Morgunblaðið - 19.09.2015, Page 47

Morgunblaðið - 19.09.2015, Page 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 2015 Sextettinn The King’s Sin-gers öðlaðist heimsfrægðfljótlega eftir stofnun 1968.Mátti ekki aðeins þakka óumdeilanlegum tjáningargæðum heldur líka einhverri mestu fjöl- breytni í verkefnavali sem um getur meðal vestrænna raddsöngshópa á 20. öld. Skákaði hann að því leyti bæði Comedian Harmonists á 4. ára- tug og Swingle Singers frá því um 1960, svo tvö áhrifamikil dæmi séu nefnd, með viðfangsefnum úr jafn- ólíkum áttum og endurreisnar- madrígölum, klassík, rómantík, módernisma, þjóðlögum, poppi og djassi. KS gistu nú landið í annað sinn. Fyrra skiptið var í Gamla bíói árið 1989, en nú voru nýir söngvarar í öll- um sex röddum. Raddseiður hópsins reyndist þó engu síðri en fyrr, og kannski ekki að undra m.t.t. harðari samkeppni, þar sem framfarir í upp- tökutækni geta að auki villt mönnum heyrn með AutoTune – dæmigerðri „PhotoShop söngvarans“ er nú ku jafnvel nýtanleg á lifandi tónleikum með yfirgengilega nákvæmri inn- tónun. Sem betur fór varð þess þó ekki vart þetta kvöld, heldur skiluðu hæfileikar, ögun og þrotlausar æf- ingar sínu svo varla varð á betra kos- ið. Enda reif eftirminnileg frammi- staða sexmenninganna þegar í upphafi hlustendur rækilega upp úr skónum fram að fagnaði á fæti í tón- leikalok. Enn ein fjöður í ómvistar- orðspor Eldborgar, er skilaði óraf- magnaðri barkalist þeirra félaga til yztu kima, þótt halda mætti að fyrra bragði salinn í stærsta lagi fyrir jafnviðkvæma hópsöngsgrein. Sérstaða brezkrar kórhefðar mót- ast ekki sízt af kontratenórsöng; fornri falsettutækni er hækkar tón- svið karlbarkans upp á efsta svið alt- söngkvenna. Með því móti nær kontrakarlakór svo til fullu raddsviði blandaðra kóra og getur þannig margfaldað verkefnaval sitt. Þar við bætist að hásvið kontratenóra er talsvert mýkra en hásvið kvenradda, og næst fyrir vikið betra samvægi. Mátti það glöggt heyra hjá KS, hvort heldur í sterkum eða veikum söng – til greinilegs ágóða fyrir m.a. krydd- aða „close harmony“ þéttskipun. Söngsveitin hófst handa með þrem lögum úr hinni ríku brezku madrí- galaarfleifð. Tveir fisléttir ,balettar‘ voru eftir Morley, og á milli þeirra sexradda toppstykki eftir Weelkes, Thule, the Period of Cosmography; augljóslega valið í tilefni af söngför- inni og til marks um hve „Mount Hecla’s sulphurious fires“ spurðust víða þegar á 16. öld. Eftir þrjú bráðfalleg kórlög Saint- Saëns lauk fyrsta fjórðungi með Nonsense, grínverki eftir ítalska framúrstefnuforkólfinn Goffredo Petrassi við 5 enskar gamanlimrur, er sannaði að m.a.s. módernísk tón- list getur verið drepfyndin, sé ein- beittur brosavilji fyrir hendi. Úr þjóðlegu deildinni komu þarnæst fjögur lög; fyrst eitt eftir Paul Sim- on, síðan rífandi sveifluútsetning á Down by the Riverside og tveir dill- andi negrasálmar. Eftir hlé birtust 4 „póstkort hvað- anæva úr heiminum“ – kanadískt og velskt þjóðlag, kliðmjúk eyrnagæla Billys Joel And So it Goes (úts. Chil- cott) af frábært samstilltri snilld og hið stutta en einlæga Kvöldvers Tryggva Baldvinssonar er sungið var á íslenzku við mikla hrifningu salargesta. Loks var bryddað upp á „merkum amerískum sönglögum“ og stóðu þar upp úr sígrænkur Gers- hwin-bræðra, Our Love is Here to Stay og Night and Day svo þakið ætlaði ofan að rifna. Kóngssöngvarar kvöddu með kostulegu aukalagi, skoppandi vókalísuúttekt á forleik Rossinis að Rakaranum í Sevillu, og minntu um leið á hvað til stendur hér í næsta mánuði. Fagnaðarlæti „Enda reif eftirminnileg frammistaða sexmenninganna þegar í upphafi hlustendur rækilega upp úr skónum fram að fagnaði á fæti í tónleikalok,“ segir m.a. í rýni um tónleika sönghópsins The King’s Singers. „Þú söngst á tindi Heklu hám…“ Eldborg í Hörpu Kórtónleikar bbbbb Lög af ýmsu tagi. Sönghópurinn The King’s Singers (David Hurley & Timothy Wayne-Wright kontratenórar, Julian Gregory T, Christopher Bruerton & Christopher Gabbitas Bar. og Jonathan Howard B. Miðvikudaginn 16. sept- ember 2015. