverfa?“ og rifjar upp bernskuminningar úr Fljótum þegar hún dvaldi þar mörg sumur við vatn- ið í sumarbústað foreldra sinna, Ás- dísar Gunnlaugsdóttur og Sigurjóns Jóhannssonar skipstjóra. Sigurjón er látinn en Ásdís á enn landið, sem er spilda úti á Borgarnesi í landi Víkur í Haganesvík, en þar ólst Sig- urjón upp. Sandauðn langt út í vatn Eftir að hafa vitjað bústaðarins í sumar segist Kristín hafa ákveðið að skrifa greinina og birta með nýjar og gamlar myndir, sem sýna vel breyt- inguna á vatninu frá árum áður. Bú- staður fjölskyldu hennar er vestan við vatnið, beint á móti Hraunum. „Sá ég þá þær gríðarlegu breyt- ingar sem átt hafa sér stað undan- farin ár. Ósinn, sem ávallt var aust- an megin við Stakkgarðshólma, hafði breytt sér fyrir nokkrum árum og fært sig að landi Víkur. Var þá ekkert hægt að ganga fram á mal- arkambinn sem við krakkarnir höfð- um sem leiksvæði á uppvaxtarár- unum. Síðan var ósnum breytt af mannavöldum fyrir um tveimur ár- um og er staðsettur núna vestan megin við Stakkgarðshólma,“ ritar Kristín í grein sinni. Hún segir breytingar á ósnum hafa haft mikil áhrif. Þar sem áður hafi verið vatn sé nú sandauðn langt út í vatnið. Þar sem áður hafi verið gjöful svæði til að veiða silung, urr- iða og sjóbirting, á stöng eða í net, séu núna sandflákar. „Malarkamburinn er horfinn og er núna sandur þar sem sjórinn á greiðan aðgang í gegn við stórbrim. Mikið landrof hefur einnig orðið við Grafarbakkana sjávarmegin á Borg- inni og hefur mikið land horfið fyrir ágangi sjávar þessa áratugi sem liðnir eru frá barnæsku minni,“ skrifar Kristín ennfremur. Áhrif á veiði og æðarvarp Í samtali við Morgunblaðið segir Kristín greinina fyrst og fremst hugleiðingar leikmanns, hún sé hvorki land- né jarðfræðingur en augljóslega sé Miklavatn ekki það vatn sem hún ólst upp við. Áður hafi það verið stórt og mikið en standi vart undir nafni lengur. Landbrotið undanfarin 20 ár hafi verið gríðar- legt og breytingarnar lyginni lík- astar. Ekki sé aðeins engin veiði í hluta vatnsins heldur hafi æðarvarp einnig snarminnkað á stóru svæði við það. „Ég er ekki viss um að fólk sem á leið um Fljótin átti sig á þessu því því vatnið sést ekki svo vel frá veg- inum, helst er hægt að átta sig á þessu ofan frá veginum við Hraun sé fólk kunnugt svæðinu. Það sem veld- ur mér mestum áhyggjum er mal- arkamburinn, sem áður var hár og breiður en er núna orðinn sandeiði á milli hafs og vatns. Það er nánast engin vörn þar sem gamli ósinn var áður,“ segir Kristín, sem setur jafn- framt spurningarmerki við þá breyt- ingu á ósnum sem varð af manna- völdum fyrir um tveimur árum. Síðan þá hafi orðið til þetta sandeiði. Telur Kristín að með sama áfram- haldi heyri Miklavatn sögunni til og sjórinn gangi á lagið með tíð og tíma. Litlar sem engar rannsóknir hafa farið fram á lífríki Miklavatns á und- anförnum árum. Í sjávarlónaskrá dr. Agnars Ingólfssonar frá árinu 1990 er Miklavatn talið upp sem sjávarlón með lagskiptri seltu. Í skýrslu Orku- stofnunar árið áður kom fram að dýpt vatnsins væri að jafnaði 10,5 m og mesta dýpið 23 m. Ljóst þykir að síðan þá hefur vatnið að hluta grynnst verulega, einkum vestan megin. Náttúrufræðistofa Kópavogs rannsakaði vatnið árið 1998, í sam- starfi við Veiðimálastofnun, Háskóla Íslands og Hólaskóla. Var það hluti af umfangsmiklu vatnaverkefni, þar sem um 60 vötn hér á landi voru skoðuð. Veiðimálastofnun til í rann- sóknir fáist til þess fjármagn Samkvæmt upplýsingum frá þess- um aðilum hefur vatnið ekki verið rannsakað aftur og engar beiðnir um slíkt borist. Einn viðmælandi blaðs- ins benti á að samkvæmt núverandi ástandi vatnsins væri Veiðimála- stofnun helsti eftirlitsaðili en breytt- ist Miklavatn í fjörð væri málið kom- ið á borð Hafrannsóknastofnunar! Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, segir Miklavatn að mörgu leyti sérstakt vatn; lag- skipt sjávarlón með söltum sjó undir ferskvatninu. Dæmi séu um sjávar- lón sem hafi opnast og lokast á víxl og bendir Sigurður á Höfðavatn á Höfðaströnd í því sambandi. „Við höfum fylgst með Fljótaánni en ekki vatninu sjálfu. Komi beiðnir um það munum við finna leiðir til þess, landeigendur við vatnið yrðu að hafa forgöngu um það,“ segir Sig- urður og bendir á að til séu sjóðir til að styrkja landeigendur við mót- vægisaðgerðir og tengdar rann- sóknir. „Það þyrfti að skoða hvort sjórinn sé að brjóta þarna rifið og hvað sé að gerast í lífríki vatnsins. Þarna þyrftu nokkrir aðilar að koma að málum og það mun ekki standa upp á okkur. Við höfum hins vegar ekki burði til að ráðast í miklar rannsóknir án þess að fá til þess fjármagn,“ segir Sigurður ennfremur. Stendur vart undir nafni lengur  Er Miklavatn í Fljótum að hverfa?  Miklar breytingar hafa orðið á vatninu í seinni tíð  Ósnum breytt af mannavöldum fyrir tveimur árum  Vatnið hefur lítið verið rannsakað á seinni árum Fljótin Miklavatnið séð af Haganesi nú, í landi Víkur. Myndin til vinstri sýnir útsýnið til norðurs, áður var þarna malarkambur. Til hægri sést inn Fljótin. Áður náði vatnið að grasbökkunum. Ljósmynd/Úr einkasafni Kristínar Sigurjónsdóttur Miklavatn Sigurjón Jóhannsson vitjar neta fyrir 48 árum, ásamt tveimur barna sinna, Jóhanni og Herdísi. Malarkamburinn í baksýn er horfinn núna. Ljósmyndir/Kristín Sigurjónsdóttir Loftmyndir ehf. Fljótin Miklavatn Siglufjörður Fljótavík Höðnuvík Fljót Haganesvík Gæðasmíði og framúrskarandi þjónusta alla leið inn á þitt heimili Eldhúsinnréttingar GÆ ÐI– KUNNÁTTA – SVEIGJANLEIKI Funahöfða 19 | sími 577 1600 | gks.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.