Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1874, Qupperneq 42
28
3*2
23ja
núvbr.
»3
24ða
núvbr.
cigi ált viö aðra cn þá, sem hafa fast aðsctr í hreppnum. lírlausn þeirrar spurningnr,
hvort Magnús Magnússon sé skyldr að greiða aukaútsvar í Leiðvallahreppi fardagaárið
1871—72, er því komin nndir því, hvort sagt verði, að hann á hinu nefnda ári hafl haldið
aðsetri sínn í Leiðvallahreppi, þó hann hafi í fardögum 1871 flutst búferltim til Skaptár-
dals, og heflr þetla þótt leiða af því, áð Magnús, þá er hann fór frá Sandaseli eigi sleptí
þegar byggingarráðum á þessari jörð, en hélt þeim hið næsta ár á eptir, lét nokkur hjú
sín hirða um jörðina, og skildi eptir á henni þann fénað, sem nauðsynlegr var þessum
hjúum til framfæris. þelta atriði hefði nú, ef til vill, getað heimilað Leiðvallahreppi að
jafna aukaúlsvari á þann vinnumann, er fyrir hönd Magnúsar sá um jörðina, en það
virðist eigi eilt út af fyrir sig geta komið því til leiðar, að Magnús verði álitinn bú-
andi f fleiri en einni sveit, og það verðr því eigi betr séð, en að hann með því, að flylj-
ast í Iileifahrepp hafi slept aðsetri sínu í Leiðvallahreppi.
Samkværnt þessu er hér með breytt úrskurði amtsins á málinu, en með þvf, að
spurning sú, hvort maðr sé gjaldskyldr í einhverri sveit, eptir hlularins eðli og löggjöf-
inni — sbr. 24. grein tilsk. um bæjarstjórn í Reykjavík frá 20. apríl 1872 — sætir full-
naðarúrlausn dómstólanna, verðr að tjá Leiðvallahreppi, að ekkert sé því til fyrirstöðu, að
hann, ef liann vill ekki una við úrskurð landshöfðingjans á málinu, leiti dóms og laga
um það.
Auglýsing um póslmálefni.
Iláðgjafinn fyrir ísland hefir 7. þ. m. samþykt eptirritaðar breytingar á reglum þeiro,
sem gjörðar eru í 2., 7. og 8. grein auglýsingar frá 3. maí 1872 um setningu póstaf-
greiðslustaða og bréfhirðingarstaða, um laun fyrir sýslanir þessar og um aukapóslferðir.
1, að aukapóstferð verði stofnuð frá Akreyri til Siglufjarðar og bréfhirðing í Siglufirði.
2, að póslafgreiðslan fyrir Skagafjarðarsýslu verði flutt frá Miklabæ að Víðimýri, en
að bréfhirðing verði stofnuð á Miklabæ,
3, að póstafgreiðslan á Miklaholti verði flutt að Ilauðkollssslöðum.
4, að bréfhirðingin í Eydölum verði flult að ílöskuldsstöðum í Breiðdal.
5, að bréfhirðingin á Felli í Dyrhólahreppi verði flutt að Vik í sama hreppi,
6, að bréfhirðingin á Friðriksgáfu verði tekin af.
7, að launin fyrir neðannefndar póstafgreiðslur verði cptirleiðis þannig :
a, að ísafirði.........................................35 rd.
b, á Bæ ...............................................30 —
c, að Djúpavogi........................................30 —
d, á Ilelgaslöðum......................................25 —
e, á Sveinsstöðum......................................25 —
Breytingar þessar öðlast gildi frá 1. janúar 1875.
Landshöfðinginn yfir íslandi, Ileykjavík 24. dag nóvbrmán. 1874.
Hilmar Finscn.
Jón Jónsson.