Skólavarðan - 01.02.2005, Qupperneq 20

Skólavarðan - 01.02.2005, Qupperneq 20
20 SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005 smáatriðum hvað stúdent á að kunna. Ég held að við eigum að þora að hugsa þá hugsun að skólarnir búi hver til sína námskrá. Hjördís: Þessu verð ég að mótmæla. Í okkar litla samfélagi er nauðsynlegt að hafa aðalnámskrá. Val nemenda er að ein- hverju leyti blekking. Framboðið er eins og fjármunirnir leyfa og þeir eru af svo skorn- um skammti að framboð verður aldrei nógu mikið til að nemendur hafi frjálst val. Aðalnámskráin skyldar menntamálayf- irvöld til að hafa að minnsta kosti náms- framboð samkvæmt henni. Þess vegna vil ég ekki sjá aðalnámskrá hverfa. Atli gaf sig ekki og nefndi nokkur dæmi um sérhæfða menntun sem boðið væri upp á í sumum skólum, t.d. IB-brautina í MH, fornmálabrautina í MR og skóla sem hefðu verið að flétta saman iðnnám og bóknám. Að mati Atla stendur námskrá, sem telur upp í smáatriðum hvað eigi að gera, í vegi fyrir því að öll þessi blóm fái virkilega að blómstra. Egill: Ég held að við þurfum ekki að ótt- ast það að skólarnir fari á eitthvert ævin- týraflipp því þeir hljóta að vera að mennta nemendur til einhvers. Það verður alltaf einhver lágmarksstýring hvort sem hún heitir aðalnámskrá eða eitthvað annað. Guðmundur: Ég held ekki að það sé að- alnámskráin sem verður aðal stýriaflið í framhaldsskólanum í framtíðinni, ég held að það verði samræmd stúdentspróf. Hjördís: Það held ég ekki. Egill: Ef þau verða? Guðmundur: Já, þeim verður troðið í gegn, trúið mér! Og við þau verður miðað. Þetta verður nákvæmlega eins og í grunn- skólanum eftir fá ár ef þetta verður keyrt í gegn, þessi skýrsla, styttingin, samræmdu stúdentsprófin, öll þessi einsleitni og sam- ræming sem verið er að sækjast eftir með öllum þessum aðgerðum. Það er verið að gera skólakerfið einsleitara og skólana samanburðarhæfari, það er verið að auka hagkvæmni og þetta mun stýra í framtíð- inni. Viljum við þessa einsleitni? Viljum við þessa samræmingu? Viljum við láta negla alla í sama farið? Aldís: Ég vildi gjarnan geta tekið undir sjónarmið Atla en ég held að við verðum að hafa formlegan ramma, þ.e. námskrá. Hér áðan var minnst á IB-námið í MH þar sem ég kenni og þekki vel til. Það er dæmi um afar miðstýrt nám, þar er allt njörvað niður og nákvæmlega skilgreint í námskrá hvað eigi að kenna. Þar eru mjög strangar reglur um hvað megi gera og hvað ekki. Að sumu leyti er þetta öryggisnet fyrir kennarana en á hinn bóginn má líta á þetta sem spennitreyju. Maður er auðvitað ekki alltaf sammála öllu sem sett er fram af einhverri miðlægri stofnun úti í heimi. Síðan eru samræmd próf í öllu þessu og þau vil ég ekki sjá hér! Það er einlæg ósk mín að þau verði lögð af og að skólar fái að hafa eigin sveigjanleika. Mikilvægt að hefja umræður vítt og breitt í skólasamfélaginu -Hvað er brýnast að kennarar geri nú varð- andi þessar hugmyndir skýrslunnar um framtíð framhaldsskólans á Íslandi? Stóri veikleikinn í þessari skýrslu er sá að einblínt er á að stytta námið. Það er ekki nægilega horft til þess hvað nemendur eiga að hafa þegar þeir útskrifast. -Egill. VIÐ HRINGBORÐIÐ Atli: Það þarf líka að greiða fyrir því að nemendur eigi raunhæfan kost á því að ljúka grunnskólanámi á níu árum ... Guðmundur: Ef við lítum á töflu 4 má sjá hvernig skepnan kemur til með að líta út þegar búið verður að lauma þessu gegnum alþingi án allrar umræðu á síðustu dögum, ef ég þekki vinnubrögðin rétt...

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.