Fréttablaðið - 17.06.2016, Page 28

Fréttablaðið - 17.06.2016, Page 28
Útgefandi 365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301 UmSjónarmaðUr aUglýSinga Atli Bergmann| atli.bergmann@365.is | s. 512-5439 ÁbyrgðarmaðUr Svanur Valgeirsson Veffang visir.is Sund hefur verið stór hluti af mínu lífi alveg frá því ég var barn og for- eldrar mínir hafa farið áratugum saman dag- lega í sund. Ég reyni að synda að minnsta kosti fimm sinnum í viku, skriðsund eða bringu- sund. Björk Þorgeirsdóttir „Ef mikið er að gera og ég orðin yfirstressuð er það besta sem ég geri að fara í sund. Á sundi næ ég einhvers konar jafnvægi og er búin að kortleggja allt þegar ég kem upp úr, pollróleg. Sund hefur heilunaráhrif,“ segir Björk Þor­ geirsdóttir, kennari við Kvenna­ skólann og sundgarpur. Björk notar hvert tækifæri sem gefst til að bregða sér í laugarn­ ar og segir varla mega á milli sjá hvort hún eyði meiri tíma í vatni eða á þurru landi. „Sund hefur verið stór hluti af mínu lífi alveg frá því ég var barn og foreldrar mínir hafa farið áratugum saman daglega í sund. Ég reyni að synda að minnsta kosti fimm sinnum í viku, skrið­ sund eða bringusund. Ég syndi 600 til 1.200 metra, eftir því hvað ég er í miklu stuði, fer svo í pottinn, guf­ una og í sauna. Ég á reyndar eftir að prófa sjósund. Ég prófaði hins vegar samflot um daginn, sem er ólýsanleg tilfinning, ég kom alveg ný manneskja upp úr,“ segir Björk en fyrir utan sundferðirnar hefur hún einnig mætt samviskusam­ lega tvisvar í viku síðustu tólf ár í Breiðholtslaug, í sundleikfimi. Dásamlegur félagsskapur „Það var engin líkamsræktarað­ staða í Breiðholti þegar ég rakst á auglýsingu um sundleikfimi hjá Brynjólfi Björnssyni í Syndasel­ um og ég skráði mig. Þetta eru svipaðar æfingar og gerðar eru hjá sjúkraþjálfara, teygjur og fleira og ég held mér góðri með þessu. En ég mæti ekki síður fyrir félagsskapinn. Þessi hópur hefur haldist nánast óbreyttur öll þessi ár en aldursbilið spannar frá fer­ tugu og upp í sjötugt,“ segir Björk en hópurinn kallar sig Gullmol­ ana. „Þetta er alveg dásamlegt. Við komum úr öllum áttum, einhverj­ ar þekktust áður en alls ekki allir. Í hópnum eru drífandi karakter­ ar sem standa fyrir þorrablótum ofan í lauginni, jólaglöggi og svo fer hópurinn út að borða, eða pant­ ar mat heim í lok tímabilsins. Það er biðlisti í þennan hóp ef einhver dettur einhverra hluta vegna út,“ segir Björk. Eru þetta allt saman konur? „Það er einn karl í hópnum, aðrir hafa gefist upp,“ segir hún sposk. „En þessi eini er þarna með kon­ unni sinni. Við hinar höfum hann reyndar grunaðan um að vilja ekki fleiri karla í hópinn.“ Laugin á Hofs- ósi frábær Björk er einn­ ig dug­ leg við að þræða sund­ laugarnar á ferðalög­ um um land­ ið og segir það fyrsta sem hún geri þegar þau hjónin stoppi ein­ hvers staðar sé að leita uppi sundlaug. „Hann fer í golf og ég fer í sund, og er lengi. Ég hef heimsótt margar laugar um allt land en ef ég á að nefna einhverja uppáhalds er sú á Hofsósi frábær.