Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1891, Blaðsíða 46
44
Fyrir kaffibaunir og kaffirót höfura vjer brúkað í paningum síðan 1880
Árin Fyrir kaffibaunir Fyrir kaffirót Samtals
1880 399819 87557 487376
1881—85 að meðaltali 349716 88989 438705
1886—90 — 313499 83083 396582
1890 393199 79389 472588
|>að er auðvitað meðfrara tollinum að kenna, að kaffikaupin hafa nú numið svo miklu
að krónutali, og það er heldur eigi ólíklegt, að það stafi einnig af honum, að svo lítið hefur
verið keypt af kafiirót, því tollurinn á henni er meir en helmingi hœrri en tollurinn á
kaffinu, þegar miðað er við verðið.
Fyrir sykur höfum vjer nú gefið meira en nokkru sinni fyr, sjer í lagi eru það
hvítasykurkaupin, sem eru að aukast. I norður- og austuramtinu er farið að kaupa
fjórum sínnum meira af hvítasykri en kandíssykri, í suður- og vesturamtinu aptur á móti
er enn þá keypt helmingi meira af kandíssykri en hvítasykri. Fyrir kandíssykur höfum
eitt ár, 1882, gefið nokkur hundruð krónum meira Fyrir hinar þrjár sykurtegundir höfum vjer gefið en nú. í þúsundum króna
Árin Kandíssykur Hvítasykur Púðursykur Samtals
1880 232 134 35 401
1881—85 að meðaltali 262 156 37 455
1886 90 201 146 37 384
1890 263 229 59 551
það er óhætt að fullyrða, að tollurinn eigi góðan þátt í, að sykurkaupin nema svo
miklu síðasta árið, en langt frá því eingöngu, eins og sjest af eptirfylgjandi skýrslu um
það, sem var aðflutt á mann af kaffi, sykri, brennivíni og öli
Af kaffi Af allsk. Af Af Öli,
Árin ogkaffirót, pund sykri, pund brenniv., pottar pottar
1871—72 6.95 8.25 7.51
1876—80 8.17 9.95 4.00
1881—85 10.66 15.18 4.65
1886 8.90 14.47 3.21 1.06
1887 8.03 14.79 2.77 1.02
1888 7.44 15.27 3.37 1.37
1889 8.54 17.37 3.64 1.59
1890 7.20 21.29 4.42 1.67
Af þessari skýrslu sjáum vjer, að það verður að leita fram undir _ 1870 til þess að
finna jafnlítið flutt af kaffi á mann eins og seinasta árið, þótt vjer höfum gefið svo mikið
fyrir það í peningum, sem fyr er frá skýrt. Menn freistast til að ímynda sjer, að það
stafi af tollinum, að svo lítið hefur verið flutt til landsins af kaffinu þetta ár, þótt það
sje alls eigi víst, að fólk hafi látið hann fæla sig frá kaffikaupunum. Kaffibirgðir kunna
að hafa verið meiri við ársbyrjun en vanalegt er, með því að kaffi- og sykurtollslögin
öðluðust gildi 1. október 1889, og kaupmenn hafa þá, ef til vill, flutt meira af kaffinu,
einkum kaffirót, en þeir annars mundu hafa gjört, til þess að komast hjá að gjalda toll-
inn. Arið 1889 var líka flutt rúmlega einu pundi meira af kaffi á mann en næsta ár á
uudan.
þetta síðasta ár, 1890, hefur verið flutt meir en þrisvar sinnum meira á mann af
sykri en árin 1866—70 og meir en helmingi meira en árin 1876—80 og | meira en næsta