Kauphöllin - 01.12.1932, Side 3

Kauphöllin - 01.12.1932, Side 3
KAUPHOLLIN 3 KAUP- Auglýsingarnar og fólkið “M Eftir Sigurð skúlason. r-i fiilliiiilll Kauphöllin er send yður gefins. — Kynnið yður hvað hún hefir að flytja. — Fyrir utan auglýsingar, sem eiga að benda yður á, hvar er hagkvæmast að gera kaup fyrir jólin og endranær og hvernig innkaupum til heirnilisins er best borgið, flytur blaðið greinar eft- ir hr. magister Sigurð Skúlason og dr. Björn Björnsson. Báðar hafa þessar greinar efni að flytja, sem við kemur öllum almenningi. Grein Sigurðar mag- isters er um viðhorf yðar og auglýsing- anna, og grein dr. Björns fjallar um viðskiftahöft og fleira. Hefir um þessi málefni lítið verið ritað á íslenzku. Mál- efni það, sem greinin hefir að flytja er umhugsunarefni fyrir allan almenning. Tvær sögur eru einnig í blaðinu; eru þær úr erlendu stórborgarlífi, en hafa góðan jólaboðskap að færa. GEYMIÐ BLAÐIÐ. Þér hafið sjálfsagt tekið eftir því, að á fyrstu síðu', í hægra horni efst, er númer. — Öll blöðin eru með hlaup- andi númerum, og verður dregið um þau á Gamlársdag. — Það númer er kemur upp, fær kr. 100.00 í verð- Iaun. Eigandi þess blaðs er hefir það númer fær peningana gegn því, að hann sýni blaðið óskemmt fyrir miðj- an jan. 1933. Útgef. og ábyrgðarm.: S. K. og G. Ó. ísafoldarprentsmiðja h.f. Vér Iifum á öld, þegar allt á að selj- ast. Vélamenningin, sem fyllt hefir heiminn af alls konar vörubirgðum og gerbreytt öllum samgöngum, hefir gersamlega vísað á bug gamla nurl- arahættinum, sem kom kaupmönn- um áður fyr til þess að lúra á vörum sínum eins og ormar á gulli. í stað þess að láta kaupendurna leita að því, sem þá vanhagar um, keppast kaup- sýslijmenn nú við að raða vörum sín- um sem smekklegast í rúmgóða búð- arglugga, sem blasa við fólki, er það gengur fram hjá verzlununum. Gömlu, óvistlegu búðargluggarnir hafa á til- tölulega skömmum tíma orðið að þoka fyrir veglegum gluggum á almanna- færi. Jafnvel hér norður á íslandi eru vörusýningar sumra kaupsýslumanna fyrir jólin orðnar að list, og fólkið skemmtir sér prýðilega við að horfa á margvíslegar vörusýningar, sem setja þá svip sinn á Reykjavík og skapa hér umferð og líf. Á þessari miklu samkeppnisöld er auglýsingin stórveldi. Hún er sá boð- skapur, sem kaupsýslumenn flytja viðskiptavinum sínum. Og auglýsing- in er miklu meira. Hún er ein af meg- inþáttum blaðamennsku nútímans og um leið hyrningarsteinn blaðanna. Hún vitnar um gróandann í atvinnu- lífinu, hvort sem hún er ýkt eða sönn. En ef hún i-atar hinn gullna meðal- veg og hæfir markið eins og vera ber, mun fólkið brátt læra að meta hana. Þá hefir hún leyst hlutverk sitt af hendi: orðið fólkinu til gagns cg kaupsýslumönnunum til sóma. Það er ekki til neins að ætla sér að afneita almætti auglýsinganna, hvort sem þær bii’tast oss í vörusýningum, Ijósaskiltum stórboi'ganna eða í dag- blöðunum. Allur heimui'inn er ein alls- herjarauglýsing, og hver einasti kaup- sýslumaður veit, að góðar vörur selja sig ekki sjálfkrafa. Auglýsingin verð- ur að ryðja þeim braut til fólksins. Þeir menn hér á landi, sem hafa ímugust á auglýsingum, ættu að hugs;. til íslenzku vikunnar í fyrra vetur, þeg- ar sjálfbjargar- og sjálfstæðisviðleitni íslenzkra iðnaðar- og kaupsýslumanna tók einhuga. auglýsinguna í þágu sína. Iðnsýningin mikla hér í Reykjavík síð- astliðið vor, sem megnaði að vekja mörg hundruð manna til skilnings á iðju- manndómi, þjóðar vorrar, er ein hin stórfelldasta auglýsing, sem hér hefir sézt. Hún var sönn, og því tókst henni að inna merkilegt hlutverk af hendi. íslenzk auglýsingastarfsemi er að vísu enn á byrjunarskeiði, og á því fyr- ir sér að breytast. En ef íslenzkir kaup- sýslumenn bera gæfu til að tileinka sér hið bezta úr auglýsingatækni nútím- ans og gera sér það að metnaðarmáli, að láta auglýsingar sínar votta kaupend- um smekkvísi, drenglyndi og vinarhug, mun hin íslenzka auglýsingastarfsemi ná tilgangi sínum: Hún mun færa selj- endur og kaupendur nær hvora öðrum, greiða góðum vörum götu til sem flestra notenda og ef bezt má verða — stuðla að eðlilegri verðlækkun. HísaAðlrln. sem ávalt er beztl dómarinn um verð og vörugæðl kaupir Borðsalt í heildsölu: Magnús Th. S. Blöndahl h.f, Reykjavik. I S V A N A smjörliki er strokkað og blandað ca. 13 % af nýjum og góðum rjóma, sem samsvarar ca. 5 % af smjöri. Ástæðurnar til þess að vér strokkum rjómann með smjörlikinu eru þessar: 1. Ef smjörið er strokkað i, verður smjöriikið allt jafnara en ef smjör og smjör- líki er elt saman, eftir að strokkun hefir farið fram. 2. Smjör og smjörliki er þá hvort tveggja alveg nýtt og heldur sér þvi betur en ef eldra smjöri er blandað í. 3. Það er minni hætta á því, að nokkur óhreinindi, bakteríur og annað, geti komist i smjöriíkið, ef rjóminn er strokkaður í, en ef smjör er hnoðað sam- an við. 4. Smjörlikið verður bragðbetra. Galiinn við að strokka og blanda rjóma í smjörlíkið er aðeins þessi: Það verður mun dýrara að strokka rjóma í smjörlikið, en að hnoða smjör- ið i það. HÚSMÆÐUR, sem notið Svana smjörliki! Athugið, að bera það saman við annað smjörliki og munið siðan að taka það fram við kaupmanninn, hvaða tegund yður líkar best, og sjá svo um, að þé^fái^þaðafgreitt. Svana-smjörlíki í jólabaksturinn. Þaö gefur besta 5miörlíkisgerðin 5uanur Linöargötu 14. Slmi 1414 (3 Ifnnr).

x

Kauphöllin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kauphöllin
https://timarit.is/publication/1198

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.