Ský - 01.07.1990, Page 25
ský
julio cortózar
HEGÐUN SPEGLA Á PÁSKAEYJU
Þegar spegli er komið fyrir á vestanveröri Páskaeyju seinkar hann sér.
Þegar spegli er komiö íyrir á austanveröri Páskaeyju flýtir hann sér.
Meö hárnákvæmum mælingum er hægt aö finna út á hvaöa punkti
þessi ákveöni spegill sýnir réttan tíma en þaö þarf ekki endilega aö
merkja aö þessi staðsetning sé sú sama fyrir einhvern annan spegil því
gallinn við spegla er aö þeir em búnir til úr ýmsum efnum og haga sér
nákvæmlega einsog þeim sýnist. Því var þaö að þegar Salomon Lemos,
mannfræöingur og styrkþegi Guggenheimstofnunarinnar, leit í
rakspegilinn sinn, staddur á austurhluta Páskaeyju, sá hann sjálfan sig
dáinn úr taugaveiki. Á sama andartaki lá lítill spegill milli steina
vestantil á Páskaeyju þar sem mannfræðingurinn haföi gleymt honum
og sýndi mynd (sem enginn sá) af Salomon Lemos í stuttbuxum á leiö
í skólann, því næst birtist Salomon Lemos nakinn í bala, sápaöur af
pabba sínum og mömmu, síðan Salomon Lemos að segja aho viö
mikinn fögnuö Remediosar frænku sinnar í sumarhúsi f jölskyldunnar
í héraðinu Trenque Lauquen.