Ský - 01.07.1990, Page 38
Óskar Árni Óskarsson gaf út í fyrra abra ljóbabók
sína, Einnar stjörnu nótt, og von er á nýrri bók frá
honum meö haustinu. Bandaríkjamanninn Richard
Brautigan (d. 1984) þekkja margir sem sagnaskáld
en hann var ekki síöur athyglisvert ljóöskáld, ljóöiö
sem hér er birt er úr safninu Loading mercury with
a pitchfork. Sigfús Bjartmarsson sendi frá sér þriöju
ljóöabók sína, Án fjaöra, á seinasta ári. Julio
Cortázar (d. 1984) var Argentínumaöur en bjó
lengst af í París, framúrskarandi smásagnahöfundur
og lét einnig eftir sig nokkrar mjög afgerandi
skáldsögur. Þeir skringilegu prósar sem hér birtast
eru úr bókinni Historias de cronopios y famas
(Sögur af tímagopum og orösporum), sem ef til vill
má kalla smásagnasafn. Gunnar Harbarson hefur
gefiö út tvær ljóöabækur, sú seinni heitir Smárar og
götusöngvar, og kom út í hittifyrra. Báröur R.
Jónsson hefur veriö aö birta ljóö í tímaritum
undanfarin misseri. Berglind Gunnarsdóttir er í
þann veginn aö gefa út þriöju ljóöabók sína,
Ljósbrot í skuggann. Marína Tsvetaeva (d. 1941)
var önnur af fremstu skáldkonum Rússa á þessari
öld, hin var Anna Akhmatova. Jón Stefánsson hefur
sent frá sér tvær bækur, sú seinni kom út í vetur og
heitir Úr þotuhreyflum guöa. Ljóö hans hér er ort
viö ljósmynd sem Einar Falur Ingólfsson tók.