Morgunblaðið - 19.09.2015, Qupperneq 30
30 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015
AKRANESKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11.
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolla-
dóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju
syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jóns-
son. Sunnudagaskóli í Safnaðarheim-
ilinu kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra
Möller og Hjalti Jónsson.
AKURINN | Samkoma kl. 14. Söng-
hópurinn 17 söngvarar frá Færeyjum
tekur þátt.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11 og
sunnudagaskóli á sama tíma í safn-
aðarheimilinu. Í messunni verður tek-
ið við fjárframlögum til Hjálparstarfs
kirkjunnar sem í samstarfi við al-
þjóðleg hjálparsamtök kirkna veitir
neyðaraðstoð vegna stríðsátakanna á
Sýrlandi. Sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir þjónar. Kór Árbæjarkirkju syngur
undir stjórn Kristinu Kalló Szklenar
organista.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Linda Jóhannsdóttir djákni sér um
samverustund sunnudagskólans, Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari. Kammerkór Ás-
kirkju leiðir söng. Organisti Magnús
Ragnarsson. Safnað fyrir Hjálparstarf
kirkjunnar til styrktar flóttafólki. Kaffi
eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um-
sjón með stundinni hafa Fjóla, Guð-
mundur Jens og Jón Örn.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalar-
nesi | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni
Svanur Daníelsson þjónar. Organisti
er Páll Helgason og félagar úr Karlakór
Kjalnesinga leiða söng. Fermingar-
börn sérstaklega boðin velkomin. Tek-
ið á móti framlögum til Hjálparstarfs
kirkjunnar vegna flóttafólks.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifs-
dóttur og Steinunnar Þorbergsdóttur.
Útvarpsguðsþjónusta kl. 11. Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur
þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur,
organisti er Örn Magnússon. Tekið við
gjöfum til styrktar flóttafólki. Kirkju-
kaffi í safnaðarheimili á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Umsjón Petra og Daníel Ágúst.
Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaða-
kirkju syngur undir stjórn kantors Jón-
asar Þóris. Messuþjónar aðstoða.
Prestur María Ágústsdóttir. Kaffi eftir
messu.
DÓMKIRKJAN | Djákna- og prests-
vígsla kl. 11, Kristján Valur Ingólfsson,
vígslubiskup í Skálholti, annast vígsl-
una og séra Hjálmar Jónsson þjónar.
Hrafnhildur Eyþórsdóttir verður vígð
djáknavígslu, cand. theol. Eva Björk
Valdimarsdóttir og mag. theol. Jó-
hanna Gísladóttir verða vígðar til
prests. Æðruleysismessa kl. 20, séra
Karl Matthíasson og séra Hjálmar
Jónsson þjóna.
FELLA- og Hólakirkja | Svavar Stef-
ansson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Péturs Ragnhildarsonar. Eftir stundina
er súpa í safnaðarheimilinu til stuðn-
ings Hjálparstarfi kirkjunnar. Frjáls
framlög.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kvöldvaka kl. 20.
Erna Blöndal syngur, Aðalheiður Þor-
steinsdóttir spilar á píanó og Guð-
mundur Pálsson á bassa.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Hjörtur Magni Jó-
hannsson safnaðarprestur leiðir
stundina. Fermingarbörn taka þátt.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tón-
listina ásamt Gunnari Gunnarssyni
organista. Barnakór Fríkirkjunnar
syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvins-
dóttur. Aðstandendur fermingarbarna
eru hvattir til að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Séra Guðrún Karls Helgu-
dóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Arn-
hildur Valgarðsdóttir. Sunnudagaskóli
kl. 11. Séra Sigurður Grétar Helgason
annast stundina ásamt Þóru Björgu
Sigurðardóttur. Undirleikari er Stefán
Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barna-
starf kl. 11 í umsjón Lellu. Messa kl.
11. Altarisganga. Samskot til Gideon-
félagsins. Messuhópur þjónar. Fé-
lagar úr kirkjukór Grensáskirkju leiða
söng. Organisti er Ásta Haraldsdóttir.
