Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015
Þessa dagana stendur yfir íBakú í Aserbasjan heims-bikarmót FIDE en sigur-vegarinn þar fær keppn-
isrétt í áskorendamótinu sem síðar
ákveður hver verður áskorandi
heimsmeistarans Magnúsar Carl-
sen. Alls hófu 132 skákmenn
keppni um síðustu helgi en keppn-
isfyrirkomulagið býður upp á
tveggja skáka einvígi með venju-
legum umhugsunartíma. Verði
jafnt er gripið til skáka með styttri
umhugsunartíma. Og það kemur
auðvitað á daginn að spennustigið í
styttri skákunum er slíkt að
skemmtanagildið eykst stórum og
er það auðvitað í takt við hraðann á
okkar tímum. Vefurinn Chess24
hefur verið með skemmtilegar
streymis-útsendingar frá mótinu
þar sem nokkrir af sigurstrangleg-
ustu skákmönnunum hafa þegar
þurft að taka pokann sinn og eru á
heimleið. Skal þar fremstan telja
Levon Aronjan sem féll úr keppni í
2. umferð, Boris Gelfand datt strax
úr leik, einnig Gata Kamsky og
skákdrottningin Hou Yifan.
32 skákmenn voru eftir þegar
keppnin hélt áfram á fimmtudag-
inn og spennandi einvígi fram-
undan: Kramnik gegn Andreikin,
Giri gegn Leko, Radjabov gegn
Svidler, Nakamura gegn Nepomni-
achtchi, Ivanchuk gegn Jakovenko,
Grischuk gegn Eljanov svo nokkur
dæmi séu tekin.
Kínverjarnir og afrek Elj-
anovs
Þó að Kínverjar hafi unnið opna
flokk síðasta ólympíuskákmóts,
státi af fremstu skákkonu heims
svo fátt eitt sé tínt til, eru menn
alltaf að gleyma því að þeir eru hið
nýja stórveldi skákarinnar. Vandi
Kínverja hefur verið sá að þrátt
fyrir frábæran árangur í flokka-
keppnum eiga þeir enn eftir að slá í
gegn á einstaklingsmótum.
Kannski kemur það nú; í Bakú
tefla þeir fram sínum bestu mönn-
um t.a.m. hinum 16 ára gamla Wei
Yi sem margir telja að verði næsti
heimsmeistari.
Í ljósi þess hve mikið er undir í
hverri skák er afrek Úkra-
ínumannsins Pavel Eljanov magn-
að en hann hefur unnið allar fimm
kappskákir sínar. Á fimmtudaginn
vann hann fyrri skák sína við Alex-
ander Grischuk í æsispennandi
skák. Rétt fyrir tímamörkin gat
Grischuk unnið. Síðar varð hann að
láta drottninguna en gat sennilega
haldið jafntefli þegar hann lék sig í
mát:
Alexander Grischuk – Pavel Elj-
anov
Katalónsk byrjun
1. c4 Rf6 2. Rf3 e6 3. g3 d5 4.
Bg2 dxc4 5. Da4 Rbd7 6. Dxc4 c5
7. O-O b6 8. Rc3 Bb7 9. d4 Hc8 10.
Dd3 cxd4 11. Rxd4 Bxg2 12. Kxg2
Bb4 13. Rdb5 a6 14. Rd6 Bxd6 15.
Dxd6 De7 16. Dd3 b5 17. Bf4 e5
18. Bg5 h6 19. Rd5 De6 20. Bxf6
Rxf6 21. Rxf6 Dxf6 22. Da3!
Staðan er býsna jafnteflisleg en
Grischuk tekst að skapa sér ýmis
færi en tekur ákveðna áhættu líka.
22. … Hc2 23. b3 Dc6 24. Kg1
Dc5 25. Dxa6 O-O 26. a4 Hxe2 27.
a5 e4 28. Hae1 Hxe1 29. Hxe1 f5
30. De6+ Kh7 31. Hd1 Hf6 32. Dd5
Dc2 33. Hd2 Dc3 34. Ha2 De1+ 35.
Kg2 f4 36. a6 f3 37. Kh3 Hg6
38. Kh4?
Afleikur í tímahraki, 38. a7 vinn-
ur þar sem 38. …. Dg1 er svarað
með 39. Df5!
38. … Db4 39. Kh3 Hg5 40. Df7
Dc5 41. g4 Dc1 42. a7 h5 43. Dxh5
Hxh5 44. gxh5 Dc8 45. Kg3 Da8
46. Ha6 Kg8 47. b4 Kf8 48. Kf4
Ke7 49. Ke3 Kd7 50. Kd4 Kc7 51.
