Skólavarðan - 01.10.2014, Side 51
FÉLAGINN ELFA LILJA GÍSLADÓTTIR (50)
TÓNLISTARKENNARAR ÞURFA AÐ SPÝTA
Í LÓFANA
FÉLAGINN OKTÓBER 2014
Elfa Lilja Gísladóttir er tónlistarskóla-
kennari og starfar í Tónskóla Sigur-
sveins. Hún hefur undanfarin ár unnið
að Upptaktinum, tónsköpunarverðlaun-
um barna og ungmenna, og á því verður
engin breyting í vetur. Hún segir tónlist-
arskólakennara þurfa að spýta í lófana í
baráttunni fyrir betri kjörum.
Elfa Lilja Gísladóttir 50 ára, fædd 28.
apríl 1964
HVER: Tónlistarkennari í Tónskóla
Sigursveins.
Hvernig leggst komandi vetur í þig?
Veturinn leggst vel í mig. Ég var að fá
25 nýja efnilega 7 ára nemendur hjá
Tónskóla Sigursveins sem ég hlakka
til að vinna með. Eins hlakka ég til
annarra verkefna svo sem Upptaktsins,
sem er tónsköpunarverðlaun barna
og ungmenna, og samstarfsverkefnis
Tónskóla Sigursveins og um 20 leikskóla
í höfuðborginni. Báðum þessum frá-
bæru verkefnum lýkur með uppskeru á
opnunarhátíð Barnamenningar í Hörpu
í apríl.
Félag tónlistarskólakennara á, eitt
aðildarfélaga KÍ, eftir að semja um kaup
og kjör. Hvað finnst þér um það? Mér
skilst á samninganefndinni okkar að það
ìXU¿JDOGUDìXOXUWLODèHLWWKYDèìRNLVW
í rétta átt. Ég segi bara eins og Ragnar
Reykás... mamamama bara áttar sig ekki
á þessu. En í alvöru, þetta er til hábor-
innar skammar og okkar samninganefnd
ekki öfundsverð. Tónlistarkennarar
þurfa vissulega að fara að spýta í lófana.
Hvaða þekktu persónu hefðirðu viljað
hafa sem kennara? Vigdísi Finnboga-
dóttur, ekki spurning. Einnig væri
frábært að læra af Daniel Barenboim, og
MYND: ANNA FJÓLA GÍSLADÓTTIR