Fréttablaðið - 17.06.2016, Page 2
Veður
Í dag viðrar ágætlega fyrir skrúð
göngur eða útiveru almennt á þjóð
hátíðarfagnaði landans þar sem stefnir
í hægan vind og úrkomulítið veður
sunnan og vestanlands, en norðan og
austan til eru líkur á einhverjum síð
degisskúrum. Sjá Síðu 26
Það vakti kátínu þegar landsliðamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson (til vinstri) stóð á gati á blaðamannafundi í Frakklandi í gær þegar erlendur
blaðamaður spurði hvort hann ætlaði ekki að fagna á morgun. „Við erum með hugann við leikinn á laugardag,“ sagði Jóhann eftir að hafa verið bent
á að verið væri að vísa til þjóðhátíðardagsins í dag. Kári Árnason (í miðið) og Heimir Hallgrímsson þjálfari höfðu gaman af. Fréttablaðið/Vilhelm
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400
50 áraAFMÆLISTILBOÐ
gasgrill 4ra brennara
grillbudin.is
AFMÆLISTILBOÐ
139.900
VERÐ ÁÐUR 159.900
Nr. 12792
GrillbúðinÁ R A
18,7
KW
Með hugann við annað
íþróttir Slóvenskur knattspyrnu-
maður sem leikið hefur með þremur
íslenskum liðum á síðustu níu árum
hefur verið til rannsóknar slóvensku
lögreglunnar vegna gruns um veð-
málasvindl og að hagræða úrslitum
leikja. Leikmaðurinn er nú farinn
af landi brott og síðast er vitað af
honum í Kanada. KSÍ vissi ekkert
um rannsókn málsins ytra þrátt
fyrir að net heilindafulltrúa knatt-
spyrnusambanda eigi að miðla upp-
lýsingum sín á milli.
Janes Vrenko, slóvenskur ríkis-
borgari, kom hingað til lands fyrst
árið 2007 og lék með KA á Akureyri.
á ferli sínum hér á landi lék hann
lengst af með Þór á Akureyri en einn-
ig lék hann undir hið síðasta með
Dalvík/Reyni. Vrenko flutti af landi
brott í vetur en síðast er vitað um
ferðir hans í Kanada. Vrenko hefur
ekki enn gefið skýrslu fyrir lögreglu
í Slóveníu samkvæmt heimildum frá
lögreglunni þar í landi.
Þorvaldur Ingimundarson er heil-
indafulltrúi KSÍ og sér um samskipti
við Evrópska knattspyrnusam-
bandið og FIFA varðandi þessi mál.
Hann hafði ekki heyrt af þessu máli
þegar fréttamaður náði tali af honum.
„Þetta mál hefur ekki komið til okkar
og við höfum engar ábendingar feng-
ið um þetta. Heilindafulltrúar halda
ákveðið net til að auðvelda samskipti
sín á milli en þetta mál hefur ekki
komið á mitt borð,“ segir Þorvaldur.
„Það hafa komið upp nokkur tilvik á
síðustu árum þar sem við höfum verið
upplýst um mögulega rannsókn en
enn sem komið er hefur ekkert alvar-
legt komið upp á hér á landi.“
Veðjað er á leiki íslenskra liða úti
um allan heim í dag og er á mörgum
stöðum einnig hægt að veðja á úrslit
knattspyrnuleikja í öðrum flokki.
Veðjað er um milljarða króna á
hvern leik í Pepsi-deild karla og því
er um miklar upphæðir að ræða og
freistnivandi knattspyrnumanna því
umtalsverður. sveinn@frettabladid.is
Til rannsóknar sakaður
um veðmálasvindl
Fyrrverandi leikmaður Þórs Akureyri í knattspyrnu hefur verið til rannsóknar
slóvensku lögreglunnar vegna gruns um veðmálasvindl. Flutti úr landi í vetur.
NeyteNdur Matarkarfan er ódýrust í
Bónus en dýrust í Hagkaupum. Sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar verð-
lagseftirlits Alþýðusambands Íslands
kostar matarkarfan í Bónus 19.747
krónur en 22.642 í Hagkaupum.
Verðmunurinn á milli verslananna
nemur því 2.895 krónum eða fimm-
tán prósentum.
Matarkarfan í Krónunni var næst-
ódýrust en verðmunurinn á milli
Krónunnar og Bónus var 437 krónur.
Hvað varðar verðmun á einstaka
vörum var hann minnstur á mjólkur-
vörum, eða um 20 prósent. Í flestum
tilfellum var 25 til 50 prósenta munur
á hæsta og lægsta verði. Mesti verð-
munur sem mældist í könnuninni
var 112 prósent.
Matarkarfan samanstendur af 48
almennum neysluvörum til heimilis-
ins og er um beinan verðsamanburð
að ræða. – þv
Matarkarfan
ódýrust í Bónus
Vrenko lék lengstan hluta ferils síns á Íslandi hjá Þór á akureyri. hann lék einnig
fyrir Ka og Dalvík/reyni. Fréttablaðið/arnÞór
Þetta mál hefur ekki
komið til okkar og
við höfum engar ábendingar
fengið um þetta.
Þorvaldur Ingimundarson,
heilindafulltrúi KSÍ
málafjöldi á borði Útlendingastofnunar
slær öll fyrri met. Fréttablaðið/SteFán
SamfélagSmál Alls hafa 235
umsóknir borist Útlendingastofnun
á þessu ári um vernd hér á landi. Á
sama tímabili í fyrra sóttu aðeins 64
einstaklingar um vernd og er því um
mikla fjölgun að ræða. Maímánuður
í ár er einnig stærsti mánuður ársins
en 56 umsóknir bárust í þeim mán-
uði einum.
Þetta kemur fram í tilkynningu
Útlendingastofnunar sem birtist á
heimasíðu hennar. Flestar umsókn-
ir í maímánuði komu frá Albaníu,
eða 24 talsins. Níu komu frá Make-
dóníu.
Sex af hverjum tíu umsækjendum
um vernd á Íslandi koma frá lönd-
um Balkanskaga en einstaklingar frá
þeim löndum fá sjaldan umsókn um
vernd samþykkta hér á landi.
Niðurstaða fékkst í 75 mál í maí-
mánuði. Níu einstaklingar fengu
vernd hér á landi en hinum var
hafnað eða umsóknir þeirra ekki
teknar til efnislegrar meðferðar
af Útlendingastofnun af ýmsum
ástæðum. Þegar maí var liðinn
voru enn 153 mál til meðferðar hjá
stofnuninni. – sa
Metfjöldi
umsókna um
hæli hér á landi
1 7 . j ú N í 2 0 1 6 f Ö S t u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
4
-0
2
1
8
1
9
C
4
-0
0
D
C
1
9
C
3
-F
F
A
0
1
9
C
3
-F
E
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K