Morgunblaðið - 19.09.2015, Síða 25

Morgunblaðið - 19.09.2015, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Haustblær Gróðurinn skartar sínu fegursta nú þegar laufin eru orðin gul og rauð og sýna sína sönnu liti eftir að blaðgrænan dró sig í hlé. Eggert Bréf nr. 2 til Bjarna Benedikts- sonar: Sæll Bjarni. Eins og þú manst skrifaði ég þér opið bréf í lok maí um minnisglöp embættis- manna þinna á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Al- þingis í vor um störf stýrinefndar Stein- gríms J. Sigfússonar um samninga við erlenda kröfuhafa. Minnisglöp eru ekki það eina sem er að. Reynsla mín af skjala- meðferð þeirra í fjármálaráðuneyt- inu er að þar virðist ástæða til at- hugana og rannsóknar. Hér ætla ég að fjalla um nokkur atriði sem kalla á athafnir af þinni hálfu þótt ýmis þessara atvika hafi átt sér stað á vakt Steingríms Joð. Fyrst ætla ég að nefna viðleitni mína við að afla gagna á árunum 2011 til 2013. Áður hef ég fjallað um viljaleysi þessara embættis- manna til að aðstoða og leiðbeina við þá gagnaöflun eins og þeim ber samkvæmt stjórnsýslulögum. Fór svo að ég þurfti að leita atbeina Úrskurðarnefndar um upplýsinga- mál til að fá gögn. Fúsk eða fals? Nú mun ég fjalla um það hvern- ig af vanrækslu, fúski eða ein- hverju verra var misfarið með skjöl og afhendingu þeirra. Fyrsti úrskurður nefndarinnar er nr. 436 / 2012, úrskurðurinn sem staðfesti tilvist „dauðalistans“ hjá Nýja Kaupþingi. Í þeim úr- skurði getur að lesa eftirfarandi: „Í skýringum fjármálaráðuneyt- isins til úrskurð- arnefndarinnar, dags. 28. júní 2012, kemur fram í tilefni af fyr- irspurnum nefnd- arinnar, að tiltekinn viðauki við samning- inn sem vitnað er til í 8. gr. hans hafi ekki fylgt því eintaki af samningnum sem sé til í ráðuneytinu. Við- aukinn sé því ekki fyr- irliggjandi hjá ráðu- neytinu. Nánar tiltekið er um að ræða viðauka sem vísað er til í 8. gr. samningsins og mun innihalda upplýsingar um mat á verðmæti þeirra eigna eða réttinda sem m.a. skal byggt á við uppgjör milli bankanna, þ.e. verðmæti á svo- nefndum „Ring-fenced Assets“ en það hugtak er notað um umræddar eignir í samningnum. Úrskurðar- nefnd um upplýsingamál telur ekki tilefni til að rengja þá fullyrðingu fjármálaráðuneytisins að þessi við- auki sé ekki fyrirliggjandi hjá því.“ Hér er fyrsta dæmið um fúsk eða vanrækslu þinna manna, Bjarni, sem voru þá á vaktinni fyrir Stein- grím. Næst er til að taka úrskurð Úr- skurðarnefndar um upplýsingamál nr. 510 / 2013. Með þeim úrskurði mælti nefndin fyrir um það að mér skyldu afhentar fundargerðir stýri- nefndar Steingríms um samninga við kröfuhafa föllnu bankanna. Þegar ég fékk gögnin afhent kom í ljós að nokkuð vantaði upp á full skil. Fyrst er til að taka að fundargerðir 1. og 13. fundar nefndarinnar voru ekki sagðar til í ráðuneytinu, ekki var upplýst hvort þær hefðu týnst eða aldrei verið ritaðar. Þá var fundargerð 28.7. 2009 um fund með erlendum kröfuhöfum tóm að efni. Þrátt fyr- ir ítrekun stjórnskipunar og eft- irlitsnefndar Alþingis hafa þessar fundargerðir ekki fundist, að sögn þinna manna. Hægt að bæta úr Ég tel að þú getir látið bæta úr því með einföldum hætti. Í 2. fund- argerðinni kemur fram að þar hafi verið mættur Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri og gert grein fyrir fyrsta fundi nefndarinnar. Ég tel einboðið að þú felir Guðmundi ráðuneytisstjóra að bæta úr þessu og skrifa minniblað um 1. fund nefndarinnar og 13. fund svo þessi skjöl verði í skjalasafninu, sömu- leiðis fundinn 28.7. Með því gæfist Guðmundi tækifæri til að bæta úr vanrækslu. Fleiri núverandi starfs- menn þínir voru á fundunum og gætu hjálpað. Með úrbótum þeirra gætir þú ef til vill sleppt að áminna þá ! Skrýtin ljósritun Fleira reyndist ábótavant við skil á þessum fundargerðum. Við lestur fundargerðar um fund frá 1.7. 