Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 24
Frábært morgun-boozt
með hnetusmjöri og
döðlum
200 g vanilluskyr
1 banani
4 döðlur
1 msk. gróft hnetusmjör
1/2 msk. chia-fræ eða önnur
fræ t.d. hörfræ
Appelsínusafi, magn eftir
smekk
Klakar
Setjið allt í blandarann og blandið
þar til drykkurinn verður silkimjúk-
ur. Berið strax fram og njótið.
mexíkósk kjúklingasúpa
4 – 5 kjúklingabringur
1 rauð paprika
1 græn paprika
2 gulrætur
1/ 2 blaðlaukur
4 – 5 hvítlauksgeirar
1 laukur
1 grænt eða rautt chili, ég
gleymdi að kaupa
chili svo ég notaði 1
tsk. af þurrkuðum
chili-pipar
2 msk. olía
1 dós saxaðir
tómatar
1 1/ 2 – 2 teningar af
kjúklingakrafti
2 – 3 tsk. karrý
2 1/ 2 l vatn
1 peli rjómi
1/ 2 – 3/ 4 úr krukku af
Heinz chili-tómatsósu
100 – 150 g rjómaostur
Hitið olíu á pönnu við vægan hita,
saxið grænmetið smátt og steikið í
smástund á pönnunni, bara rétt til
að fá smá gljáa.
Setjið grænmetið í stóran pott,
bætið vatninu , chili-tómatsósunni,
karrýinu, kjúklingateningum og söx-
uðum tómötum saman við, leyfið
þessu að malla á meðan þið steikið
kjúklinginn.
Skerið kjúklinginn í litla bita og
steikið á pönnu upp úr olíu, krydd-
ið með chili, salti og pipar. Bætið
kjúklingnum við súpuna. Látið hana
sjóða við vægan hita í 10 – 15 mín.
Að lokum fer rjóminn og rjóma-
osturinn saman við.
Takið ykkur góðan tíma til að laga
súpuna, ég leyfði henni að malla við
vægan hita í nærri 2 klukkustund-
ir en þess þarf auðvitað ekki. Látið
hana þó malla í lágmark 30 mín.
Bragðbætið súpuna að vild, gæti
verið að þið viljið meiri karrý eða
meiri pipar. Mikilvægt að smakka
sig til!
Berið súpuna fram með sýrðum
rjóma, rifnum osti og nachos flög-
um, sem hver og einn bætir á sinn
disk eftir smekk.
Matarmikil súpa sem hressir og
kætir. Stundum sleppi ég því að
setja rjóma og rjómaost, bæti þá við
meiri grænmeti. En að mínu mati
er hún betri með rjómanum, elsku
rjómanum.
snickers brownies
brownies-uppskrift
150 g smjör
250 g súkkulaði t.d.
suðusúkkulaði
200 g sykur
2 stór egg
100 g hveiti
1 tsk. vanillusykur
2 msk. kakó
karamellufylling
1 krukka Dulce de leche,
karamellusósa
5 góðar matskeiðar af
hnetusmjöri
1 dós sykurpúðakrem
100 g ristaðar kasjúhnetur
súkkulaðikrem
250 g
mjólkursúkkulaði
Hitið ofninn í
170°C (blástur).
Bræðið smjör
við vægan hita,
saxið súkkulaðið
og bætið því við
smjörið og leyf-
ið því að bráðna
í smjörinu. Takið
pottinn af hellunni
og leyfið súkkul-
aðiblöndunni að
kólna.
Þeytið saman egg
og sykur þar til bland-
an verður létt og ljós. Bætið vanillu,
hveiti og kakói saman við og hrær-
ið þar til deigið er silkimjúkt. Í lokin
hellið þið súkkulaðiblöndunni við og
blandið vel saman.
Hellið deiginu í pappírsklætt
form (20x20) og bakið við 170°C í
30 mínútur. Það er mjög mikilvægt
að leyfa kökunni að kólna alveg í
forminu.
Setjið öll hráefnin sem eiga að
fara í karamellufyllinguna í pott
við vægan hita og hrærið mjög vel
þar til fyllingin hefur blandast vel
saman.
Hellið karamellufyllingunni ofan
á súkkulaðiköku og kælið.
Bræðið mjólkursúkkulaði yfir
vatnsbaði og hellið yfir kökuna í
lokin. Kælið og þegar súkkulaðið er
orðið hart þá er kakan tilbúin, sker-
ið hana í bita og berið strax fram.
boozt, súpa
og brownies
Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey Hermannsdóttir og ungu
aðstoðarkokkarnir hennar í Það er leikur að elda, töfra fram frábært
morgun-boozt, kjúklingasúpu og gómsætar brownies.
Girnilegt
morgun-boozt.
Matarmikil mexí-
kósk kjúklingasúpa.
Girnileg brownie.
Matargleði
Evu Laufeyjar
Hermannsdóttur
1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R4 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
4
-4
2
4
8
1
9
C
4
-4
1
0
C
1
9
C
4
-3
F
D
0
1
9
C
4
-3
E
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K