Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 30
Við erum vel í sveit
sett. Erum þægilega
nærri Kringlumýrar-
brautinni og margir af
okkar fastagestum eru
ekki endilega Kópa-
vogsbúar heldur eiga hér
leið um til og frá vinnu.
Jakob Þorsteinsson
Þegar Unnur hannaði flothettuna
var hún um leið að innleiða nýja
siði og slökunaráherslu í bað-
menningu landsmanna. Þegar hún
er spurð hvað flothetta sé í raun,
svarar hún: „Flothetta er íslensk
hönnun, gerð til að upplifa vellíð-
an í vatni, losa um streitu og eiga
nærandi stund í kyrrð. Flothett-
an varð til út frá hugleiðingum
mínum um að vinna með eitthvað
sér-íslenskt, sem að mínu mati
er til dæmis sund- og baðmenn-
ing þjóðarinnar. Sem Íslendingur
og daglegur gestur sund- og bað-
staða fannst mér borðleggjandi
að tengja saman vatnið og slök-
un í áhugaverðu og heilsubætandi
hönnunarverkefni,“ segir Unnur.
„Vörulínan samanstendur af flot-
hettu og fótafloti, hönnuðu til að
veita líkamanum fullkominn flot-
stuðning í vatni.“
Slökun og vellíðan
Sundlaugarnar hafa auglýst sam-
flot en Unnur segir að það sé
hugsað sem vettvangur fyrir fólk
að koma saman og upplifa nær-
andi slökunarstund í þyngdar-
leysi. „Rannsóknir sýna að við
það eitt að sleppa tökunum og
leyfa sér að fljóta eiga ákveðin
efnaskipti sér stað. Streituvald-
andi efni, líkt og adrenalín og
kortisól, víkja fyrir vellíðunar-
hormónunum endorfíni og beta
endorfíni sem er verkjastillandi.
Þægilega umlukin vatni hægir á
huganum, heilahvelin samstillast
og dýpra stigi slökunar næst. Að
fljóta gefur frelsi frá öllu utan-
aðkomandi áreiti. Það býr til að-
stæður fyrir djúpslökun og jafn-
vægi. Við þessar aðstæður skap-
ast rúm fyrir líkamann til að
fínstilla sinn innri takt og njóta
vellíðunar sem og heilsubætandi
áhrifa slökunar. Þegar þyngdar-
aflinu sleppir frelsast þeir hlutar
líkamans sem bera mesta þung-
ann. Þetta eru miðtaugakerfið,
vöðvarnir og hryggsúlan. Fljót-
andi slökun nær til okkar dýpstu
vöðva sem þýðir að hún dregur úr
verkjum og bólgum í liðum, baki,
hálsi og flýtir fyrir bata til dæmis
eftir tognun.“
Fínstilltur líkami
Unnur segir að flot hafi
verið stundað um
allan heim í salt-
vatni í svoköll-
uðum flottönk-
um. „Hugmynd-
in á uppruna sinn
í Bandaríkjun-
um en þar byrj-
uðu menn að þróa
þessa slökunarað-
ferð upp úr 1950.
Flottankar eru ekki
mjög aðgengilegir og
frekar dýrt sport, því má
segja að flothettan sé svona ís-
lensk alþýðuútgáfa sem gerir
okkur kleift að stunda
fljótandi slökun með
frekar litlum kostn-
aði í okkar frábæru
laugum. Það hefur
verið mikill áhugi á
þessu sporti enda hafa
rannsóknir sýnt fram
á góð áhrif slökunar í
vatni. Þetta er fullkom-
in hvíld og endurnær-
ing fyrir líkama og sál.
Allir geta stundað flot.
Fólk losnar við streitu. Flotið
er til dæmis frábært fyrir barns-
hafandi konur og þá sem eru með
stoðkerfisvandamál og verki. Lík-
aminn er í eðli sínu alveg full-
kominn og með því að gefa honum
stund í næði og kyrrð hefur hann
tök á að næra og heila það sem
þarf. Tökum frá tíma og rými til
að gefa honum færi á því að hvíl-
ast og fínstilla sinn takt. Svo má
ekki gleyma því að hafa gaman af
þessu í leiðinni, það getur verið
stórkostlega skemmtilegt að
fljóta undir dansandi skýjum eða
stjörnubjörtum himni. Þetta á líka
að vera skemmtilegt.“ elin@365.is
Flotið undir stjörnubjörtum himni
Unnur Valdís Kristjánsdóttir er hönnuður flothettunnar sem hefur slegið í gegn hér á landi. Samflot, þegar margir fljóta saman, er orðið
mjög vinsælt í sundlaugum landsins. Flothetta og fótaflot er staðalbúnaður þeirra sem láta sig fljóta og bæta þannig heilsuna.
