Kauphöllin - 01.12.1932, Blaðsíða 14
14
KAUPHÖLLIN
Wvernig við erum stödd; vera má, að
hann hafi eitthvert starf handa þér í
bankanum“.
,»Eg gjöri það sem eg get“, svaraði
Gerhard, „en reiddu þig aðeins ekki
um of á veglyndi auðmanns; biddu
drottinn innilega fyrir okkur öllum“.
Þegar Gerhard í annað sinn stóð
frammi fyrir hinu mikla bankahúsi,
hafði hann ekkert hugboð um, að
þetta mundi fá svo góðan enda.
Gekk hann fram og aftur stundarkorn,
og var að_ hugsa um að snúa heim aft-
ur með peningana.
Þessi barátta stóð samt sem áður að-
eins fá augnablik. Hið góða bar sigur
úr býtum, og hann gekk. einbeittur inn
í bankann.
Aftur stóð hann inni í herbergi
miljónaeigandans. Hann var einmitt
að lesa bréf, er hann hafði fengið með
fyrstu hraðlest, og hann var svo niður-
sokkinn í að lesa það, að hann veitti
því ekki eftirtekt, að gestur var kom-
inn inn til hans. Mót venju sinni las
hann bréfið tvisvar yfir. Bréfið var á
þessa leið:
„Kæri hr. Barret!
Undirritað nafn fær eigi vakið ann-
að en gremju í huga yðar. Það eru 15
ár síðan eg hafði á hendi ábyrgðar-
mikið starf á skrifstofu yðar. Eg mis-
notaði traust yðar og stal skammar-
iega frá yður. Þegar eg sá, að óhjá.
kvæmilegt var að stuldurinn kæmist
upp, flýði eg til Norður-Ameríku. —
Eftir að eg hafði eytt hinum illa
fengnu peningum, neyddist eg til að
vinna mér brauð með súrum sveita, og
eftir það hlaut eg lengi að berjast fyr-
ir tilveru minni; en að lokum brosti
hamingjan við mér, svo að nú get eg
komið aftur til ættlands míns, og skil-
að aftur upphæð þeirri, er eg hafði stol-
ið, og nemur hún með vöxtum 30 þús-
undum dollara. Eg ætlaði að skila pen-
ingunum sjálfur í gærdag, og eg stóð
lengi á báðum áttum fyrir utan bank-
ann, en eg fyrirvarð mig fyrir að koma
fram fyrir yður, því eg verð að játa, að
eg álít eigi að eg hafi afplánað æsku-
brot mitt, þó eg skili yður aftur hinu
stolna fé. Fyrir því kaus eg heldur að
biðja ókunnugan mann að afhenda yð-
ur peningana.
Að endingu bið eg yður að fyrirgefa
órétt þann, er eg hefi gjört yður, og
er yðar
Júlíus Lyder“.
Loksins leit bankastjórinn upp úr
bréfinu og kom auga á Gerhard. Hann
varð sýnilega forviða, er hann sá, hver
kominn var, og sagði: „Ef mér skjátl-
ast ekki, þá voruð þér hér í gær-
kvö\di“.
„Já, herra bankastjóri," svaraði
Kostlín, „eg kem aftur í dag með bögg-
ulinn, sem þér vilduð eigi veita mót-
töku í gærkveldi. Eg gat ekki fundið
aftur ókunna manninn, sem bað mig
fyrir böggulinn; eg opnaði hann því
heima hjá mér, og nú, er eg veit hvað
í honum er, þá er eg sannfærður um,
að þér takið á móti honum. Gjörið þér
svo vel að telja upphæðina, það eru
30 þúsundir dollara“. Með þessum
orðum rétti hann böggulinn að banka-
stjóra. Bankastjóri athugaði Kostlín
með einkennilegu, hvössu og rannsak-
andi augnaráði, taldi peningana í
hægðum sínum og lét þá niður í skrif-
borð sitt.
„Það stendur heima“, sagði hann'
og leit aftur á Kostlín með sama
augnaráði og fyr; „þakka yður fyrir“.
Gerhard hafði ekkert að gjöra þar
Heildverzlun
Aksel Heide
Simi 3021. Hafnarstr. 20.
Grænmeti
Ávextir
Jólatré
Sultuð
Græskar
og
Asíur
Munið
MALIN
þegar þér gerið jólainnkaup.
Úrvalið er mikið, margt
nýtt, varan góð.
Prjónastofan
MALIN
Laugaveg 20 B.
(Gengid inn í rafmagnsbúðina).
Gerduft
Bökunardropar
Búðingsduft
Creampúlver
Carry
e8
u
■>»
m
K5
4*
•i-h
W
T3
OJ
C8
<u
43
s
na
(D
a
“O
bc
eð
u
ca
W
cð
o
<z>
u
S
u
eö
s
u
x
ts
Eggjaduft
Vanillesykur
Límónaðiduft
Kryddrörur
Brjóstsykur
Karamellur
Súkkulaði
Bestit meðmæíín með vörttm frá oss ertí ekkí á þessarí siðti.
Hin bestu meðmæli, sem nokkurt fyrirtæki getur haft
með vörum sínum, er stöðugt vaxandi sala. Árlega höfum
vér aukið umsetning vora, svo framleiðsla og heildsala
hafa þar af leiðandi aukist stórkostlega. Vjer framleiðum
ekki vöru með augnabliks söluágóða fyrir augum. Vjer
framleiðum hana og seljum þannig, að vjer getum fyllilega
treyst því að kaupandi hennar verði fastur viðskiftavinur vor.
H.f. Efnagerð Re ykjavíkur.
Skósverta
W
©-
cn
O'
€
*<
O
<p
ss
o
W
&
Ox
Ö
U)
PJ'
TS
c
hi
“<5 Túttur Tannburstar Litartöflur Fiskilim
<5
•i
fS
Skóbrúna Skógula Lakkáburður Gljávaz
H
sj
m
ö
o
1-1
<D
sa
3
X
sj-
3
3
cn
X
PJ>
3
©:
13
X
O:
►i
Ö
S
SL
cn
o
>-t
(Þ
PJ.
3
Ofnsverta
Skúriduft
Geymissýra
Eimað vatn