Skólavarðan - 01.02.2007, Page 24

Skólavarðan - 01.02.2007, Page 24
24 SKÓLAVARÐAN 1.TBL. 7. ÁRG. 2007 Hópurinn fer í dagsferð að vori sem jafnframt er útskriftarferð. Undanfarin ár höfum við heimsótt Akranes, farið í heimsókn í leikskóla, leikið okkur í skóg- ræktinni, farið á safnasvæðið og endað daginn á veitingastað þar sem við gæðum okkur á pizzu. Skólaárið endar svo á mikilli útskriftarveislu sem börnin sjá um sjálf með aðstoð foreldra. Hverju barni er þá afhent útskriftarskirteini og því fylgja ljósmyndir og verk þeirra yfir veturinn auk möppu um líf þeirra á leikskólanum frá upphafi.“ Þótt stóru börnin fái bara að gæða sér á pizzu í útskriftarferðinni þurfa þau ekki að kvarta undan hversdagsmatnum. Eitt af því sem vekur athygli þegar Mánagarður er sóttur heim er spennandi matseðill. Að sögn Sigríðar eru frábærir matráðar í leikskólanum sem leggja áherslu á fjölbreyttan, bragðgóðan og hollan mat og eldhúsið og það starf sem þar fer fram er órjúfanlegur hluti af starfi leikskólans. Gott er að hafa mikinn mat og marga helgidaga segir íslenskt máltæki og víst er að ekki verður matseldin á Mánagarði til þess að fækka matvinnungum leikskólans nema síður sé. Gleðin til grundvallar Á vef Félagsstofnunar stúdenta er sér- svæði fyrir hvern leikskólanna þriggja. Á vefsvæði Mánagarðs má meðal annars sjá þessa setningu: „Í leikskólanum er lögð áhersla á að virkja og virða leikgleði barna og er gengið út frá því að það að leika sér sé aðalsmerki hans. Leikskólinn á að halda í þessi sérkenni, þau eru aðalsmerki hans.“ Hugmyndinni um leikinn sem aðalsmerki leikskólans er sem betur fer haldið hátt á lofti af leikskólakennurum um þessar mundir, bæði á Mánagarði og víðar. Þegar leikskólinn öðlaðist loks viðurkenningu sem fyrsta skólastigið varð vart þeirrar tilhneigingar í leikskólastarfi að laga sig um of að viðmiðum grunnskólans með mikilli skipulagningu á daglegri námskrá. Fyrir vikið var þrengt að frjálsum leik og loks var svo komið að ýmsum þótti nóg um og gagnrýndu þessar nýju áherslur, leiknum til varnar. Varnarbarátta leiksins er að snúast í sóknarleik og raunar má sjá þess merki í grunnskólum að þar er unnið í æ meira mæli á forsendum leiksins. Vinkona og samherji leiksins er gleðin sem einnig er talað um í tilvitnuninni hér að ofan og leikur og gleði spyrt saman í gömlu og góðu hugtaki: leikgleði. Gleði er eitt af einkunnarorðum Mánagarðs. Það er alltaf eitthvað heimilislegt við stúdentabyggðir og leikskólarnir á Eggertsgötunni bera þess merki að vera hluti af litlu og notalegu samfélagi sem einhvern veginn er ekki í sama tempói og borgin í heild. Foreldrarnir búa flestir í næstu húsum og sækja börnin ekki í jafnmiklum mæli á bíl og tíðkast annars staðar, sem eflaust hefur sitt að segja. Sigríður Stephensen skólastjóri Mánagarðs hvetur leikskólakennara til að kynna sér kosti þess að starfa í skemmtilegu og þægilegu umhverfi stúdentagarðanna. Í Mánagarði, Sólgarði og Leikgarði eru á annað hundrað nemendur á aldrinum sex mánaða til sex ára og talsverð samvinna er á milli skólanna. Hin eru virkni, jafnræði og samvinna. Um gleðina segir ennfremur í stefnu skólans: „Gleði barnsins er upphaf og endir alls starfs sem fram fer á leikskóla. Án gleði virkjum við ekki barnið í því námi sem hér fer fram.“ keg LEIKSKÓLAR STÚDENTA

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.