Prestur Ólafur Jóhannsson. Kaffi eftir
messu. Hversdagsmessa með léttu
sniði á fimmtudag kl. 18.10-18.50.
Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist.
GRUND dvalar- og hjúkrunar-
heimili | Guðsþjónusta í umsjón
Félags fyrrum þjónandi presta klukkan
14 í hátíðasal Grundar. Séra Valgeir
Ástráðsson þjónar. Grundarkórinn
leiðir söng undir stjórn Kristínar
Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur Sigurður Grétar Helgason, org-
anisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Al-
dísar R. Gísladóttur og Valbjörns S.
Lilliendahl. Meðhjálpari Kristbjörn
Árnason. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir. Kaffi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og sunnudagaskóli kl. 11. Félagar úr
Barbörukórnum syngja. Organisti er
Guðmundur Sigurðsson. Margrét
Heba, Una og Ingibjörg sjá um barna-
starfið. Mánudagur 10-12 ára starf í
Vonarhöfn kl. 16.30-18. Miðviku-
dagur. Morgunmessa kl. 8.15 –
morgunmatur. Fimmtudagur:
Foreldramorgnar í Vonarhöfn kl. 10-
12. Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju –
handavinnukvöld kl. 20.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari samt sr. Leonard Ashford og hópi
messuþjóna. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón
barnastarfs Inga Harðardóttir. Bæna-
stund mánud. kl. 12.15. Fyrirbæna-
guðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár-
degismessa miðvikud. kl. 8.
Kyrrðarstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Prestur Eiríkur Jóhanns-
son. Organisti Kári Allansson. Félagar
úr Kór Háteigskirkju syngja.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs-
þjónusta kl. 11. Í stundinni verða tek-
in samskot fyrir Hjálparstarf kirkj-
unnar. Sigfús Kristjánsson leiðir
stundina en Toshiki Toma, prestur inn-
flytjenda, prédikar. Tónlist verður í
höndum félaga úr kór kirkjunnar sem
Guðný Einarsdóttir leiðir. Eftir messu
verður létt máltíð í safnaðarheimili og
Þórir Guðmundsson, deildarstjóri
Rvk.deildar Rauða krossins, flytur
fræðsluerindi. Sunnudagaskóli á
sama tíma í salnum niðri í umsjón
Kristínar og Hilmars.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ EIR | Guðs-
þjónusta kl. 15.30. Séra Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir altari.
Þorvaldur Halldórsson leiðir söng og
spilar létt lög frá kl. 15.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Kaffi og samfélag á
eftir. Samkoma á ensku hjá Alþjóða-
kirkjunni kl. 14.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð |
Guðsþjónusta kl. 14 í V-Frölundakirkju
í Gautaborg. Íslenski kórinn í Gauta-
borg syngur. Orgelleik og kórstjórn
annast Lisa Fröberg. Barnastund með
Birnu. Kirkjukaffi. Prestur Ágúst Ein-
arsson. Kynningarfundur um ferming-
arfræðsluna eftir guðsþjónustu.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13 með lofgjörð og fyrir-
bænum. Ath. breyttan tíma. Ólafur H.
Knútsson prédikar. Heilög kvöld-
máltíð. Barnastarf á sama tíma. Kaffi
eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Sunnudaga-
skólaleiðtogar ásamt Sólmundi Frið-
rikssyni á gítar leiða stundina. Í
Dómkirkjunni kl. 11 mun Eva Björk
Valdimarsdóttir vígjast til prestsþjón-
ustu í Keflavíkurkirkju. Söfnuðurinn
velkominn.
Kirkja heyrnarlausra | Messa kl.
14. Táknmálskórinn leiðir söng.
Prestur Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir.
Kaffi eftir messu.
Kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónusta
kl. 13. Séra Sigurður Grétar Helgason
prédikar og þjónar fyrir altari. Vox
Populi syngur. Organisti: Arnhildur Val-
garðsdóttir. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Umsjón hefur Rósa Ingibjörg
Tómasdóttir. Undirleikari: Stefán Birki-
sson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistar-
messa kl. 11. Sigurður Arnarson
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur und-
ir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj-
unnar. Sunnudagaskólinn hefst í kirkj-
unni en heldur í safnaðarheimilið
Borgir eftir messuupphaf. Umsjón
með sunnudagaskólanum hafa þau
Bjarmi Hreinsson, Þóra Marteinsdóttir
og Oddur Örn Ólafsson.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. María Ágústs-
dóttir héraðsprestur prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Graduale Futuri leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Rósu Jó-
hannesdóttur kórstjóra ásamt Jóni
Stefánssyni organista. Sunnudaga-
skóli með Snævari og Hafdísi. Kaffi,
djús og kex eftir stundina í safn-
aðarheimilinu.
LAUGARNESKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjón Hjalta
Jóns Sverrissonar og Arngerðar Maríu
Árnadóttur. Reza og félagar bjóða upp
á kaffi og djús að samveru lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Taize-
guðsþjónusta kl. 20. Kirkjukór Lága-
fellssóknar syngur undir stjórn Jón-
asar Þóris. Sr. Skírnir Garðarsson.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Guðs-
þjónusta í Lindakirkju kl. 20. Sr.
Sveinn Alfreðsson þjónar. Hljóm-
sveitin Ávextir andans leiðir sönginn.
Kaffi og spjall eftir stundina.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf.
Sameiginlegt upphaf. Háskólakórinn
leiðir safnaðarsöng. Organisti Gunn-
steinn Ólafsson. Sr. Skúli S. Ólafsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Umsjón
með barnastarfinu hafa Ari, Andrea og
Katrín. Brúður, leikrit, Nebbi, söngur
og gleði. Kaffiveitingar á Kirkjutorgi.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-
Njarðvík | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Kór Njarðvíkurkirkna syngur undir
stjórn Stefáns Helga Kristinssonar
organista. Meðhjálpari Pétur Rúðrik
Guðmundsson. Samskot verða til
stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar fyrir
flóttafólk. Sunnudagaskóli kl. 11 í Ytri-
Njarðvíkurkirkju. Umsjón hafa María
og Heiðar.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleitis-
braut 58-60, 3. hæð. Ræðumaður
Guðlaugur Gunnarsson. Barnastarf.
Túlkað á ensku.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11, Biblíusaga, brúðuleikrit og
söngur. Nýr límmiði og hressing í lok-
in. Guðsþjónusta kl. 14, sr. Bryndís
Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Tómas Guðni Eggertsson leikur
á orgel og Kór Seljakirkju syngur. Kaffi
eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA | Sunnu-
dagaskóli og guðsþjónusta kl. 11.
Sunnudagaskólinn á neðri hæð kirkj-
unnar í umsjá Pálínu Magnúsdóttur
æskulýðsfulltrúa ásamt leiðtogum.
Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur
þjónar í guðsþjónustunni. Organisti er
Friðrik Vignir Stefánsson. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
almennan safnaðarsöng. Kaffiveit-
ingar. Málverkasýning Sigurðar K.
Árnasonar verður opnuð í safn-
aðarheimilinu kl. 14. Þennan dag
fagnar Sigurður 90 ára afmæli sínu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 14. Athugið breyttan messutíma.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur ann-
ast prestsþjónustuna. Organisti er
Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Friðrik
Hjartar þjónar. Kórfélagar og Jóhann
Baldvinsson organisti leiða safnaðar-
sönginn. Börnin mæta fyrst í kirkjuna
en færa sig fljótlega með leiðtogunum
í sína gleðistund. Tekið á móti fram-
lögum til Hjálparstarfs kirkjunnar
vegna flóttafólks.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Messa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar
syngur undir stjórn Helgu Þórdísar
Guðmundsdóttur. Prestur Bragi J. Ingi-
bergsson. Samskot til stuðnings starfi
HK með flóttafólki. Sunnudagaskóli
kl. 11 í suðursal kirkjunnar. Kaffi, djús
og kex að guðsþjónustum loknum.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Maríu og Heiðars.
