Morgunblaðið - 19.09.2015, Side 43
Jón fór til náms í Danmörku árið
1970 og sinnti þá jafnframt þjálfun
hjá dönskum liðum, m.a. í handbolta
hjá kvennaliði HTI.
Jón flutti aftur til Akraness 1975
og starfaði á almennri teiknistofu
þar 1975-98. Hann flutti til Kaup-
mannahafnar 1999 er hann var ráð-
inn umsjónarmaður Jónshúss til
þriggja ára, en hann sinnti því starfi
við almennar vinsældir til 1.9. nú í
haust.
En í hverju var starfið fólgið?
„Starfið er ákaflega fjölbreytilegt
og skemmtilegt enda er Jónshús
feikilega vel nýtt miðað við aðeins
eitt stöðugildi. Hinu gróskumikla fé-
lagsstarfi sem fram fer í húsinu er
að verulegu leyti haldið uppi af ýms-
um félagssamtökum Íslendinga í
Kaupmannahöfn, en auk þess er
húsið nýtt til ýmissa funda- og
nefndarstarfa. Móðurmálskennsla
hefur verið þar starfrækt frá upp-
hafi og er nú mjög öflug en þar
verða þrír bekkir starfræktir í vetur
með tveimur kennurum. Húsið fyll-
ist því af börnum og foreldrum á
hverjum laugardegi.
Íslendingar eru duglegir að mæta
í messu einu sinni í mánuði í St.
Pálskirkju sem hér er steinsnar frá
húsinu og síðan er hér messukaffi að
lokinni guðsþjónustu. Þá er auðvitað
stöðug sýning í húsinu um Jón for-
seta og Ingibjörgu, konu hans, og
sjálfstæðisbaráttuna. Auk þess er
þar haldinn fjöldi myndlistarsýn-
inga og tónleika, þar er gott bóksafn
og haldin þorrablót fyrir eldri Ís-
lendinga og jólamarkaður þar sem
hægt er að fá malt og appelsín. Loks
eru í húsinu tvær fræðimannaíbúðir
sem eru stöðugt nýttar.
Umsjónarmaðurinn þarf að halda
utan um og skipuleggja allt það
starf sem fram fer í þessu fimm
hæða húsi og huga að ástandi þess
og viðhaldi. Það er því í mörg horn
að líta.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Inga Harðar-
dóttir, f. 9.5. 1948, framhaldsskóla-
kennari. Foreldrar hennar: Þórhalla
Kristjánsdóttir, f. 18.8. 1925, hús-
freyja í Kópavogi, og Hörður
Björnsson, f. 11.2. 1920, d. 9.3. 2001,
byggingatæknifræðingur.
Börn Jóns og Ingu eru Þórhallur
Rafns Jónsson, f. 21.8. 1969, fram-
kvæmdastjóri tónlistarútgáfu í
Kaupmannahöfn, en kona hans er
Arndís Inga Magnúsdóttir, starfs-
maður á markaðsdeild Icelandair í
Kaupmannahöfn, og eru börn þeirra
Inga og Daði; Bergþóra Jónsdóttir,
f. 11.5. 1974, starfsmaður á mark-
aðsdeild Icelandair í Kaupmanna-
höfn, en maður hennar er Ragnar
Ingi Jónsson, verkfræðingur hjá
IPU í Kaupmannahöfn, en dætur
þeirra eru Álfhildur Anna, Þórhild-
ur Fríða og Þórunn Björk; Þórhild-
ur Rafns Jónsdóttir, f. 2.4. 1976,
deildarstjóri hjá ÍTR í Reykjavík,
en maður hennar er Stefán Þór
Steindórsson, byggingafræðingur
hjá Gluggasmiðjunni, og eru synir
þeirra Logi Snær og Steindór Árni.
Bróðir Jóns er Tómas Jóhannes
Runólfsson, f. 6.4. 1941, fyrrv. skrif-
stofustjóri Sementsverksmiðju rík-
isins, búsettur á Akranesi.
Foreldrar Jóns: Runólfur Ólafs-
son, f. 24.10. 1904, d. 14.2. 1991,
bólstrari og módelsmiður, og Mál-
fríður Þorvaldsdóttir, f. 15.9. 1914,
d. 19.11. 2006, húsfreyja og baðvörð-
ur við íþróttahúsið á Akranesi.
