Fréttablaðið - 17.06.2016, Síða 32
Plötusnúðurinn og tölvunörðurinn
Benedikt Sölvi Stefánsson, best
þekktur sem BenSöl, kemur fram
á tónlistarhátíðinni Secret Sol-
stice sem hófst í Laugardal í dag.
Dagsdaglega starfar hann sem
IBM-sérfræðingur hjá Nýherja
og samtvinnar þannig ástríðurn-
ar tvær í lífi sínu; tölvur og tón-
list enda spilar hann að eigin sögn
tölvutónlist.
Hvernig myndir þú lýsa
fatastílnum þínum?
Í dag er hann mjög dimmur og
skemmtistaða óríentaður. Enda
hef ég verið í þeim bransa í mörg
ár. Dökkur, djarfur og dulúður.
Hversdags klæðnaðurinn minn
er kannski meira „casual street“
tíska og samanstendur yfirleitt af
þröngum gallabuxum, einföldum
bol, strigaskóm og léttum jakka
eða hettupeysu. Einfaldara og
þægilegra verður það varla.
Hvenær fékkstu áhuga á tísku?
Ég hafði eiginlega aldrei sérstak-
an áhuga á tísku áður fyrr. Þegar
ég var yngri reyndi ég að skera
mig úr og vera með svona attitude
í fatnaði. Þegar ég eldist breyt-
ist það og ég fór að velja föt sem
mér leið vel í og sýndu persónu-
leika minn betur. Stærstur hluti
fataskápsins er svartur og hefur
dökknað með hverju árinu. Að
undanskildum sokkum og nær-
buxum sem ég leyfi að vera mjög
skræpóttum í staðinn til að halda
jafnvægi.
Hvernig tengist
tísku- og tónlistaráhuginn?
Manni verður að líða vel í skónum
þegar maður stappar, dansar og
hoppar upp á sviði eða úti á dans-
gólfi. Því verða þægindi og útlit að
að fara saman. Fötin þurfa því að
vera frekar létt vegna hitans og
svitans sem fylgir starfinu. Dökk-
Dökkur,
Djarfur og
Dúlúðugur
Tónlistarhátíðin Secret Solstice hófst í gær.
Meðal þeirra sem koma fram er plötu
snúðurinn BenSöl, Benedikt Sölvi Stefánsson,
sem klæðist helst dimmum og djörfum klæðn
aði sem um leið er einfaldur og þægilegur.
Í hermannajakka frá Hugo Boss og
Stacy Adams skóm.
Í leðurjakka frá SUIT, Selected gallabuxum og með Gucci sólgleraugu. Mynd/Eyþór
ir litir meika líka bara meira sens
af svo mörgum ástæðum og því
leitar undirmeðvitundin beint í þá
þegar kemur að fatavali.
Hvernig fylgist þú
helst með tískunni?
Það er helst að fara út og skoða
hvað aðrir eru að gera og horfa
á myndbandsupptökur af tónleik-
um, skemmtistöðum og festivöl-
um. Maður verður samt að passa
sig að festa sig ekki allt of mikið í
straumum á Íslandi heldur reyna
að sjá heildina og hvað er að gerast
alls staðar. Reyna líka að búa til
sinn perónulega stíl og ekki bara
elta alla hina blindandi.
Áttu þér uppáhaldsverslanir
hér heima og erlendis?
GK Reykjavik, Jör, Húrra, Ink-
law og Boss koma svona fyrst upp
í hugann hér heima. Ég reyni þó
helst að kaupa föt erlendis og þá
helst í random búðum. Ef maður
fjárfestir í flottri flík þá vill
maður helst ekki sjá hálfan bæinn
í sömu flík. Ég reyni eins og ég get
að halda mig frá ofurdýru hátísku-
húsunum. Miklu skemmtilegra er
að grafa og grúska þangað til ein-
hver flík kallar til manns úr ólík-
legustu búðum. Ein slík er t.d.
BAM í Berlín, sem var svona mín
leynibúð, en greinilega ekki mikið
lengur.
Uppáhaldshönnuðir þínir?