Kaffi, djús og kökur að skóla loknum.
ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Hafdís Þorgilsdóttir sér um
skólann ásamt Örnu Dögg Sturludótt-
ur og kennilýð. Messa kl. 14. Ferming-
arbörn skráð.
Sonur ekkjunnar í
Nain.
(Lúk. 7)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Þórshafnarkirkja
✝ Anna HallaFriðriksdóttir
fæddist 13. apríl
1962 á Sauð-
árkróki. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Sauðárkróki 7.
september 2015.
Foreldrar hennar
voru Ásta Hansen,
f. 6. júní 1920, d. 17.
október 1993, og
Friðrik S. Pálmason f. 19. ágúst
1918, d. 27. júlí 2001. Anna Halla
átti tvo bræður: 1) Pálma, f. 21.
desember 1943, d. 8. janúar
1998, kvæntur Svölu Jónsdóttur,
f. 22. febrúar 1945, eiga þau
fjögur börn, Ástu Björgu, f. 4.
júlí 1964, Ásmund Jósef, f. 30.
júlí 1965, Friðrik Sigurberg, f.
7. janúar 1967, og
Örvar Pálma, f. 13.
febrúar 1977, d. 15.
október 1999. 2)
Friðrik Hansen
Friðriksson, f. 1.
júní 1950, d. 27.
nóvember 1977,
ókvæntur og barn-
laus.
Anna Halla ólst
upp hjá foreldrum
sínum á Svaðastöð-
um, árið 1993 flutti hún á sam-
býlið við Grundarstíg á Sauð-
árkróki, frá árinu 2002 bjó hún
á sambýlinu við Fellstún 19 á
Sauðárkróki til dauðadags.
Útför Önnu Höllu fer fram
frá Sauðárkrókskirkju í dag, 19.
september 2015, og hefst at-
höfnin kl. 14.
Það var gaman að koma í
Svaðastaði. Ég var ávallt full eft-
irvæntingar þegar Landroverinn
hossaðist heim að bænum þar sem
húsfreyjan hafði látið raða hvít-
máluðum steinum meðfram bíla-
stæðinu til að gera fínt. Faðir
minn hafði lítinn smekk fyrir þess-
um steinum, var reyndar í nöp við
þá. Honum fannst erfitt að at-
hafna sig á jeppanum án þess að
fara utan í steinana, enda hvorki
bíll né bílstjóri sérlega liprir. Inni
var tekið á móti gestum af ein-
stakri gestrisni. Svaðastaðir voru
ekkert venjulegt heimili. Þar voru
alls kyns gamlir hlutir sem áttu
langa sögu og „ömmuherbergi“
fullt af dóti en þangað fór maður
sjaldan. Litlar frænkur léku sér
oftast í herberginu inn af eldhús-
inu. Það fór alltaf vel á með þeim,
engin háreysti, enda báðar ör-
verpi og vanar að dunda sér einar.
Meiri hávaði barst úr eldhúsinu
þar sem Friðrik sagði sögur, Ásta
var á þönum og þær systur, mæð-
ur okkar, töluðu hvor í kapp við
aðra og þurftu stundum að hækka
róminn.
Við Anna Halla áttum margar
góðar stundir. Ég var árinu eldri.
Með tímanum varð mér þó ljóst að
það var meira en þetta eina ár sem
skildi okkur að og við myndum
ekki ganga saman í skóla eins og
ég hafði vonað. Önnu Höllu var
ekki gefið það sem okkur hinum
finnst svo sjálfsagt að fá í vöggu-
gjöf. Frá unga aldri þurfti hún
einnig að glíma við mikil líkamleg
veikindi, lá langdvölum á Barna-
spítala Hringsins og sendi stund-
um kveðjur í Óskalögum sjúklinga
með uppáhaldslaginu okkar Ob-
La-Di, Ob-La-Da. Ég man að
Anna Halla var lengi í gifsi frá
höku niður á mjóbak. Aldrei
kvartaði hún, var alltaf jafn ljúf og
meðfærileg.