2009 sýndist sem fundurinn hefði endað stuttaralega. Sam- kvæmt skilum fjármálaráðuneyt- isins var fundargerðin rúmlega hálf bls. í skrýtnu ljósriti og endaði einkennilega. Ég leitaði eftir því við ráðuneytið hvort þetta væri rétt svona eða hvort um mistök kynni að vera að ræða. Svar ráðu- neytisins var skýrt, engin mistök þetta er fundargerðin. Þar sem ég taldi vegna efnis- samhengis að upp á vantaði leitaði ég aftur til Úrskurðarnefndarinnar um aðstoð. Var mér bent á að úr- skurðir nefndarinnar væru aðfar- arhæfir og giltu gagnvart öllu stjórnkerfinu þar sem gögn væri að finna. Benti skrifstofustjóri nefndarinnar mér á að leita at- beina forsætisráðuneytis um skil til samanburðar. Þar kom í ljós önnur útgáfa á gerð fundarins 1. júlí en sú sem fjármálaráðuneytið hafði skilað. Þessar mismunandi útgáfur má lesa í viðhengi með greininni á mbl.is. Í framhaldinu fundaði ég með starfsmönnum forsætisráðu- neytisins vegna þessa. Fyrir fund- inn höfðu þeir haft samband við starfsmenn fjármálaráðuneytis sem þá fundu allt í einu hina réttu fundargerð og báru við mistökum í ljósritun! Nú er það svo að það sem vant- aði upp á var hluti af síðu. Það er flókið að ljósrita eina síðu þannig að texta neðri hluta vanti. Sýnist mér að til þess þurfi ásetning. Eft- ir að ég fékk þessu réttu skil og var búinn að finna það sem ég leit- aði að ákvað ég þá að láta kyrrt liggja. Nýr ljósritunarvandi Það sem síðan varð til þess að ég skrifa þetta bréf til að hvetja þig til athafna er að síðastliðið vor sýnist sem þessi „mistök í ljós- ritun“ hafi endurtekið sig hjá fjár- málaráðuneytinu við skil á skjali til stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis. Þar er á bls. 3 vitnað til töluliðar 4.2. (b) í skjalinu sem ekki sýnist hafa ljósritast. Skjalið fylgir sem viðhengi á mbl.is. Þegar ég uppgötvaði þetta þótti mér skörin færast upp í bekkinn. Eitt er að reyna að „blekkja ræf- ilinn mig“ hitt er að blekkja Al- þingi! Það er rétt að hafa í huga í þessu samhengi að línan milli fúsks og fals er mjó. Þar munar því einu hvort um er að ræða gá- leysi eða ásetning. Í þessum til- vikum sýnist mér allt benda til ásetnings. Það er torvelt að ljós- rita svo að vanti innan í eða neðan á síður fyrir mistök. Léttum leyndinni af Nú sýnist mér að þú þurfir að láta hendur standa fram úr ermum og létta leynd af þessum verkum Steingríms með hjálp embættis- manna sem eru þínir í dag. Fram- hald leyndar verður þér til vand- ræða. Það fyrsta sem þú þarft að gera er að opinbera öll gögn um samn- inga við skilanefndir/slitastjórnir gömlu bankanna og hætta að halda hlífiskildi yfir verkum Steingríms. Í ljósi gagnsæis og réttra upplýs- inga eigum við kröfu á að allt verði opinbert. Þér að segja er ein al- gengasta spurning sem ég fæ vegna þessara umræðu: Af hverju er Bjarni að vernda Steingrím? Þannig hugsa margir! Loks er að meta hvort skjöl hafi verið fölsuð í ráðuneytinu af ráðu- neytisstjóranum og hans aðstoð- armönnum. Til þess þarf atbeina rannsóknaraðila svo að mál verið útkljáð. Í þeim efnum sýnist mér að bíði þín ísköld ákvörðun um við- eigandi meðferð. Eftir Víglund Þorsteinsson » Það fyrsta sem þú þarft að gera er að opinbera öll gögn um samninga við skila- nefndir/slitastjórnir gömlu bankanna og hætta að halda hlífi- skildi yfir verkum Stein- gríms. Víglundur Þorsteinsson Höfundur er lögfræðingur og fyrrver- andi stjórnarformaður BM Vallár. Fúskað í fjármálaráðuneyti Samkvæmt stjórn- skipun landsins geng- ur stjórnarskráin framar öðrum lögum. Lagafrumvörpum og þingsályktun- artillögum sem eru