Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 18

Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is Margir kannast við hvernig hvers-dagsleg hugðarefni heimafyrir virðast einhvern veginn léttvægari þegar komið er út fyrir land-steinana. Á þriðja tug þúsunda Íslendinga sem um þessar mundir fylgja íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu upplifa þetta núna. Kannski er það af því að hér búa svo fáir að hlutirnir virðast skipta minna máli þegar út í fjölmennið er komið, hvort sem það er þras stjórnmálanna, dýrtíðin sem Hagstofan upplýsti einn ganginn enn að viðgengist hér í samanburði við nágrannalöndin, asnaleg fram- sögn í lesnum auglýsingum Bylgjunnar, forsetakosning- arnar, eða sjálfur þjóðhátíðardagurinn sem haldinn er hátíðlegur í dag. Líklegra er þó að sama eigi við hverrar þjóðar sem fólk er. Það er nærumhverfið sem skiptir máli, sama hvar fólk er statt. Einstaklingurinn hefur jú tilhneigingu til að setja sjálfan sig í miðju heimsins. Stundum koma þó upp hlutir sem setja hlutina í annað samhengi. CNN birti í fyrradag myndband þar sem varað var við myndefninu. Lítill drengur, á að giska fimm ára, í stuttbuxum, íþróttaskóm og röndóttum bol, er lífvana í höndum manns sem kemur með fleirum hlaupandi inn á sjúkrahús. Á meðan barnið er sett á sjúkraborð og hugað að því má sjá hvernig eldri drengur sem kom með hópnum, kannski níu eða tíu ára, rykugur og með blóðbletti á sér, fylgist með, kvíðinn og með tárin í augunum. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að geta sér til um að þetta sé eldri bróðir hins. Áhorfendur fá að sjá hvernig óttinn og kvíðinn breytast í nístandi sorg þegar í ljós kemur að þeim yngri verður ekki bjargað. Fullorðinn maður reynir án árangurs að hugga eldri drenginn sem hleypur burt. Lík litla stráksins er vafið í blátt klæði. Svo má sjá þegar móðir piltsins sækir líkið og gengur með það á braut. Myndskeið sem ekki verður horft á án þess að komast við. Í ljós kemur að upptakan er frá Sýrlandi þar sem stjórnarherinn hafði nýlokið við að varpa tunnu- sprengjum á svæði þar sem nýverið hafði í fyrsta sinn í langan tíma verið dreift hjálpargögnum. Ámóta óhugnaður á sér stað víða um heim. Hörmungarnar bitna á venjulegu fólki. Kannski yrði fólk fljótt vitstola ef það ætlaði að taka nærri sér allt óréttlæti og sérhverja hörmungarsögu þessa heims. Og í því ljósi skiljanlegt að nærumhverfi hvers og eins haldi bróðurparti athyglinnar. En það þýðir ekki að í lagi sé að loka augunum fyrir því sem aflaga fer í heiminum. Ríkar þjóðir og íbúar þeirra njóta þeirra forréttinda að þurfa ekki að láta sér nægja að draga fram lífið frá degi til dags. Þessar þjóðir hafa tækifæri til að vera til gagns og þrýsta á um breytingar til batnaðar í heimi þar sem helsta hreyfiaflið virðist peningar og völd, hags- munir og áhrif stórþjóða. Á degi eins og í dag kann að vera ágætt að hugleiða stöðu og hlutverk Íslands í samfélagi þjóða. Smáþjóðir (með léttvæg vandamál) geta haft áhrif, sér í lagi í sam- vinnu við aðrar þjóðir. Stóra myndin Það er nær- umhverfið sem skiptir máli, sama hvar fólk er statt. Einstak- lingurinn hefur jú tilhneigingu til að setja sjálfan sig í miðju heims- ins. Tilkynning um framlagningu kjörskrár Kjörskrá í Mosfellsbæ vegna forsetakosninga 25. júní 2016. Kjörskrá vegna forsetakosninganna sem fram fara þann 25. júní 2016 liggur frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar að Þverholti 2, á skrifstofutíma frá kl. 08:00 – 16:00, frá og með 15. júní 2016 og til kjördags. Mosfellsbæ 15. júní 2016. Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær RÉTT LITAMEÐFERÐ MERKIS MERKI Í LIT Tákn – 100% Pantone 371 eða samsvarandi CMYK gildi Letur – Svart TÁKN NOTAÐ EINGÖNGU 100% Pantone 371 ÞEGAR PRENTAÐ ER Í EINUM PRENTLIT Tákn og letur – 100% Pantone 371 Mosfellsbær Mosfellsbær Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær RÉTT NOTKUN Mosfellsbær SVART/HVÍTT Tákn og letur – 100% svartur ÞEGAR PRENTAÐ ER Í EINUM PRENTLIT Tákn og letur negatíft á bakgrunni í 100% Pantone 371 TÁKN NOTAÐ EINGÖNGU 100% svartur TÁKN TIL HLIÐAR VIÐ LETUR Eingöngu til notkunar á reikningsform Mosfellsbær Tákn og letur – negatíft í 100% svörtum bakgrunni Mosfellsbær Mosfellsbær Mosfellsbær Mosfellsbær 100% Pantone 371 100% svartur 100% Pantone 371 100% svartur MERKI MOSFELLSBÆJAR Höf. Kristín Þorkelsdóttir TÁKN A) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin. Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn sigursæli Englakonungur gaf honum. Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla. B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkjarna fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“. Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær PANTONE 371 PANTONE 371 MERKI MOSFELLSBÆJAR Höf. Kristín Þorkelsdóttir TÁKN A) Tilvísun til silfurs Egils Skallagrímssonar Dóttir Egils, Þórdís, bjó að Mosfelli og dvaldi hann hjá henni síðustu árin. Í nágrenni Mosfells á Egill að hafa falið silfursjóð sem Aðalsteinn hinn sigursæli Englakonungur gaf honum. Táknið er stílfærð mynd af þremur skjöldum sem prýddu bakhlið penings sem var í umferð á tíma Aðalsteins hins sigursæla. B) Þrír skildir fléttast saman og mynda samstöðu, sbr. þrjá byggðarkj rna fyrrum Mosfellshrepps: Mosfellsdalur, Reykjahverfi og „niðursveitin“. Hönnunarsta›all - GrunnurMosfellsbær PANTONE 371 PANTONE 371 Nýlega kvað úrskurðarnefnd um upplýsinga-mál upp þann úrskurð að Landsneti bæri að veita Landvernd aðgang að skýrslunni, High Voltage Underground Cables in Iceland, sem samin var fyrir Landsnet um háspennulínur í jörðu. Íslensk útgáfa skýrslunnar var birt á vef Lands- nets en ítarlegri útgáfa á ensku var ekki birt opinberlega þar sem í henni var að finna við- skiptaupplýsingar sem Landsnet var ekki tilbúið að veita aðgang að sökum útboðshagsmuna sem hefðu getað haft áhrif á flutningskostnað raforku. Úrskurðarnefndin féllst á þetta sjónarmið og voru þessar upplýsingar fjarlægðar úr skýrslunni áður en hún var birt opinberlega. Báðar skýrslurnar má finna á vef okkar, lands- net.is. Samtalið skiptir máli Hjá Landsneti leggjum við áherslu á gagnsæi í störfum okkar og kappkostum að miðla áreiðan- legum og réttum upplýsingum. Það eru lagðar ríkar skyldur á Landsnet um kynningu á þeim verkefnum sem til umfjöllunar eru hverju sinni og mun Landsnet kappkosta að uppfylla þær skyldur hér eftir sem hingað til. Það er stefna okkar að sýna frumkvæði í sam- skiptum við hagsmunaaðila og við viljum að slík samskipti einkennist af hreinskilni, ábyrgð, víð- sýni, gagnkvæmri virðingu og samstarfsvilja. Og þar skiptir samtalið öllu máli – það samtal viljum við eiga við Landvernd. Við tökum undir það sjónarmið Landverndar að ekki megi tefja uppbyggingu raforkukerfisins með leyndarhyggju og leynimakki. Slík vinnubrögð viðgangast ekki hjá Landsneti og við erum tilbúin í umræður um skýrsluna og uppbyggingu raforku- kerfisins í heild hvenær sem er. Við höfum í gegnum tíðina boðið fulltrúum frá Landvernd að koma og ræða við okkur og ítrekum það boð hér – verið velkomin til okkar á Gylfa- flötina. Opin umræða Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets Og þar skiptir samtalið öllu máli – það samtal viljum við eiga við Landvernd. árás á hugmyndafræði Jo Cox var móðir tveggja barna, þriggja og fimm ára, þegar hún féll í árás manns á sextugsaldri á götum Bristall í Englandi. Jo Cox var myrt vegna skoðana sinna. Jo Cox hafði verið þing- kona í rúmt ár þegar maður með aðra skoðun, aðra heims- sýn, önnur gildi, myrti hana með köldu blóði, með bæði egg- og skotvopni. Í grunninn er hér ekki um að ræða neitt annað en glæp gegn þeim gildum sem vestræn samfélög hafa byggst upp á. meiri ást, meira umburðarlyndi Eftirlifandi eiginmaður Cox, Brendan, sendi frá sér yfir- lýsingu í gær þess efnis að nú ættum við að sameinast um að berjast gegn því hatri sem í raun varð konu hans að bana. Á sama tíma er fimm- tíu saklausum hommum og lesbíum slátrað á skemmtistað í Flórída í Bandaríkjunum aðeins vegna þess að bana- maður hafði aðrar skoðanir, aðra heimssýn og önnur gildi en þeir sem létu lífið. Það er í sjálfu sér sorglegra en tárum taki að horfa upp á slík voða- verk eiga sér stað í upplýstum heimi. Nú er það okkar allra að sýna ást, umhyggju og fyrst og síðast umburðarlyndi gagnvart ólíkum skoðunum okkar og elska náungann eins og sjálfan sig. sveinn@frettabladid.is 1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R18 S k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð i ð SKOÐUN 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 4 -1 F B 8 1 9 C 4 -1 E 7 C 1 9 C 4 -1 D 4 0 1 9 C 4 -1 C 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.