Jón Rafns
Runólfsson
Sigríður Stefánsdóttir
bústýra og vinnukona víða
Eiríkur Alexíusson
vinnum. í Skildinganesi við
Rvík, af Fremri-Hálsaætt
Sigríður Eiríksdóttir
húsfr. á Akranesi
Þorvaldur Ólafsson
sjóm. á Akranesi
Málfríður Þorvaldsdóttir
húsfr. og baðvörður á
Akranesi
Ólafur Jóhannesson
b. á Bræðraparti og
Sýruparti á Akranesi
Geir Þorsteinsson
forstj. Ræsis
Gunnar Snorri Gunnarsson
sendiherra
Hallgrímur Geirsson
lögm. og fyrrv. stjórnar-
form. Árvakurs
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Eyjaseli
Runólfur Guðmundsson
b. í Eyjaseli í Hlíð
Oddný Runólfsdóttir
húsfr. á Vopnafirði
Ólafur Oddsson
útvegsb. á Vopnafirði
Runólfur Ólafsson
bólstrari og módel-
smiður á Akranesi
Hildur Eyvindsdóttir
húsfr. á Ragnheiðarstöðum
Oddur Oddsson
b. á Ragnheiðarstöðum í Flóa
Áslaug
Geirsdóttir
Zoëga húsfr.
í Rvík
Geir Hallgrímsson
forsætisráðherra
Björn
Hallgrímsson
forstjóri H. Ben.
Kristinn Björnsson fyrrv.
forstjóri Skeljungs
Emilía B. Björnsdóttir
ljósmyndari við Morgun-
blaðið
Guðrún
Geirsdóttir
Zoëga
Ingileif
Hallgrímsdóttir
stjórnarform.
Geir Zoëga
rektor Lærða
skólans
Úr frændgarði Jóns Rafns Runólfssonar
Guðrún Tómasdóttir Zoëga
húsfr. á Bræðraparti
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015
Jóhann Hafstein forsætisráð-herra fæddist á Akureyri 19.9.1915. Hann var sonur Júlíusar
Havsteen, sýslumanns á Húsavík, og
k.h, Þórunnar Jónsdóttur húsfreyju.
Júlíus var sonur Jakobs Valde-
mars Havsteen, kaupmanns á Ak-
ureyri, og Thoru E.M. Havsteen
húsfreyju. Þórunn var einnig af Haf-
steinum, dóttir Jóns Þórarinssonar
fræðslustjóra, af Presta-Högnaætt,
og Láru Havstein, systur Hannesar
Hafstein, skálds og ráðherra, af
Briemætt forsætisráðherranna
Gunnars Thoroddsen og Davíðs
Oddssonar.
Meðal sjö systkina Jóhanns má
nefna Jakob Hafstein, lögfræðing og
listmálara, föður Júlíusar Hafstein
sendiherra, og Hannes Þórð Haf-
stein, forstjóra SVFÍ, föður Stefáns
Jóns Hafstein.
Synir Jóhanns og k.h., Ragnheið-
ar Hauksdóttur Hafstein: Haukur
Hafstein innanhúsarkitekt, látinn,
Jóhann Júlíus Hafstein, fram-
kvæmdastjóri, og Pétur Kristján
Hafstein, fyrrverandi hæstaréttar-
dómari og sagnfræðingur.
Jóhann Hafstein lauk stúdents-
prófi frá MA árið 1934, lögfræðiprófi
frá HÍ 1938 og stundaði framhalds-
nám í þjóðarrétti við Lundarháskóla
og í Danmörku og Þýskalandi. Hann
var bæjarfulltrúi í Reykjavík 1946-
58, sat í bæjarráði 1946-54, var
bankastjóri Útvegsbankans 1952-63,
alþingismaður Reykvíkinga 1946-78
og lengst af dóms-, kirkju- og
iðnaðarráðherra í Viðreisnarstjórn-
inni.
Hlutverk Jóhanns í íslenskri
stjórnmálasögu var umtalsvert en
engan veginn auðvelt. Hann lagði
línurnar um hinar miklu virkjunar-
framkvæmdir sem hófust með Búr-
fellsvirkjun og raforkusamningum
vegna álvers í Straumsvík. Hann
varð formaður Sjálfstæðisflokksins
og forsætisráðherra við sviplegt frá-
fall Bjarna Benediktssonar sumarið
1970 og glímdi í kjölfarið við alvar-
lega sundrung í forystu flokksins
þar sem hann tók sér stöðu með
eftirmanni sínum, Geir Hallgríms-
syni, gegn Gunnari Thoroddsen.
Jóhann lést 15.5. 1980.
