Skólavarðan - 01.02.2007, Page 20

Skólavarðan - 01.02.2007, Page 20
FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR 20 Mon der er en lærerfamilie der vil være interesseret i at bytte hus + bil med os fra ca. 15. juli til 1. august 2007? Vi kan tilbyde et stort og godt hus på 241 kvm i Gistrup v. Aalborg + en 2 år gammel Suzuki Grand Vitare. - Vi er 2 personer - begge læreruddannede - (pensionister) og håber at finde en lærerfamilie, der er interesseret i at bytte. Kontakt os venligst. Birthe Bagger Andersen Nøvlingvej 96 9260 Gistrup, Danmark. knea@km.dk Miðvikudaginn 17. janúar var haldið ástralskt kvöld í stofu K205 í KHÍ kl 20:00 með tónlistarflutningi og fyrirlestri. Laugardaginn 10.febrúar verður fundur á sama stað kl 11 með “Swapshop”: Komið með hugmyndir og reynslu af netefni eins og umræða hefur verið um á netinu. Heimasíðan verður kynnt og landsbyggðin er sérstaklega hvött til að mæta. Kaffihúsafundir grunnskólakennara halda áfram fyrsta miðvikudag hvers mánaðar á Kaffi Mílanó í Skeifunni. Föstudaginn 23. febrúar er námskeið á vegum STÍL og aðlalfundur STÍL þá um kvöldið. Munið að skrá ykkur tímanlega ef þið ætlið á IATEFL ráðstefnuna í Aberdeen 18.-22. apríl og panta flug. Sjáumst. Stjórnin Hvernig gæðum við byrjendakennslu lífi? Hvernig er hægt að gera nemendur sem eru að taka sín fyrstu skref í því að læra nýtt tungumál að virkum notendum málsins strax frá byrjun? Um árabil hefur ítölskukennarinn Roberto Tartaglione, forstöðumaður Scuola d’Italiano í Róm, heimsótt landið og haldið ítölskunámskeið á vegum Endur- menntunar HÍ. Um leið hefur hann vakið athygli fyrir kennsluaðferðir sínar. Nú er komið að okkur að læra af honum. Að auki munu nokkrir valinkunnir íslenskir kennarar miðla af reynslu sinni og taka þátt í umræðum í lok námskeiðsins. Námskeiðið er hugsað fyrir kennara jafnt á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Þetta námskeið kemur í staðinn fyrir hefðbundið sumarnámskeið STÍL og er tímasetningin liður í að mæta óskum þeirra sem eiga óhægt um vik með að sækja námskeið að sumarlagi. Ef áhugi og aðstæður leyfa stendur til að nota fjarfundabúnað Endurmenntunar til að gefa kennurum úti á landi kost á að vera með. Því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst. Aðalfundur STÍL verður síðan haldinn í Skólabæ við Suðurgötu í beinu framhaldi af námskeiðinu. Léttar veitingar að hætti hússins verða í boði frá kl.18.00. Aðalfundarstörf hefjast klukkan 19.00. Allir félagar velkomnir! Árleg ráðstefna grunnskólakennara í Reykjavík Skóli á nýrri öld - verður haldin á öskudag þann 21. febrúar á Hótel Nordica. Yfirskrift ráðstefnunnar er að þessu sinni Ólíkir nemendur - ólíkar leiðir og er sænski skólaþróunarfræðingurinn Ulf Hedén aðal- fyrirlesari. Hedén hefur leitt mótun nýrrar skólastefnu fyrir grunnskólann í Helsingjaborg og er þar lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám og einstaklingsáætlanir. Hann mun í erindi sínu fjalla um þróunarvinnu í skólastarfi samhliða því að ný stefna er innleidd og segja frá þeim gildum sem höfð voru að leiðarljósi við stefnumótun. Einnig kemur frá Finnlandi Mona Andersen grunnskólakennari og heldur erindi á málstofu ásamt Hedén. Málstofurnar eru eftirfarandi: 1. Lýðræði í skólastarfi Stjórnandi: Guðrún Edda Bentsdóttir verkefnastjóri MSR Nemendalýðræði og einstaklingsmiðað nám, Sif Vígþórsdóttir skólastjóri. Skólaþing í Sjálandsskóla, Helgi Grímsson skólastjóri 2. To learn how to learn and to become an independent learner! Stjórnandi: Sigrún Ólafsdóttir kennari Mona Andersen, grunnskólakennari frá Helsingjaborg og Ulf Hedén skólaþróunarfræðingur.- sjá stuttan útdrátt úr erindi Monu. Unnið í vinnuhópum 3. Teymisvinna kennara og kennslufyrirkomulag Stjórnandi: Þorgerður Diðriksdóttir formaður KFR Gunnar Börkur Jónasson og Hlín Helga Pálsdóttir kennarar í Háteigsskóla. Aðalhildur Svanhildardóttir kennari í Álftamýrarskóla. Kristín Halla Þórsdóttir kennari og Hrund Hlöðversdóttir deildarstjóri í Víkurskóla. 4. Bætt hegðun og samskipti í skólum Stjórnandi: Hrund Logadóttir verkefnastjóri MSR Gullkista við enda regnbogans - Dr. Ingvar Sigurgeirsson prófessor við KHÍ kynnir rannsókn sína á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005-2006. Sjá skýrsluna Lífsleikni - leið til lausnar - Ellert Borgar Þorvaldsson, skólastjóri Ártúnsskóla. 5. Rafrænt námsumhverfi Stjórnandi: Brynhildur A. Ragnarsdóttir deildarstjóri Tungumálavers Blackboard í skólastarfi - Edda Kjartansdóttir verkefnastjóri KHÍ. Áætlanagerð í Mentor - Svanhildur M. Ólafsdóttir skólastjóri í Korpuskóla. Með forskot í fjarnámi - Kirsten Sindradóttir og Anna Lind Þórðardóttir, nemendur í 9. bekk Laugalækjarskóla. Gleðilegt nýtt ár! Kennslufræði tungumála, notkun frummáls í kennslu Haldið í samstarfi við STÍL. Námskeiðið er ætlað tungumála- kennurum á öllum skólastigum. Bytte Hus: Island - Danmark i sommerferien?

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.