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Íslenska óperan og menningarhúsið Hannesarholt við Grundarstíg standa sameiginlega að viðburði í Hann- esarholti klukkan 17 í dag, laugardag. Undir yfirskrift- inni „Rakarinn frá Sevilla heimsækir Hannesarholt“ ætla söngvarar úr væntanlegri haustuppfærslu óp- erunnar, búningahönnuður og kynningastjóri að færa óperuna nær áhorfandanum. Gestum gefst því færi á að kynnast Rakaranum frá Se- villa í návígi en söngvarar sem munu taka þátt í sýning- unni flytja valdar aríur og dúetta ásamt píanóleikara, auk þess sem þau svara spurningum um undirbúninginn. Fram koma Rakarinn (Oddur Arnþór Jónsson), Alma- viva greifi (Gissur Páll Gissurarson) og Rosina (Sigríður Ósk Kristjáns- dóttir) og með þeim píanóleikarinn Antonia Hevesi. Oddur Arnþór Jónsson Rakarinn heimsækir Hannesarholt Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 19:00 6.k. Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Fös 9/10 kl. 19:00 12.k Fim 24/9 kl. 19:00 7.k. Lau 3/10 kl. 19:00 10.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k Fös 25/9 kl. 19:00 8.k. Sun 4/10 kl. 19:00 11.k Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Lau 19/9 kl. 20:00 3.k. Lau 26/9 kl. 20:00 5.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k. Mið 23/9 kl. 20:00 4.k. Fim 1/10 kl. 20:00 aukas. Sun 11/10 kl. 20:00 aukas. Aðeins þessar sýningar! At (Nýja sviðið) Sun 20/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 5.k. Sun 4/10 kl. 20:00 8.k. Mið 23/9 kl. 20:00 3.k. Mið 30/9 kl. 20:00 6.k. Fim 24/9 kl. 20:00 4.k. Lau 3/10 kl. 20:00 7.k. Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 13:00 1.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 19/9 kl. 20:00 2 k. Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Kenneth Máni stelur senunni Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Sun 20/9 kl. 20:00 3.k. Fös 25/9 kl. 20:00 4.k. Sun 27/9 kl. 20:00 5.k. Aðeins þessar sýningar! Sókrates (Litla sviðið) Fim 1/10 kl. 20:00 1.k. Fim 8/10 kl. 20:00 5.k. Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Fös 2/10 kl. 20:00 2 k. Fös 9/10 kl. 20:00 6.k. Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 3/10 kl. 20:00 3.k. Sun 11/10 kl. 20:00 7.k. Þri 3/11 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 4.k. Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Fim 5/11 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Mið 28/10 kl. 20:00 Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fim 29/10 kl. 20:00 Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Sun 1/11 kl. 20:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 10.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. Heimkoman (Stóra sviðið) Lau 10/10 kl. 19:30 Frums. Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Mið 14/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 10.sýn Fim 15/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Sun 20/9 kl. 18:00 4.sýn Mið 23/9 kl. 19:30 Lau 26/9 kl. 19:30 Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 10/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 13:30 Lau 10/10 kl. 15:00 Lau 17/10 kl. 15:00 Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna. DAVID FARR HARÐINDIN 22. september - Oddur Jónsson - Sigríður Kristjánsdóttir - Guðrún Ólafsdóttir - RAKARINN - FRÁ SEVILLA - Gissur Páll Gissurarson - Antonia Hevesi píanó HÁDEGISTÓNLEIKAR - LUNCHTIME OPERA CONCERTS - Þriðjudaga kl. 12.15 í Norðurljósasal - Hörpu. Frítt inn á þessa fyrstu tónleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.