Skólavarðan - 01.02.2005, Side 27
27
SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 5. ÁRG. 2005
tekið þetta fyrir sem hluta af námsáhersl-
um í lífsleikni og/eða fellt inn í hvaða
námsgrein sem er. Jafnframt eru heimilin
upplýst um það sem verið er að gera með
börnunum. Síðan er aflað stuðnings for-
eldra við hugmyndirnar og aðferðirnar.
Mitt hlutverk - þitt hlutverk
Þegar skólar ákveða að tileinka sér þessar
aðferðir byrjar fullorðna fólkið, kennarar,
stjórnendur, annað starfsfólk og foreldrar,
á því að taka mikilvæg lífsgildi sín til skoð-
unar og skilgreina hvernig það vilji vera.
Þetta er sett í sáttmála sem allir skrifa und-
ir og er hann sameiginleg stefna samstarfs-
manna.
Næsta skref er að skilgreina hvað þarf
að gera til að ná markmiðinu, með því að
athuga hlutverkaskiptingu, mitt hlutverk
- þitt hlutverk. Tvö og tvö embætti, sem
hafa ólík verksvið en vinna saman að sama
marki, skilgreina hlutverk sín. Þegar búið
er að skilgreina hlutverkin með þessum
hætti er allt daglegt starf mun einfaldara
og öllum ljóst til hvers er ætlast af þeim.
Ákvörðun er tekin um ófrávíkjanlegar
reglur til að verja þau lífsgildi sem sam-
staða hefur náðst um.Vinnureglur eru skil-
greindar til að bregðast við þegar ófrávíkj-
anlegar reglur eru brotnar. Þá þarf ekki að
fara í gamla gírinn, skammast og hóta eða
tipla um og kaupa bætta hegðun, heldur
er hægt að stöðva óásættanlega fram-
Unnið með mitt og þitt hlutverk.
komu af einurð og festu í góðri samvinnu
starfsmanna.
Diane Gossen lagði áherslu á að hafa
gleðina og húmorinn í fyrirrúmi í þessari
vinnu og á því ágætlega við að enda um-
fjöllunina á orðum hennar sem lýsa ágæt-
lega þessari hlið: IF IT ISN´T FUN IT ISN´T
RESTITUTION.
Það var mikil reynsla fyrir okkur Ís-
lendingana að sjá og heyra um þennan
veruleika og hvernig kennarar og skóla-
samfélagið vinnur með þessa hluti eftir
aðferðum uppbyggingarstefnunnar. Það
sannfærði okkur um að þessi aðferð skilar
árangri í samskiptum við erfiðustu aðstæð-
ur og staðfesti það sem við höfum reynt.
Við getum því sagt að við trúum að við
séum á réttri leið á Álftanesi.
http://alftanesskoli.ismennt.is/uppbygging
Magni Hjálmarsson, Guðlaug Erla Gunnars-
dóttir og Sveinbjörn Markús Njálsson.
NÁMSFERÐ