Ljóðormur - 01.05.1986, Side 23

Ljóðormur - 01.05.1986, Side 23
SIGURÐUR JÓN ÓLAFSSON: Vopnin bitlaus Helst til lengi höfum við verið friðmenn hér á götunum og látið klæki andstæðingsins villa okkur sýn á meðan kröfur okkar hafa upplitast í blámanum af sjónvarpinu við erum heimaskítsmát í refskák réttvísinnar og vitund okkar er geymd á myndbandi í næstu vidíóleigu við göngum ekki lengur í þéttri fylkingu við höfum týnt hvert öðru í öngstræti tímans á eilífum flótta undan gjaldföllnum skuldum á meðan reynsla fyrri ára rykfellur í skápunum hanga bitlaus vopnin í óþekktu skúmaskoti hver mun brýna egg í skörðin? 21

x

Ljóðormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.