Eitt sinn voru þær mæðgur hjá
okkur á Hólum. Við Anna Halla
undum okkur vel í dótaherberginu
á efri hæðinni meðan mamma og
Ásta spjölluðu saman niðri í eld-
húsi. Á þessum tíma var ég stað-
ráðin í að verða hárgreiðslukona
og var búin að greiða og klippa
flestar dúkkurnar svo nú var tími
kominn á alvöru módel. Anna
Halla kveinkaði sér aðeins því hún
var hársár, en annars gekk þetta
ljómandi vel og við báðar hæst-
ánægðar með árangurinn. Þegar
Anna Halla birtist svo í eldhúsdyr-
unum heyrðust hljóð úr horni og
ég áttaði mig á að nýja klippingin
féll ekki í kramið. Ásta reyndi að
bjarga því sem bjargað varð, tím-
inn læknaði afganginn og Anna
Halla tók þessu með ró eins og öllu
öðru. Ég valdi annan starfsvett-
vang.
Með tímanum fjarlægðumst við
hvor aðra. Anna Halla dvaldi á
Sólborg á veturna, en var heima á
sumrin. Svo flutti ég suður. Ein-
hvern tímann á fullorðinsaldri fór-
um við að rifja upp gamlar minn-
ingar. Kom þá í ljós að hún var
ótrúlega minnug á atburði frá því
við vorum litlar. Síðast hitti ég
Önnu Höllu fyrir nokkrum árum
heima á Svaðastöðum. Við sátum
Anna Halla
Friðriksdóttir
✝ Linda MaríaJónsdóttir
fæddist 25. desem-
ber 1971 á sjúkra-
húsi Selfoss. Hún
lést 4. september
2015.
Foreldrar henn-
ar eru Guðrún
Birna Garðarsdóttir
og Jón Helgason.
Linda María var
yngst fimm systk-
ina, þau eru Hrafnhildur Björk, f.
26. apríl 1964, Sigurbjörg Kristín,
f. 27. ágúst 1967, Helgi, f. 28. júlí
1969, og Garðar, f. 28. júlí 1969.
Linda María átti tvö börn, þau
eru: María Hödd Lindudóttir, f.
20. apríl 1987, og Kormákur Atli
Unnþórsson, f. 16.
apríl 2000, faðir
hans er Unnþór
Helgason. María
Hödd er í sambúð
með Rúnari Magn-
ússyni, f. 18. janúar
1978, þeirra synir
eru Hjörleifur Máni,
f. 20. janúar 2008,
og Jón Oliver, f. 22.
apríl 2010.
Linda María ólst
upp á Hellu, hún bjó um tíma á
Hvolsvelli, Sauðárkróki og í
Reykjavík. Síðustu ár ævi sinnar
bjó hún með Kormáki á Hellu.
Útför Lindu Maríu fer fram frá
Oddakirkju í dag, 19. september
2015, kl. 14. Bálför fer fram síðar.
Elsku Linda, mín besta vin-
kona, æskuvinkona, frænka.
Hugurinn hefur reikað síðustu
daga, minningarnar um okkur.
Tjaldútilegur í garðinum. Úti að
leika okkur í klettunum. Þegar
ég beið eftir að klukkan yrði
nógu margt á aðfangadagskvöl
svo ég gæti hlaupið niður eftir til
þín. Afmælið þitt á jóladag, þá
nótt fékkstu alltaf að gista og
sofnuðum við þokkalega útbelgd-
ar af mackintosh og jólaöli. Sam-
an í sveit á Grænahrauni og þar
voru víst gíraffar á næsta bæ
sem okkur datt í hug eina nóttina
að fara og skoða. Endalaus fífla-
gangur og hlátursköst. Við vor-
um eiginlega alltaf saman, bjugg-
um í sömu götu sem börn og svo
Linda María
Jónsdóttir