Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1891, Blaðsíða 34
32
Með vtjöru* er bæði talin koltjara og hrátjara.
I dálkinum týmisleglt, er það talið, sem eigi hefur orðið heimfært undir nokkra
vörutegund á undan og sem eigi hefur þótt svo merkilegt eöa tiutzt hefur svo mikið af
almennt að þótt hafi taka að setja það í sjerstaka dálka.
• II. Útjluttar vörur.
jpeirri reglu hefur verið fvlgt, að telja vörurnar útfluttar frá þeim verzlunarstað,
sem þær seinast fóru frá til útlanda.
Um dálkinn lýmislcgU gildir sama og sagt hefur verið um tilsvarandi dálk í að-
fluttum vörum.
III. Vöru-vcrðlagsskýrslur
I vöruverðlagsskýrslunum er vöruverð talið eins og það var í sumarkauptíð á
hlutaðeigandi verzlunarstað. Eeki fleiri en einn kaupmaður verzlun á sama verzlunarstað,
er tekið meðalverðið af vöruverðinu, ef eigi er sama verð við'allar verzlanirnar, þó hefur
á stöku stað verðlagi smákaupmanna( er mjög litla verzlun hafa gjört, verið sleppt.
Meðalverð hefur einnig verið tekið þegar einhver vörutegund hefur verið tilfærð með
mismunandi verði í sömu verzluniuni, eptir gæðum. A stöku stað hefur verðið verið
lagfært, þegar það hefur verið tilfært skakkt, og enginn vafi gat verið á að hverju leyti.
Vöruverðlagsskýrslurnar frá Flatey hafa skemmst svo, að verð á innlendum vörum varð eigi
lesið. ]par sem annars ekkert verð er tilgreint í skýrslunum lijer að framau, hafa
hlutaðeigandi kaupmenn eða verzlunarstjórar ekki getið um vöruverðið í verðlagsskýrsl-
um sínum.
IV. Skipakomur.
Jpegar póstgufuskipin eða önnur vöruflutningaskip koma á fleiri hafnir en eina
i sömu ferðinni, eru þau aðeins á fyrsta verzlunarstaðnum talin með skipum frá útlönd-
um, en úr því með skipum frá öðrum höfnum á íslandi; samt hefur þótt rjett að
telja póstgufuskipin með skipum frá útlöndum, þegar þau hafa komið til Reykjavíkur,
þótt þau hafi komið við í Vestmanneyjum á leiðinni. það eru eigi neina sumir lögreglu-
stjórar, sem tilgreina hvað af skipum frá útlöndum hafi verið gufuskip og hvað seglskip;
sii skipting er því að mestu byggð á því, er ráða má af nöfnum skipanna. Skip þau,
■er skýrslur lögreglustjóra telja fiskiskip eða komin af fiskiveiðura, eru eigi talin með og
heldur eigi herskip nje skemmtiskútur.
V. Fastar verzlanir.
Innlendar eru þær verzlanir taldar, sem eru eign manna, er búsetu hafa hjer á
landi, en hinar útlendar.
Verzlunarskýrslur þær, sem að framan eru prentaðar, eru samdar eptir skýrslum
þeira, sem kaupmenn og umboðsmenn þeirra gefa um vöruflutninga með hverju einstöku
skipi og sem hlucaðeigandi lögreglustjórum er skylt að hafa eptirlit með að sjeu svo
nákvæmar, sem kostur er á, og samkvæmar vöruskrá hlutaðeigandi skipa.
Skýrslur þessar bera með sjer að hvorki kaupmenn nje lögreglustjórar leggja mikla
rækt við þær.
Kaupmenn fá prentuð eyðublöð fyrir skýrslurnar, sem þeir eiga að fylla út og ex
nákvæmlega skýrt frá, hvernig það eigi að vera, í athugasemdum, sem prentaðar eru
aptan á hvert einstakt eyðublað.