Skólavarðan - 01.02.2005, Side 13
13
NÝJUNGAR
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005
Borgarráð staðfesti í haust nýja gjald-
skrá Leikskóla Reykjavíkur í samræmi
við ákvörðun ráðsins í júní sl. að bjóða
upp á gjaldfrjálst leikskólanám á morgn-
ana fyrir fimm ára börn. Skipaður var
starfshópur sem vann tillögur um aukna
samþættingu leikskóla og grunnskóla.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar býður líka
fimm ára börnum gjaldfrjálst leikskóla-
nám nú frá áramótum í fjórar stundir á
dag.
Með samþykkt þessarar tillögu hafa
Reykjavík og Fjarðabyggð skipað sér í fylk-
ingarbrjóst þeirra sveitarfélaga sem líta á
starf leikskólans sem hluta af samfelldu
námsferli og viðurkenna þar með leikskól-
ann sem fyrsta skólastigið.
Skólavarðan leitaði til Hildar Skarphéð-
insdóttur, deildarstjóra leikskóladeildar
hjá Leikskólum Reykjavíkur, og spurði
hana hvort fimm ára börn ættu nú að fara
að læra lestur og reikning.
Hildur var fljót til svars: „Nei, nei,
einmitt ekki. Fimm ára börnin leysa nú
eins og áður „elstu barna verkefni". Þau
eru vön því að menntun þeirra fari fram
án þess að um beina kennslu sé að ræða
með námsbókum og verkefnablöðum.
Foreldrar hafa tekið þessum tillögum um
aukna samþættingu leikskóla og grunn-
skóla mjög vel og virðast hafa verið ágæt-
lega búnir undir að hér er ekki um að
ræða neina stórvægilega breytingu á leik-
skólastarfinu frá því sem verið hefur.“
Um námskrárgerð á þessu fyrsta skóla-
stigi sagði Hildur að leikskólarnir væru
ólíkir og hefðu mismunandi áherslur í
uppeldis- og menntastarfi. „Þetta á ekki
að breytast við gjaldfrjálst leikskólanám
elstu barnanna. Hver leikskóli á að búa til
afmarkaða námskrá fyrir fimm ára börnin
þar sem áhersla er meðal annars lögð á
hreyfingu, málrækt, myndsköpun, tónlist,
umhverfi, menningu og samfélag. Áhersla
er lögð á að leikurinn sé námsleið barna á
leikskólaaldri.“
Hvernig eru skólarnir mannaðir til að
takast á við þetta verkefni?
„Enginn leikskólastjóri hefur talað um
að hann geti ekki tekist á við þetta verk-
efni vegna skorts á leikskólakennurum en
deildarstjórar á vel flestum deildum leik-
skóla borgarinnar eru leikskólakennarar.
Starfsmenn leikskólanna eru mjög opnir
fyrir fræðslutilboðum Leikskóla Reykjavík-
ur og eru allir með símenntunaráætlun.
Diplómanámið í KHÍ og fjarkennslumögu-
leikar skólans til að mennta leikskóla-
kennara hafa verið mikil lyftistöng fyrir
stéttina og á það vonandi eftir að skila sér
í auknu framboði af leikskólakennurum í
náinni framtíð.“
GG
Að læra í gegnum leik - áhersla á félags- og samskiptafærni
Leikskólinn fyrsta skólastigið
Nefndin mælir með fjölbreyttum
námsleiðum í yngstu bekkjum
grunnskóla þar sem nemendur fái
tækifæri til að læra og þroskast
í gegnum leik og efla þannig fé-
lags- og samskiptafærni sína. Með
einstaklingsmiðuðum áherslum
verði komið til móts við mismun-
andi hæfileika og getu nemenda.
Áhersla verði lögð á samstarf
bekkjardeilda og árganga og sam-
vinnu nemenda í ólíkum hópum.
Úr greinargerð starfshóps um
aukna samþættingu leikskóla og
grunnskóla.
Hildur Skarphéðinsdóttir