Í samstarfi við Jógasetrið heftur Unnur boðið upp á samflot fyrir barnshafandi konur sem kallast Bumbuflot. MYND/VILHELM
„Sundlaug Kópavogs á sér langa
sögu en hún var upphaflega byggð
árið 1967. Hún var stækkuð árið
1991 og endurbyggð að stórum
hluta árið 2008 þegar bættust
við innilaugar, nokkrir pottar,
gufubað og rennibrautir,“ segir
Jakob Þorsteinsson, forstöðumað-
ur Sundlaugar Kópavogs, en í dag
standa engar af upprunalegum
byggingum laugarinnar.
Hann segir laugarplássið það
næststærsta á landinu. Þar er að
finna 50 metra útilaug, tvær inni-
laugar, önnur er 25 metra löng og
hin tíu metra löng sem notuð er
til kennslu. „Sú laug er líka mjög
vinsæl meðal fjölskyldna með
ung börn enda er hún bæði grunn
og örugg og þar eru oft og tíðum
skemmtileg flotleikföng,“ lýsir
Jakob.
Á sundlaugarsvæðinu eru einnig
átta pottar, þar af einn kaldur pott-
ur sem nýbúið er að setja upp. Þá
er þar að finna fjórar rennibraut-
ir, misháar. Tvær fimm metra,
eina þriggja metra og ein er lítil
og fyrir allra yngstu krakkana.
Jakob segir fjölskyldufólk sækja
mikið í Sundlaug Kópavogs enda
margt í boði sem laðar gesti að.
Til dæmis séu margir hrifnir af
heita pottinum sem liggi samhliða
vaðlauginni þannig að foreldrar
geta fylgst með stálpuðum börn-
um sínum að leik.
Nýir búningsklefarnir voru
byggðir árið 2008. „Við erum með
sex búningsklefa, þrjá fyrir hvort
kyn, bæði útiklefa og inniklefa.“
Vinsældir Sundlaugar Kópavogs
eru miklar enda koma um 500 þús-
und gestir í laugina ár hvert. „Við
erum vel í sveit sett. Erum þægi-
lega nærri Kringlumýrarbraut-
inni og margir af okkar fastagest-
um eru ekki endilega Kópavogsbú-
ar heldur eiga hér leið um til og
frá vinnu,“ upplýsir Jakob. „Mjög
breiður hópur sækir okkur heim
þó fjölskyldufólk sé áberandi. Þá
eru Íslendingar í meirihluta gesta
okkar þó við finnum vissulega
fyrir fjölgun ferðamanna.“
Líkamsrækt hefur lengi verið
rekin í kjallara hússins. „Hún er
lokuð sem stendur en verður opnuð
aftur í haust ný og endurbætt með
glænýjum tækjum,“ segir Jakob
og býður alla velkomna í Sundlaug
Kópavogs.
Rennibrautirnar eru vinsælastar
Sundlaug Kópavogs er einkar fjölskylduvæn laug þar sem fólk á öllum aldrei getur notið þess að synda, leika sér og slaka á.
Rennibrautirnar, sem eru af mörgum gerðum, eru eitt aðalaðdráttarafl laugarinnar og njóta sérstakrar hylli meðal yngri gesta laugarinnar.
Bæði ungir sem aldnir hafa gaman af góðum bunum.
Sundlaug Kópavogs var mikið endurnýjuð árið 2008.
Rennibrautirnar eru margvíslegar og stórskemmtilegar.
Mér fannst
borðleggjandi að
tengja saman vatnið og
slökun í heilsubætandi
hönnunarverkefni.
Unnur Valdís Kristjánsdóttir
SUNDLaUgaR og JaRðBöð Kynningarblað
17. júní 20164
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
4
-1
F
B
8
1
9
C
4
-1
E
7
C
1
9
C
4
-1
D
4
0
1
9
C
4
-1
C
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K