Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 36

Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Byggiðn – Félag byggingamanna óskar eftir mælingamanni í fullt starf. Starfið felst í að fara á vinnustaði, magntaka verk trésmiða og reikna út. HÆFNISKRÖFUR: > Sveinspróf í húsasmíði > Góð alhliða tölvukunnátta > Góðir samskiptahæfileikar > Sjálfstæð og öguð vinnubrögð > Kostur að umsækjandi hafi reynslu við að vinna í uppmælingakerfi Umsóknarfrestur er til ogmeð 28. september nk. og skulu umsóknir berast á netfangið finnbjorn@byggidn.is eða í pósti áByggiðn–Félagbyggingamanna,Borgartúni 30, 105 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt ummálalok þegar ákvörðun hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður félagsins, Finnbjörn A. Hermannsson í síma 535-6006. Byggiðn – Félag byggingamanna er stéttafélag faglærðra byggingamanna og málsvari þeirra og samningsaðili um kaup og kjör á vinnumarkaði. Byggiðn varð til við sameiningu Trésmiðafélags Reykjavíkur og Félags Byggingamanna, Eyjafirði árið 2008. Málsvari byggingamanna STARFSMAÐUR VIÐ UPPMÆLINGAKERFI HÚSASMIÐA Verkefnisstjóri Jafnréttisskóla Reykjavíkur Helstu verkefni og ábyrgð: • Að skapa vettvang fyrir jafnréttis- og kynjafræðslu í skóla- og frístundastarfi í anda laga og mannréttindastefnu borgarinnar. • Veita ráðgjöf, fræðslu og stuðning til starfsmanna í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum um jafnréttismál. • Taka þátt í miðlægri stefnumótun á skóla- og frístundasviði og stefnumótun á starfsstöðum þess í tengslum við jafnréttisfræðslu. • Þróa og viðhalda vef um jafnréttisfræðslu. • Fylgjast með nýjungum á sviði jafnréttisfræðslu og í kynjafræði. • Eiga samstarf við sérfræðinga í jafnréttis- og kynjafræðum innan og utan skóla- og frístundasviðs. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólanám í kynjafræði, sambærileg menntun eða haldgóð reynsla af kennslu um kynjafræðileg málefni. • Reynsla af jafnréttisverkefnum æskileg. • Kennsluréttindi eru æskileg og/eða reynsla af starfi með börnum og ungmennum. • Reynsla af verkefnisstjórn og innleiðingu verkefna æskileg. • Áhugi og þekking á birtingamyndum margþættrar mismununar. • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi. • Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð. • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnisstjóra Jafnréttisskóla Reykjavíkur laust til umsóknar. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Ráðið verður í stöðuna frá 1. nóvember 2015. Umsóknarfrestur er til og með 11. október 2015. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, sími 411 1111. Netfang: hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfsemi Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamiðstöðvar og skólahljómsveita. Markmið Jafnréttisskólans er að efla jafnréttisstarf í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, sbr. aðalnámskrár leik- og grunnskóla, 23. grein laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og rétt kvenna og karla sem og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Verkefnisstjóri Jafnréttisskólans starfar á fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs í samstarfi við Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri á fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða starf Jafnréttisskólans og þróa það enn frekar. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni. Skóla- og frístundasvið Fiskbúðin Hafberg óskar eftir duglegu og hressu starfsfólki til að sjá um undirbúning á fiskborði og afgreiðslu. Einnig vantar starfsfólk í veitinga- sal frá kl. 10-14 virka daga. Upplýsingar veitir Geir í síma 820 3413 og hafberg@internet.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.