Ský - 01.07.1990, Síða 24

Ský - 01.07.1990, Síða 24
julio cortózar ÖRLÖG DROPA Æ, ég veit þaö ekki. Sjáöu til, þaö er afleitt hvaö rignir mikiö. Þaö er ekkert lát á þessari úrkomu, álengdar mött og grá, hér í stórum dropum sem falla á svalirnar þéttir í sér og haröir, þaö heyrist plaff þegar þeir skella hver á eftir öömm einsog löömngar, þvílíkt og annaö eins. Nú myndast lítill dropi sem hangir neöan úr gluggakarminum, hann titrar þarna ennþá og ber viö himininn sem splundrar honum í þúsund kæfö ljósbrot, hann stækkar, riöar til falls, nú er hann alveg aö detta en hann dettur samt ekki, ekki ennþá. Hann læsir klónum í karminn, hann vill ekki detta og þaö sést greinilega hvernig hann bítur sig fastan meö tönnunum meöan kviöurinn belgist út, hann er strax oröinn stóreflis dropi sem hangir tignarlega neöan úr karminum. Þangaö til allt í einu þúbb, þarna fer hann, plaff, búinn aö vera, oröinn aö engu, bleytuklessa á marmaranum. En svo em aörir sem stytta sér aldur og em fljótir aö láta sig húrra niöur, þeir kvikna á karminum og láta sig umsvifalaust detta, mér finnst ég finna titringinn þegar litlu lappirnar spyrna sér af staö, ópiö sem ofurselur þá vímu fallsins og eyöingarinnar. Döpru dropar, hnöttóttu, saklausu dropar. Bless, dropar. Bless.

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1193

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.