Alexander Kirchner, Kristjana
S. Williams, JÖR, Ziska og Ink-
law koma svona fyrst upp í hug-
ann af þeim íslensku. Suit merk-
ið hefur verið sterkt hjá mér í smá
stund og ShoeTheBear þó svo þeir
hafi afar stutt lífskeið sem er synd.
Bossinn leynir stundum á sér og er
yfirleitt til í miklu meira úrval úti
en heima, sem hefur sína kosti og
galla.
Áttu þér uppáhaldsflík?
Um þessar mundir eru það senni-
lega hettupeysa sem ég keypti í
BAM í Berlín og svarti Suit leður-
jakkinn minn.
Getur þú nefnt dæmi
um bestu kaup þín?
Það er Boss hermannajakkinn
minn. Það urðu næstum vinslit
yfir þessum jakka því aðeins einn
var til í versluninni. Raunar tap-
aði ég áhlaupinu að honum en sem
betur fer passaði hann ekki á fé-
lagann sem gerði sigurinn sætari.
Notar þú einhverja fylgihluti?
Ég gekk í gegnum alls konar
tímabil með fylgihluti, eins og úr,
hringi, úlniðsbönd og hálsmen af
öllum sortum. Einhvern veginn óx
maður upp úr því og hef ég verið
nakin af öllu slíku í langan tíma.
Nýlega var mér gefið fallegt gam-
aldags úr sem ég er afar ánægð-
ur með og nota daglega. Þó svo að
úr séu löngu orðin óþörf með komu
snjallsímanna þá er það eitthvað
sem ennþá heillar við að vera með
flott úr. Einnig er ég mjög hrifinn
af klassískum flottum sólgleraug-
um og fjárfesti nýlega í einum frá
Gucci sem eru í miklu uppáhaldi.
Hvað er helst að gerast
í tónlistinn hjá þér í sumar?
Það er nóg að gerast í tónlistinni í
sumar. Þar má helst nefna Secret
Solstice sem ég er að spila á ásamt
plötusnúðagenginu mínu Træang-
ular. Einnig verð ég að spila í alls-
konar uppákomum og eftirpartíum
tengdum hátíðinni. Ég á líka mín
reglulegu kvöld á stöðum eins og
Kaffibarnum og Paloma og svo er
ýmislegt fleira í pípunum. Það er
nóg að gera og danstónlistin hefur
aldrei verið sterkari en nú.
Í hettupeysu og bolum frá Boom Bat.
•
•
•
•
•
•
•
Frjókorna úr trjám, grasi, illgresi og blómum
Myglu
Gróa frá plöntum
Ryks
Rykmaura
Dýra
Annarra loftborinna ofnæmisvaka
Bionette hentar vel gegn ofnæmiskve af völdum:
LAUS VIÐ HNERRANN
MEÐ OFNÆMISLJÓSI
Lyfjalaus meðferð Auðvelt í notkun
Klínískt prófað Létt og meðfærilegt
Án þekktra aukaverkana Hentar 6 ára og eldri
Bólgueyðandi ljósameðferð
gegn einkennum ofnæmiskvefs
BioNette er hentugt tæki sem notar ljóstækni
til að draga úr einkennum ofnæmiskvefs s.s.
hnerra, kláða, höfuðverk, nefrennsli, nefstíu
og tárvotum augum.
Nasal Allergy Treatment
Ljósinu er stungið upp í nasirnar, kveikt á því
og haft þangað til það slokknar (um 4 mín).
Má nota tvisvar til þrisvar á dag við upphaf einkenna.
Síðan eftir þörfum þegar einkenni hafa lagast.
Sölustaði má nna á
facebook.com/bionetteisland
Vottanir: ISO 9001 (2008), MDD 2007/47 EEC (2007), ISO 13485 (2012) Cert. Nr. 499/499CE
Fæst í apótekum
Umboðsaðili,
1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R8 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
4
-3
3
7
8
1
9
C
4
-3
2
3
C
1
9
C
4
-3
1
0
0
1
9
C
4
-2
F
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K