Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1887, Blaðsíða 49
Stjómartíðindi 1887. C. 12.
45
skýrsla hafa gefin verið fram að þeim tíma, heldur eingöngu um hin eiginlegu glæpamál.
þetta mun komið hafa til af því, að minnsta kosti með fram.að kgsbr. 11. apríl 1781 gaf
sýslumönnum í vald, að skera úr ýmsum lögreglumálum, svo og nokkrum öðrum málum,
þannig, að úrskurðum sj’slumanna varð eigi skotið til æðra dóms1. En yfirdómstilsk. 11.
júlí 1800, 10. gr., gjörði mikla breyting á kgsbrjefinu 11. apríl 1781. Fyrir því að flestir
sýslumenn sunnan og vestan og sumir þeirra norðan og austan greina enn þá skýrslur
sínar um einmenu (privat) lögreglumál í þrennt, eptirýmsum lagaboðum, hlýt jeg að geta
hinna helztu þeirra að nokkru. Tilsk. 20. okt. 1819 um lögreglumeðferð á meiðyrða- og
meingjörðamálum var send hingað til amtmannanna með ksbr. 30. okt. s. á. þess verður
að geta, að það er eigi með öllu rjett hermt, er segir í athugasemdinni framan við tilskip-
un þessa í »Lovs. f. Isl.«, að lögstjórnarráðið í brjefi 28. ágúst 1830 til fjárstjórnarráðsins
sagt hafi, að löggilding tilskipunar þessarar væri hvorki hentug hjer nje nauðsynleg. Lög-
stjórnarráðið kveðst ætla, að sleppa skuli 3., 5. og 6. grein, en að 1., 2. og 4. grein
hennar eigi hjer við, með þeim viðauka, að manni sje frjálst, ef hann svo vill, að leggja
mál sitt fyrst til sáttanefndarinnar, eða leggja það þegar í sætt og dóm lögreglustjórans
(sjá og tilsk. 15. ágúst 1832, 3. gr.). Enginn efi getur því á leikið, að tjeðar greinar í
tilsk. 20. okt. 1819 eru hjer gildandi og hafa verið það2; en ákvæðin um móðganir þær í
orði og verki, er hinir móðguðu eiga sök á, eru nú að finna í hegningarlögunum 25. júní
1869, einkum í 21. kap. Opið brjef 12. janúar 18213 hljóðar um almenn lögreglumál, og
vitna sýslumenn í skýrslum sínum til 3. gr. þess, ef amtmaður úrskurðar fjesektina. En
nær liggur þó að vitna til 10. gr. í tilsk. 24. janúar 1838, með því að efni 3. gr. opna
brjefsins 12. janúar 1821, er tekið upp í 10. gr. tilsk. 24. jan. 1838 miklu greinilegar og
enda aukið.
Með ksbr. 29. marz 1828 gjörðist hin mesta breyting á löggæzluskýrslum voruin.
I brjefi þessu kveðst lögstjórnarráðið vilja fá svo fullkomið yfirlit sem auðið sje yfir öll
afbrot í landinu, stærri sem smærri, tölu þeirra og tegundir, fyrir því að slíkar skýrslur
gefi mönnum næsta mikilvægar leiðbeiningar til að meta siðsemishagi þjúðarinnar og starf-
semi hcgningarlaganna. Brjéfi þessu fylgja þrjú skýrslusnið: eitt í 10 dálkum handa
glæpamálum, annað í 6 dálkum handa almennum lögreglumáluin, og hið þriðja í 5 dálk-
um handa einmennum lögreglumálum. 1 brjefi þessu var og amtmönnum jafnframt boðið,
að skýra frá þeim almennu lögreglumálum, er þeir hefðu úrskurðað fjesektirnar dómlaust
samkvæmt opnu brjefi -\2- 1821, svo og hórsökum þeim, er þeir lagt hefðu úrskurð á eptir
tilsk. 24. sept. 1824, 4. gr.
1 brjefi 6. desbr. 1831 til amtmanna, beiðist lögstjórnarráðið, aö skýrslurnar um
glæpamálin sjeu auknar svo, að dómendurnir skýri frá hvern dag frumpróf var byrjað,
hvern dag stefut málinu og hvern dag hjeraðsdómur uppkveðinn, svo og hvenær fullnægt
væri hjeraðsdóminum, eða æðra dómi eða konunglegum úrskurði, ef hann væri lagður á
málið. 1 ksbr. 4. júní 1831 til yfirdómsins biður lögstjórnarráðið yfirdóminn að gefa
skýrslu eigi síðar en í lok júnímánaðar ár hvert um glæpamál þau, er uæsta ár fyrir
dæmd voru í hjeraði, og þaðan stefnt til yfirdómsins, með því að amtmennirnir gætu
stundum eigi greint frá úrslitum slíkra mála í ársskýrslum sínum. 1 brjefinu 6. desbr.
1) Um gildi kgsbr. 11. apríl 1781 og um lögregluboð vor má lesa í Nefndarfundatíð. 1839,
bls. 23—24 og 34—38, sbr. 16. og 18. bls. og ksbr. 24. marz 1840.
2) Sem vott |>ess að útgefendur Lagasafnsins hafi og álitið greinar þessar lög lijer má það
og telja, að þeir hafa tekið i safnið tilsk. 8. marz 1799 um skyldur hjeraðsdóraara í lögreglu- og
rannsóknarmálum, sem 4. gr. tilsk. 20. okt. 1819 vitnar til.
3) það hlýtur að vera prentvilla eða ritvilla, er stendur i athugagreininni framan við
þetta opna brjef, að það sje öliafandi (,,uanvendelig“) hjer á landi, með því að ksbr. 24. marz 1840
segir hið gagnstæða, sjá og ksbr. 29. marz 1828 og 29. sept. 1842.