Skólavarðan - 01.02.2007, Blaðsíða 28

Skólavarðan - 01.02.2007, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 7. ÁRG. 2007 Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2007-2008. Umsóknir sendist til Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík, í síðasta lagi 1. mars 2007. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Kennarasambandsins ki.is og hjá starfsmanni sjóðsins sem veitir nánari upplýsingar. Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri, í samstarfi við Skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskolen í Danmörku, hafa staðið fyrir vellukkuðum tungumálanámskeiðum fyrir íslenska grunnskólanema undanfarin þrjú ár. Þátttakendur, sem nú telja 85 nemendur og 8 kennara, hafa verið ánægðir með dvölina ytra og námskeiðið hefur skilað sér vel, þegar horft er til áhuga og færni nemenda að námskeiði loknu sem og fleiru. Michael Dal, lektor við KHÍ, tók saman mat á námskeiðinu 2005. Skýrslan er aðgengileg á heimasíðu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar www.akmennt. is/nu Þar er einnig aðgengileg heimasíða námskeiðsins 2006 með dagbókarfærslum nemenda og kennara og myndum frá dvölinni. Markmiðið er að nýir nemendur og kennarar taki þátt á ári hverju. Æskilegast væri að skólar sem sjá ávinning af því að senda kennara í slíka ferð greiði hluta af kostnaði vegna dvalar þeirra, til að lækka námskeiðsgjöld nemenda. Það eru ekki bara nemendur sem læra eitthvað nýtt, heldur hafa íslensku kennararnir einnig krækt í góðar kennsluaðferðir sem þeir nota í dönskukennslu og annari kennslu. Áhugasamir skólastjórnendur eru eindregið hvattir til að hafa samband við Norrænu upplýsingaskrifstofuna. Skráning er hafin á næsta námskeið. Haldið verður til Europahøjskole á Kalø 14. júní (flogið út 13. júní) og ferðin stendur til 27. júní. Áhugasamir hafi samband við Maríu, mariajons@akureyri.is eða í síma 462 7000 (mánud. – fimmtud. 09:00 - 14:00). María Jónsdóttir Forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar Leder Nordisk informationkontor Netfang/e-post: mariajons@akureyri.is hjemmeside: www.akmennt.is/nu Norræna upplýsingaskrifstofan/Nordisk informationkontor Kaupvangsstræti 23 600 Akureyri Island. Sími: 462 7000 Fax: 460 1460. Stjórn Sjúkrasjóðs hefur nú lokið árlegri endurskoðun á úthlutunarreglum sjóðsins. Vegna styrkúthlutana umfram áætlanir hefur því miður í fyrsta sinn þurft að lækka styrkfjárhæðir í tveimur styrktarflokkum. Undanfarin ár hefur verið leitað leiða til að auka fjölbreytni styrkja með hliðsjón af úthlutunarreglum annarra sambærilegra sjóða. Nýjasta viðbótin var styrkir vegna tannlæknakostnaðar. Í kjölfarið fóru að streyma inn umsóknir og greinilegt að félagsmenn verða fyrir miklum útgjöldum vegna tannviðgerða. Við endurskoðun úthlutunarreglna 2005 var ekki talið nauðsynlegt að grípa til aðhaldsaðgerða, enda reynslutími þá stuttur og heildarstyrkúthlutanir í samræmi við áætlanir. Nú horfir aftur á móti þannig við að ekki er útlit fyrir að styrkumsóknum vegna tannviðgerða fækki, þvert á móti. Ljóst er að á árinu 2006 verða úthlutanir Sjúkrasjóðs rúmum 30% umfram tekjur og því telur sjóðsstjórnin óhjákvæmilegt að lækka styrkfjárhæðir tveggja styrktarflokka, þ.e. vegna tannviðgerða og laseraðgerða á augum, enda hafa úthlutanir í þessum flokkum farið umtalsvert fram úr áætlunum. 1. Tannlæknastyrkur verður eftir 1. febrúar 30 % af útlögðum kostnaði umfram 50.000 kr. ( var 40%), hámarksstyrkur verður 200.000 kr. (var 300.000 kr.) 2. Styrkur vegna laseraðgerða á augum verður eftir 1. febrúar 40.000 kr. fyrir hvort auga (var 50.000 kr.) Þær umsóknir sem berast eftir 1. febrúar 2007 verða afgreiddar samkvæmt nýjum reglum óháð aldri kvittana. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð má finna á ki.is Stjórn Sjúkrasjóðs Kennarasambands Íslands Umsóknarfrestur vegna ferða skólaárið 2007/2008 er til 15. mars nk. Nánari upplýsingar á www.ask.hi.is, Landskrifstofa Nordplus/ alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, sími 525 5813. Netföng: aslaugj@hi.is, rz@hi.is. Comeníus veitir styrki til leik-, grunn- og framhaldsskóla á sviði: 1. Evrópskra skólaverkefna, a.m.k. 3 lönd í samstarfi 2. Endurmenntunar kennara, 1- 4 vikur í Evrópu 3. Þróunar námskeiða, námsefnis í evrópsku samstarfi 4. Þjálfunar fyrir verðandi kennara 3-8 mánuðir Umsóknarfrestur er til 30. mars Nánari upplýsingar á www.comenius.is, Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB/alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, sími 525 5813, netföng: rz@hi.is, teva@hi.is Danska í Danmörku fyrir íslenska grunnskólanemendur María Jónsdóttir forstöðumaður Norrænu upplýsingaskrifstofunnar. Nemendur á námskeiðinu sem haldið var 2006. Fréttir frá sjúkrasjóði Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna í grunnskólum skólaárið 2007-2008 Nordplus junior styrkir norrænt skólasamstarf

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.