lagðar fram í þinginu sem stríða gegn stjórnarskránni skal skýlaust vísað frá á lagatæknilegum grunni. Laga- setning hér á landi er ófullnægj- andi í samanburði við Norð- urlöndin og fjöldi dómsmála staðfestir það, nú síðast t.d. Árna Páls lögin. Ég hef því í sjöunda sinn lagt fram frumvarp, ásamt öðrum þingmönnum, um Laga- skrifstofu Alþingis sem hafi það hlutverk að samræma reglur um samningu lagafrumvarpa og und- irbúning löggjafar. Lagaskrif- stofan skuli vera til ráðgjafar um undirbúning löggjafar og skal einkum líta til þess að frumvörp standist stjórnarskrá og alþjóða- samninga. Eftir að hafa verið þingmaður í rúm sex ár hef ég sannfærst um að búið sé að vinna mikið tjón á þinginu innan frá með sífelldum breytingum á þing- sköpum undanfarin 10-15 ár. Al- þingi er komið í öngstræti og stundum vart starfhæft og er það mikið áhyggjuefni fyrir þjóðþing sjálfstæðar þjóðar. Þingmenn hafa gengið á lagið vegna óskýrra þingskapa. Lagahyggjan er mikil – og leysa á öll mál með nýrri löggjöf um bókstaflega allt. Þá er ekki verið að huga að „lagabót- um“ á ýmsum þátt- um lagakerfis okkar því sífellt færist það í aukana að koll- steypa á sér stað og heilu lagabálkarnir eru endurskrifaðir með fjölmörgum „laumufarþegum“ og eldri lögum beinlínis hent. Hér á ég t.d. við boðuð ný frum- vörp um Umboðs- mann Alþingis og Ríkisendurskoðun. Hverjum er verið að þjóna? Hver biður um slíkt? Ekki verður rætt hér um áhlaupið sem gert var á stjórnarskrána á síðasta kjör- tímabili. Ég var því afar undrandi þegar forsætisnefndarmenn og formenn þingflokka lögðu fram þings- ályktunartillögu um siðareglur þingmanna í annað sinn. Þessi þingsályktunartillaga er mark- laus þar sem í 47. gr. stjórn- arskrárinnar segir: „Sérhver nýr þingmaður skal vinna drengskap- arheit að stjórnarskránni, þegar er kosning hans hefur verið tekin gild“ og í 48. gr. er kveðið skýrt á um að: „Alþingismenn eru ein- göngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.“ Er þessum stjórnarskrárákvæðum fylgt eftir í lögum um þingsköp Alþingis til framkvæmda, sbr. 2. gr. „Sérhver nýr þingmaður skal vinna svofellt drengskaparheit að stjórn- arskránni undireins og búið er að viðurkenna að kosning hans sé gild, sbr. 47. gr. stjórnarskrár- innar: Ég undirskrifaður/uð, sem kosin(n) er þingmaður til Alþing- is Íslendinga, heiti því, að við- lögðum drengskap mínum og heiðri, að halda stjórnarskrá landsins. Meðan þingmaður hefur ekki unnið heit samkvæmt þess- ari grein má hann ekki taka þátt í þingstörfum.“ Ég veit ekki hver hefur verið flutningsmönnum til ráðgjafar í þessu siðareglna-máli. En eitt er víst að um vanþekk- ingu er að ræða á stjórnskipun landsins. Í greinargerð þings- ályktunartillögunnar er bent á siðareglur Evrópuráðsþingsins, sem eru settar fyrir fjölþjóða- samkomu en ekki þjóðþing hvers ríkis. Þarna opinberast aftur van- þekking – að ætla að tefla slíkum reglum gegn stjórnarskrárvörð- um réttindum alþingismanna. Þeir eru einungis bundnir sann- færingu sinni og Alþingi hefur engar valdheimildir til að fram- fylgja slíkum siðareglum. Það eru landsmenn sjálfir sem endurmeta umboð og frammistöðu þing- manna í alþingiskosningum í síð- asta lagi á fjögurra ára fresti. Virðing Alþingis verður endur- heimt þegar þingið sjálft fer í einu og öllu að stjórnskipun Ís- lands sem mælt er fyrir um í stjórnarskrá og fer að sinna störfum sínum af alvöru. Alþingi og stjórnskipun Ís- lands – virðing eða hnignun Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Alþingi hefur engar valdheimildir til að framfylgja slíkum siða- reglum. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og þing- maður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.