Ský - 01.07.1990, Side 35

Ský - 01.07.1990, Side 35
TRÖLLIÐ í FELLAHELLI í blokk einni í Efra-Breiöholti bjuggu eitt sinn karl og kerling. Þau áttu sér þrjár dætur barna. Hét ein Ása, önnur Signý, þriðja Helga. Hún var þeirra yngst og höföu karl og kerling á henni litlar mætur, en þeim mun meiri á eldri dætrunum tveim; leyföu þeim jafnan aö horfa á framhaldsþætti á laugardagskvöldum en Helgu létu þau sjá um sameignina. Þaö bar til eitthvert laugardagskvöld aö Ása kom aö máli viö foreldra sína og baö leyfis aö fara í Fellaheili aö skemmta sér. Heldur voru karl og kerling treg til í fyrstu, enda skemmtilegur þáttur um kvöldið, en aö Iokum varö þaö úr aö Ása mætti fara. Býr hún sig nú í sitt besta skart og segir ekki af ferö hennar fyrr en hún kemur í Fellahelli. Er hún hefur skemmt sér þar nokkra hríö kemur til hennar rummungur einn mikill, tröllvaxinn og heldur ófrýnilegur. Hann gefur sig á tal viö hana og sþyr hvort hún vilji dansa viö sig. Hún tók því fálega. Þá sþyr hann hvort hún vilji kyssa sig. Hún kvaö nei viö. Loks sþyr hann hvort hún vilji fara heim meö sér. Hún þvertekur fyrir þaö. Veröa þeirra skipti ekki lengri við svo búiö. Lýkur nú skemmtan- inni og heldur Ása heimleiöis. Veit hún þá ekki fyrri til en þrifiö er í öxl henni og hún dregin inn í skúmaskot nokkurt. Fer engum sögum af þeirri viöureign fyrr en hún fær sig lausa um síöir og komst svo viö illan leik heim í foreldrahús. Leiö nú svo vikan aö Ása fer ekki út. Og er laugardagskvöld var komið spyr Signý hvort hún fái ekki aö fara í Fellahelli úr því aö Ása fer ekki. Karl og kerling em nú öllu tregari en í fyrra sinnið, enda tveir

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1193

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.