Ke3 Kb7 52. Ha5 Kb6 53. Ha3 Kc6
54. Ha5 Kd6
Vandséð er hvernig svartur get-
ur unnið eftir 55. Kf4, t.d. 55. …
Kd5 56. Hxb5+ Kc4 57. Ha5 Kxb4
58. Ha1! o.s.frv.
55. Kd4?? Dd5+ 56. Ke3 Ke5!
– hótar máti á d3 eða d4. Grisc-
huk gafst upp.
Aronjan, Gelfand og
Kamsky úr leik á
heimsbikarmóti FIDE
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Sem kunnugt er
færði Alþingi Hvamms-
virkjun aftur í orkunýt-
ingarflokk rammaáætl-
unar þann 1. júlí
síðastliðinn. Í kjölfarið
hafa leyfisveitendur
virkjunarinnar, Rang-
árþing ytra og Skeiða-
og Gnúpverjahreppur,
óskað eftir ákvörðun
Skipulagsstofnunar
áum það hvort endur-
taka þurfi mat á umhverfisáhrifum,
að hluta eða í heild. Nú stendur yfir
rýni Skipulagsstofnunar á um-
hverfismati virkjunarinnar.
Tilgangur þessarar greinar er að
vekja athygli á því að frestur al-
mennings til að koma athugasemd-
um á framfæri við Skipulagsstofnun
er til og með 28. september næst-
komandi. Afar mikilvægt er að sem
flestar hliðar málsins komi fram, svo
ferli samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum nái tilgangi sín-
um.
Landsvirkjun hefur um árabil
unnið að rannsóknum og undirbún-
ingi virkjunarinnar. Virkjunin verð-
ur staðsett á stærsta
aflsvæði Landsvirkj-
unar, Þjórsár- og
Tungnaársvæðinu, en
þar eru fyrir sex afl-
stöðvar sem virkja
kraft þessara tveggja
vatnsfalla. Hvamms-
virkjun mun nýta fall
Þjórsár neðan Búr-
fellsvirkjunar, frá svo-
kölluðu Yrjaskeri rétt
ofan við bæinn Haga
og niður fyrir Ölmóð-
insey austan við Þjórs-
árholt.
Verkefnastjórn 2. áfanga ramma-
áætlunar flokkaði Hvammsvirkjun á
sínum tíma í orkunýtingarflokk og
mælti með að virkjunin fengi fram-
gang. Mat á umhverfisáhrifum lá
fyrir árið 2003, en samkvæmt lögum
þurfa leyfisveitendur, ef fram-
kvæmdir hefjast ekki innan 10 ára,
að fá ákvörðun Skipulagsstofnunar
um það hvort umhverfismat haldi
gildi sínu eða að forsendur hafi
breyst þannig að endurskoða þurfi
matsskýrslu að hluta eða öllu leyti.
Helstu breytingar sem hafa verið
gerðar á virkjuninni frá 2003 eru eft-
irfarandi: flatarmál lóns hefur
minnkað um 15% og rúmmál um
25%, flóðvar hefur verið sett í stíflu-
mannvirki, stöðvarhús rís fimm
metra yfir land í stað 18 metra áður,
gert er ráð fyrir tveimur hverflum í
stað eins og byggð verður sérstök
seiðafleyta fyrir niðurgönguseiði.
Síðan mat á umhverfisáhrifum fór
fram hefur stöðugt verið unnið að
rannsóknum á fiskistofnum árinnar
og hefur þekking okkar á þeim auk-
ist verulega. Meðal annars er nú til
nokkuð nákvæmt mat á stofnstærð
laxa í ánni og veiðiálag er þekkt.
Mat á umhverfisáhrifum frá árinu
2003, ásamt sérfræðiskýrslum og
öðrum fylgigögnum sem tengjast
matinu, má nálgast á landsvirkj-
un.is.
Allar hliðar komi fram
Eftir Óla Grétar
Blöndal Sveinsson » Frestur almennings
til að koma at-
hugasemdum á fram-
færi við Skipulags-
stofnun er til og með 28.
september næstkom-
andi.
Óli Grétar Blöndal
Sveinsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Landsvirkjunar.
Nýja
haustlínan
er komin í verslanir
Sölustaðir:
Hagkaup • Debenhams • Intersport • Jói Útherji • Herrahúsið • Karlmenn • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
Bjarg – Akranesi • Pex – Reyðarfirði og Neskaupsstað • Joe´s – Akureyri • Axeló – Vestmannaeyjum
Sportbær Skóbúð – Selfossi • Hafnarbúðin – Ísafirði • Kaupfélag Skagfirðinga • Siglósport – Siglufirði
K-Sport – Keflavík • Verslunin Tákn – Húsavík • Barón – Selfossi • Sentrum – Egilsstöðum
Blómsturvellir – Hellissandi • Verslun Bjarna Eiríkssonar – Ísafirði • Efnalaug Dóru – Höfn
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
mbl.is/askriftarleikur