“ heida@365.is Guðmundur Halldórsson, forstöðu­ maður Salalaugar, segir að mikl­ ar endurbætur hafi farið fram á húsnæðinu undanfarið. „Búið er að taka inniklefana í gegn, meðal annars var skipt um gólfefni og loftplötur. Sömuleiðis er búið að gera upp útiklefana sem eru núna eins og nýir. Gufubaðið var endur­ nýjað í vor, glæsilegir bekkir hafa verið settir upp og nýjar flísar á gólfi og veggjum,“ segir hann en Salalaug var opnuð árið 2005. Kópavogsbær hefur staðið fyrir verkefninu Skemmtilegri sundlaug­ ar að undanförnu og af því tilefni hafa verið margvíslegar uppákom­ ur í Salalaug. „Við höfum verið með samflot reglulega í vetur, sundjóga með lifandi tónlist og kertaljósum sem hefur verið gríðarlega vinsælt. Sömuleiðis höfum við boðið upp á sundjóga og samflot saman en þá myndaðist röð hér út úr dyrum. Við munum reyna að halda áfram með skemmtilega viðburði næsta vetur. Sundleikfimi er tvisvar í viku allt árið nema á meðan á sumarleyfi stendur. Mörgum finnst mjög gott að stunda leikfimi í vatni, líkaminn verður léttari og mýkri. Þetta hent­ ar sérstaklega vel fyrir þá sem eru með stirðleika í liðum,“ segir Guð­ mundur. Boðið verður upp á enn meiri hreyfingu í Salalaug í haust þegar Reebok Fitness opnar þar. „Fyrir­ tækið hefur gert samning við Kópa­ vogsbæ um að setja upp líkams­ ræktarstöðvar í báðum laugum bæjarins og verður opnað 1. októ­ ber. Þess má geta að núna í júní stendur yfir frábært tilboð frá Ree­ bok Fitness. Kortið gildir til 1. októ­ ber 2017 en fram að opnun í laugum Kópavogs gildir kortið í aðrar stöðv­ ar Reebok Fitness og í sundlaugarn­ ar. Tilboðsverðið er 39.900 krónur.“ Salalaug hentar öllum aldri. Á næstunni verður bætt við sund­ leikföngum og leiktækjum við laugina, börnum til mikillar ánægju. „Við leggjum áherslu á snyrtilegt og hreint umhverfi og að gestum okkar líði vel. Starfs­ fólkið tekur á móti öllum með bros á vör. Við erum stolt af því að bjóða mjög góða aðstöðu fyrir allan aldur,“ segir Guðmundur. Salalaug er opin alla daga en opn- unartími í sumar er: Virkir dagar frá 6.30-22.00 Helgar frá 8.00-20.00 Opið er í Salalaug í dag, 17. júní, frá 10.00-18.00 frábær sundaðstaða eftir endurbætur Salalaug er önnur af tveimur sundlaugum í Kópavogi. Hún er staðsett að Versölum 3. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsakynnum laugarinnar undanfarið. Í Salalaug er bæði úti- og innilaug, rennibraut og heitir pottar. Ný leiktæki og sundleikföng eru fyrir börnin. Kaldur pottur er hressandi. Skemmtileg rennibraut er í Salalaug. Á næstunni verður bætt við leiktækjum og sundleikföngum. Í Salalaug er góð aðstaða bæði úti og inni. myndir/jóHann Waage Syndir fimm sinnum í viku björk Þorgeirsdóttir, kennari við Kvennaskólann, hefur mætt samviskusamlega í sundleikfimi síðustu tólf ár með Gullmolunum í Breiðholtslaug. Þess utan nýtir hún hvert tækifæri sem gefst til að synda og nýtir tímann í laugunum á landsbyggðinni í sumarfríum meðan eiginmaðurinn spilar golf. björk Þorgeirsdóttir kennari er einn gullmolanna sem stunda sundleikfimi í breiðholtslaug. Hún syndir hvenær sem tækifæri gefst og segir sundferð besta meðalið við stressi. mynd/Hanna SUndlaUgar Og jarðböð Kynningarblað 17. júní 20162 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 4 -1 A C 8 1 9 C 4 -1 9 8 C 1 9 C 4 -1 8 5 0 1 9 C 4 -1 7 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.