Merkir Íslendingar
Jóhann
Hafstein
Laugardagur
85 ára
Baldur Guðmundsson
Friðrik Friðriksson
80 ára
Emil L. Guðmundsson
Hjörtur Torfason
75 ára
Árnný S. Guðjónsdóttir
Lilja Þorbergsdóttir
Sigrún Ásta Guðlaugsdóttir
70 ára
Böðvar Valdemarsson
Daníela Guðmundsdóttir
Dröfn Einarsdóttir
Grétar Magnússon
Hjördís Judithardóttir
Ólafur Einarsson
Ólafur Sigurðsson
Sigríður Á. Pálsdóttir
Sigurbjörg Gísladóttir
Sigurbjörg Lárusdóttir
Þórlindur Jóhannsson
60 ára
Anna K. Guðmundsdóttir
Bjarni Guðjónsson
Björn S. Sigurvaldason
Friðgerður S. Baldvinsdóttir
Hersteinn K. Valgarðsson
Hjördís Vestmann
Jóhanna Garðarsdóttir
Kristín R. Gunnarsdóttir
Snorri Ragnarsson
Ægir Kópsson
50 ára
Arnar Þór Ólafsson
Ágústa K. Guðmundsdóttir
Árni Björn Ómarsson
Dóra Magda Gylfadóttir
Elín Þóra Stefánsdóttir
Erna Gísladóttir
Freyja Jónsdóttir
Funminiyi Olanrewaju Ajala
Jóhannes Ævar Jónsson
Magnús Ási Ástráðsson
Sveinbjörn S. Gunnarsson
40 ára
Björk Thorarensen
Guðrún Helga Helgadóttir
Halldóra G. Sigurðardóttir
Hildur María Hilmarsdóttir
Inga Lára Gylfadóttir
Jenný María Jónsdóttir
Jóhanna Kristófersdóttir
Jóhannes Óskarsson
Jónas Ríkharð Jónsson
Klemenz B. Gunnarsson
Kristín Skjaldardóttir
Nína G. Jóhannsdóttir
Ragnheiður D. Bjarnadóttir
Soffía Elísabet Pálsdóttir
30 ára
Ágúst Þór Jónsson
Birgir Þórisson
Elfar Logason
Gróa Björg Baldvinsdóttir
Guðrún Helga Heiðarsdóttir
Guðrún María Jónsdóttir
Halldóra Guðmundsdóttir
Magni Freyr Emilsson
Magnús Bernhard Gíslason
Rebekka B. Björnsdóttir
Sigrún Sæmundsdóttir
Sigurður F. Gunnarsson
Sonja Noack
Steingrímur J. Jósepsson
Steinunn Þ. Sigurðardóttir
Unnur Emma Markúsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Sigurður Árnason
85 ára
Ásvaldur I. Guðmundsson
Hannes Bjarnason
Vilhelmína Baldvinsdóttir
80 ára
Elfa Björnsdóttir
Guðbjörg
Valdimarsdóttir
Guðmundur Jóhannsson
Guðmundur Jónsson
Hilmar Steingrímsson
Jóhann Gunnarsson
Jón Björnsson
Sveinn Jóhannsson
75 ára
María Jóhannesdóttir
Sigurður R. Bjarnason
Unnur Kristjánsdóttir
70 ára
Árni Þorkelsson
Ásgeir Þormóðsson
Ásmundur Guðmundsson
Finnbogi Hermannsson
Guðmundur Bogason
Guðrún Ragna Rafnsdóttir
Helga Vallý Björgvinsdóttir
Magnea Baldvinsdóttir
Óli Helgi Sæmundsson
Sigurður B. Oddsson
Sigurjón Magnússon
Stefán R. Jónsson
Steinunn Helga Hallsdóttir
Vilmar H. Pedersen
60 ára
Carl Bergur Granz
Erla Hrönn Sveinsdóttir
Guðberg Heiðar Sveinsson
Gunnþórunn Geirsdóttir
Helga Jóhannesdóttir
Helgi Tómasson
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Jófríður Hallsdóttir
Jóhann Pjetur Jónsson
Jónína G. Samúelsdóttir
Kristján Böðvarsson
Kristján Meyvant Jónsson
Margrét Gísladóttir
Pétur Bjarnason
Sigrún Hrafnsdóttir
Þórunn Kristjánsdóttir
50 ára
Edda Arinbjarnar
Egill Örlygsson
Finnbogi R. Guðmundsson
Hermann Valsson
Hjálmar H. Hjálmarsson
Hjörtur Einarsson
Hjörtur Líndal Jóhannsson
Jenný Björgvinsdóttir
Jóhanna Halldórsdóttir
Jóna Júlía Petersen
Jóna Þórsdóttir
Rannveig Ó. Friðþjófsdóttir
Rósa Vilborg Jóhannsdóttir
Sigurjón Sigurðsson
40 ára
Anna S. Aðalbjörnsdóttir
Arnþór Ingi Hinriksson
Atli Geir Atlason
Auður Guðjohnsen
Dagmar Þorsteinsdóttir
Edda Jónsdóttir
Erla Guðrún Kristinsdóttir
Gabríela Aðalbjörnsdóttir
Hrönn Harðardóttir
Ingibjörg Björgvinsdóttir
Jónas Elíasson
Kristján Sigfússon
Kristján Þór Ebenezersson
Magdalena E. Andrésdóttir
María Sigurðardóttir
30 ára
Alma Sigurðardóttir
Anita Gísladóttir
Daníel Örn Gíslason
Einar Örn Rafnsson
Guðný J. Gunnarsdóttir
Gunnar Ingi Valdimarsson
Inga M. Benediktsdóttir
Ingólfur Sigurðsson
Sigríður Sigurbjarnadóttir
Sigrún H. Einarsdóttir
Sigurlaug Lilja Jónasdóttir
Til hamingju með daginn