Skólavarðan - 01.09.2001, Blaðsíða 23
Haustþing og trúnaðarmannanám-
skeið
Haustþing svæðafélaga Félags grunn-
skólakennara eru merki þess að nýtt skólaár
er að hefjast og tekur starfsáætlun félagsins
mið af þeim. Þau haustþing sem haldin eru
að þessu sinni eru á tímabilinu 22. ágúst -
29. september. Formaður og varaformaður
FG sækja haustþingin heim og í haust var
víða boðið upp á það nýmæli að vera með
sérstakan viðtalstíma vegna nýja kjarasamn-
ingsins. Önnur hefðbundin haustverk eru
námskeið með trúnaðarmönnum en Hann-
es Þorsteinsson launafulltrúi FG hefur veg
og vanda af þeim eins og undanfarin ár.
Óbreytt svæðaskipting?
Aðalfundur Félags grunnskólakennara
verður haldinn 6. og 7. mars 2002 í tengsl-
um við þing Kennarasambands Íslands.
Undirbúningur er þegar kominn í gang og
hófst með skipan sérstakrar laganefndar en
á stofnfundi félagsins var samþykkt að fela
slíkri nefnd að endurskoða lögin og þá sér-
staklega 4. grein sem fjallar um skiptingu
félagsins í svæðafélög. Nefndin hefur þegar
skilað stjórn FG tillögum sínum. Hún leit-
aði eftir áliti stjórna svæðafélaga og komst
að þeirri niðurstöðu að ekki væri rétt að
breyta svæðaskiptingunni. Í tillögum henn-
ar er hins vegar lagt til að fyrirkomulagi við
kjör fulltrúa á þing KÍ verði breytt og vara-
fulltrúum í stjórnum, nefndum og ráðum
fjölgað. Nefndina skipa þau Ásthildur I.
Hermannsdóttir, Grunnskóla Ísafjarðar,
Guðlaug Guðsteinsdóttir, Varmárskóla og
Guðni S. Óskarsson, Grunnskólanum í
Hveragerði.
Leitað eftir tilnefningum til trúnaðar-
starfa
Á stofnfundi félagsins voru þau Linda
Rós Mikaelsdóttir, Álftamýrarskóla, Rögn-
valdur Einarsson, Brekkubæjarskóla og
Valborg E. Baldvinsdóttir, Snælandsskóla,
kosin í uppstillingarnefnd. Samkvæmt lög-
um félagsins á stjórnin að setja henni regl-
ur en hún fól nefndinni að koma með til-
lögur að þeim. Nefndin mun fljótlega leita
eftir tilnefningum fulltrúa í trúnaðarstöður
á vegum félagsins.
Ný skólastefna
Ný skólastefna fyrir grunnskóla verður
lögð fyrir aðalfund félagsins. Skólamála-
nefnd félagsins annast gerð hennar í sam-
vinnu við sambærilega nefnd Skóla-
stjórafélags Íslands. Á stofnþingi KÍ
var samþykktur inngangskafli í skóla-
stefnu sambandsins og aðildarfélög-
um falið að vinna kafla fyrir sitt
starfssvið. Þegar drög að skólastefnu
fyrir grunnskóla liggja fyrir verða
þau kynnt í félaginu.
Samráðsfundur og ársfundur
5. samráðsfundur Félags grunn-
skólakennara verður haldinn 6. októ-
ber en samkvæmt lögum félagsins á
stjórnin að boða formenn svæðafé-
laga til slíkra funda a.m.k. tvisvar á
ári. Á fundinum í október verður
m.a. tekin ákvörðun um fyrirkomulag
á kosningu fulltrúa til aðalfundar FG
og á þing KÍ. Þau ár sem ekki er
haldinn aðalfundur skal stjórn félags-
ins boða til ársfundar þar sem fjalla á m.a.
um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk
þess sem reikningar eru lagðir fram. Rétt
til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn,
formenn svæðafélaga, skólamálanefnd,
samninganefnd og formenn annarra fasta-
nefnda. Stjórn félagsins hefur umboð til að
kalla til fleiri fulltrúa. Ársfundur FG árið
2001 verður haldinn 2. og 3. nóvember en
þar er fjallað um starfsemi félagsins og
starfsáætlun auk þess sem reikningar þess
eru lagðir fram.
Skólaheimsóknir
Meðal þess sem stjórn FG ákvað í upp-
haf kjörtímabils var að formaður og vara-
formaður færu um landið og heimsæktu
félagsmenn í skólunum. Þessar skólaheim-
sóknir eru vel á veg komnar og stefnt er að
því að ljúka þeim á haustmánuðum.
Kjarasamningurinn með skýringar-
textum og handbók
Ný prentun af kjarasamningnum er nú
tilbúin. Settir hafa verið inn skýringartext-
ar í ramma með nokkrum greinum og
launatöflur til og með 1. janúar 2004. Aft-
ast í heftinu er að finna handbók verkefnis-
stjórnar en samstarfsnefnd KÍ og LN hefur
staðfest að í henni birtist rétt túlkun á
kjarasamningnum. Ætlunin er að dreifa
kjarasamningnum til félagsmanna.
Framkvæmd kjarasamningsins
Skrifstofu FG berast sem betur fer sífellt
fleiri ánægjulegar fréttir úr skólum þar sem
vel hefur tekist til með úthlutun úr potti og
vilja trúnaðarmenn og kennarar í þessum
skólum þakka það góðri undirbúningsvinnu
skólastjórnenda. Þeir segja að reglurnar séu
skýrar og byggi á þeim atriðum sem talin
eru upp í gr. 1.3.3 en séu ekki tilviljana-
kenndar eða óljósar. Einnig berast mörg
dæmi um sanngjarna og faglega skiptingu
verkstjórnarþáttarins en því miður virðist
sums staðar ríkja sá misskilningur að enda-
laust sé hægt að koma fyrir verkefnum í 9,14
klst. verkstjórnarþætti skólastjóra. Auk þess
er verið að festa skiptinguna eins fyrir nán-
ast alla kennara skólans og til langs tíma í
senn, jafnvel alls skólaársins, þrátt fyrir að í
handbók með kjarasamningi segi að nýting
tímanna geti verið breytileg frá viku til viku
eða mánuði til mánaðar. Rétt er að ítreka að
launaflokkar úr pottinum eru hluti af grunn-
launum kennara en lengja ekki vinnutím-
ann. Að gefnu tilefni er bent á að allir eiga
rétt á að vita launaflokkaröðun kennara því
að almenn upplýsingaskylda gildir um
launaflokkaröðun opinberra starfsmanna.
Haustið verður því annasamt enda nýr
samningur að komast til framkvæmda og
annar aðalfundur Félags grunnskólakennara
eftir fáeina mánuði. Þar verður litið um öxl
og lagt mat á hvernig til hefur tekist þetta
fyrsta kjörtímabil félagsins.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
formaður Félags grunnskólakennara
Kjaramál
26
eru efst á starfsáætlun Félags grunnskólakennara þetta haustið
Grunnskóli
Framkvæmd kjarasamnings
og undirbúningur fyrir aðalfund FG
Félag grunnskólakennara hóf skólaárið með því að
bjóða grunnskólanemendur velkomna í skóla. Þetta
er liður í kynningu á félaginu og nýju merki þess.