Kauphöllin - 01.12.1932, Page 10
10
KAUPHÖLLIN
hyggjur geta engin góð né göfgandi á-
hrif haft á mannlegt eðli, það er ó-
mögulegt. Lífið er ekki annað en happ
eða .óhapp, og sumir vinna mikil verð-
laun í hlutaveltu lífsins; vertu ekki
heimskingi, Gerhard, og vertu ekki að
tala um freistingu, en skoðaðu þetta
eins og mikla hamingju, sem bundið
getur enda á bágindi okkar, ef þú rétt-
ir út höndina og tekur á móti henni“.
„Kæra María, eg hefi í seinni tíð
tekið eftir því, mér til sorgar, að bág-
indi okkar 'hafa veikt traust þitt á
guði og mönnum“, mælti Gerhard. —
„En heldurðu í raun og veru, að nokk-
ur blessun mundi fylgja þessum pen-
ingum, ef við héldum þeim?“
María hló gremjulega. „Hve mörg
tár, hve margir svitadropar heldurðu
að loði við peninga margra manna, er
hafa orðið auðugir með okri eða öðr-
um gróðrabrögðum og engin ó-
blessun virðist falla á slík auð-
æfi. Þvert á móti, þessir menn
njóta lífsirts í fullum mæli, búa í höll-
um, aka í skrautvögnum, njóta virð-
ingar bæði trúaðra manna Og vantrú-
aðra, og þeir myndu gera gys að
hverjum þeim manni, sem segði þeim
að skammast sín fyrir auðinn ; en þú
getur eignast þessar 30 þúsundir doll-
ara, án þess að hafa bakað fátækling-
um nokkur tár eða andvörp með
þeim“
,,María“, sagði Gerhard, „fyrir öll
aúðæfi þessa heims vil eg ekki missa
meðvitundina um það, að vera ráð-
vandur maður“.
,,Ó, Gerhard, þú getur ekki haft of-
an af fyrir þér með meðvitundinni um
ráðvendni þína. Hvað hefir þér orðið
ágengt með henni? Með henni höfum.
við lent í fátækt. Við skulum líta yf-
ir liðna æfi þína. Þú ert dugandi verzl-
unarmaður. Þú talar og ritar þrjú
tungumál, þú hvorki drekkur né spil-
ar, og þú lifir aðeins fyrir atvinnu þína
og fjölskyldu. Þú hafðir góða stöðu,
húsbóndi þinn hafði í hyggju að gera
þig að meðeiganda sínum. Allt í einu
kemur tengdasonur fram á leiksviðið;
hann verður eigi aðeins meðeigandinn,
heldur bolar okkur algjörlega burtu,
af því að hann vill koma vini sínum
að. Þetta voru launin fyrir dygga þjón-
ustu þína í þrjú' ár. Þú ert svo heppinn
að komast að annarri góðri stöðu. Þú
kemst í meira og meira álit, og enn á
ný ertu rétt orðinn meðeigandi, en þá
verður verzlunin fyrir miklum óhöpp-
um og lendir í gjaldþroti; síðan hefir
þú sótt um allt, sem hefir losnað, en
ekkert getað fengið, því að alls staðar
er fullt af umsækjendum. Það hjálpar1
ekkert, þótt þú hafir ágæt meðmæli,
því að menn þeir, er þú leitar til, hafa
íllan gáning á því, hve lengi þú hefir
verið atvinnulaus; þeim geðjast ekki
að þér, af því að þú ert svo lélega til
fara, en það fer æ versnandi. Þú tek-
ur að þér hvaða starf sem -þú getuh
fengið, svo sem ritstörf fyrir mála-
færslumenn, en þessi óvissu, illa laun-
uðu störf, og það lítið, sem eg get inn.
unnið í höndunum, er ónóg til viður-
væris handa okkur. Við höfum neyðst
til að flytja úr einu húsinu í annað og
allt af reynt að fá lægri og lægri húsa-
leigu, þangað til loks við erum komin
í þetta lélega þakherbergi. Jafnvel það
verður ef til vill of dýrt fyrir okkur.
Eg veit ekki, hvernig við förum að
borga húsleiguna fyrir þennan mánuð.
Við verðum rekin út á stræti um há-
veturinn. Hvað verður þá af okkur?
Ó, Gerhard, hugsarðu ekkert um litlu
börninþín? Við erum yfirgefin af guði
Kaupum tómar flöskur
í Nýborg á mánudögum og þriðjudögum.
. ^
Seljum nú í fyrsta sinn
hjer á landi hinar afar sterkbentu og þykku
eikar-Sherrytunnur á 15 krónur. Er þetta
10 kr. lægra verð, en hægt hefir verið til
þessa að fá fyrir tunnurnar erlendis.
Bökunardropar Á. V. R.
eru altaf ómissandi, en þó einkum fyrir jólin.
Afengisverslun ríkisins.
i «3
74
uerður kaffið að uera eins gott og hcEgt er.
er bragðgott, sterkt og ðrjúgt.
Munið það, þegar þér kaupið kaffi til hátíðarinnar,
Kaup-
bætis-
miði
hverjum
pakka.
Gegn ákveðinni miðatölu fáið þjer ó k e y p i s
falleg lakkeruð skrautbox. Um 4 tegundir að
velja. Myndin sýnir eitt af þeim.
NÝJA KAFFIBRENSLAN.
AÐALSTRÆTI.
All-Bran, Corn Flakes,
Rice Krispies og Pep
er fæða allra,
eldri sem yngri.
Notið
Kellogg’s vörur
daglega.
Fást í öllum
verslunum landsins.
AU-BRAN
fcujn rotMX
ALL-BRAN
Ready-to-eat
Also Makers of
KELLOGG’S
CORN FLAKES
Sold by all Grocers—in the
Red and Green Package
927