Skólavarðan - 01.02.2005, Qupperneq 9

Skólavarðan - 01.02.2005, Qupperneq 9
9 9% SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005 bjóða listunnendum og fagurkerum. Á lokadegi heimsóknarinnar var ekið til Kecskemet, fæðingarbæjar Zoltán Kodá- lys. Regninu hafði slotað og sólin vermdi landið og okkur ferðalangana. Kecskem- et er fallegur bær, hrein torg og vel hirt hús buðu okkur velkomin. Í einu af þess- um fallegu húsum er Kodály-skólinn til húsa. Hann er venjulegur grunnskóli að öðru leyti en því að börnin fá tónmennt á hverjum degi og lögð er áhersla á kórstarf. Skólinn byggir allt starf sitt á hugmyndum Kodálys um alþýðufræðslu í tónlist. Mik- ið var indælt að sitja í kennslustund með sjö ára börnum og hlýða á þennan hreina söng. Sú eindrægni og sá starfsandi sem einkenndi stundina snart okkur öll. Hér ganga allir að sama marki í kröfuharðri vinnu. Það er bjart yfir söng krakkanna og þeim virðist vera eðlilegt að tjá sig með þeim hætti. Léttstíg gengu þau út úr stof- unni sinni með kennara sínum að kennslu lokinni, en við þurftum ráðrúm til að fá að ræða það sem við höfðum upplifað og bera saman bækur okkar. Hvað er það sem skapar þessa eindrægni og vinnusemi sem ekkert hindrar og birtist í frjálsri tjáningu í söng? Hvaðan kemur þessi frjálslegi agi? Með þessa og fleiri spurningar á vör- um var okkur vísað yfir í næsta hús. Þar er Kodály-stofnunin til húsa, miðpunktur alþjóðlegrar hreyfingar um hugmyndir Zoltán Kodálys. Þar var í fyrirlestri rakin saga hans sem þjóðlagasafnara, tónskálds og loks brautryðjanda á sviði tónlistarupp- eldis og kynnt hlutverk stofnunarinnar, að halda námskeið fyrir tónlistarkennara hvaðanæva úr heiminum til að læra að kenna í anda þessara hugmynda. Þetta atriði heimsóknarinnar markaði lok ferð- arinnar en einnig hápunkt hennar. Eftir stendur spurningin um hvað við getum lært af Ungverjum. Það sem birtist okkur öllum í kennslustundinni í Kodály-skólan- um vekur upp spurningar um stöðu þess- ara mála hjá okkur á Íslandi þar sem mörg börn á grunnskólaaldri fá enga kennslu í tónmennt. Hvernig getum við snúið vörn í sókn? Höfundur er Sigursveinn Magnússon skóla- stjóri Tónskóla Sigursveins. Sigursveinn Magnússon Kennslustund í Kodály-skólanum NÁMSFERÐ

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.