Fréttablaðið - 17.06.2016, Side 50
Það er eitthvað sem gerist þegar maður spilar heima. Ég held að það sé einhvers konar blanda af auknu stressi og miklu stolti sem tekur
yfir líkama manns. Það er erfitt að
lýsa því. Við erum svo vön að spila
fyrir framan haf af ókunnugu fólki
þannig að það er góð tilbreyting að
spila heima fyrir fólk sem maður
þekkir og þykir vænt um,“ segir
Ragnar Þórhallsson, söngvari og
gítarleikari Of Monsters and Men.
Sveitin er komin hingað til lands
og stígur á svið á Secret Solstice
hátíðinni sem hófst í gær. Bandið
kemur fram á sunnudagskvöld.
Of Monsters and Men hefur ekki
spilað á Íslandi síðan á síðasta ári
þegar sveitin blés til útgáfutónleika
í Hörpu vegna plötunnar Beneath
the skin.
Akkúrat ár er síðan hún kom út
og fékk gríðarlega góðar viðtökur,
en strax fyrstu vikuna seldist platan
í sextíu og eitt þúsund eintökum.
Þá fór platan beint í þriðja sæti Bill
board listans í Bandaríkjunum og
náði fyrsta sæti á iTunes. Þá var plat
an jafnframt sú mest selda á Íslandi
sé árið tekið saman.
Spurður hvernig um sé að litast,
horfir Ragnar aftur um ár, og á þá
gríðarlegu velgengni sem raun ber
vitni um, svarar hann hógvær að við
blasi „aðallega góðar stundir með
góðum vinum“.
Hann segir sömuleiðis að þó svo
sveitin geti fagnað góðu gengi séu
þau engan veginn komin í einhvern
stjörnumeðferðarpakka. „Ég held að
við eigum enn eftir að sanna okkur
mikið til að komast á sama stall
Eigum enn eftir að sanna okkur mikið
Of Monsters and Men hefur verið á tónleikaferðalagi kringum hnöttinn síðan á síðasta ári.„Blanda af auknu stressi og
miklu stolti sem tekur yfir líkama manns,“ segir Ragnar, söngvari og gítarleikari sveitarinnar, um að spila á Íslandi.
FraM undan bíða
Okkar Enn þá
nOkkur stutt FErðalög En
svO Er planið hEld ég bara
að slappa svOlítið aF, ná í
rassgatið á íslEnska
suMrinu Og hEFjast síðan
handa við þriðju plötuna.
Sveitin spilaði síðast á Íslandi í ágúst í fyrra, þá á útgáfutónleikunum í Hörpu. Fréttablaðið/anton brink
og Björk til dæmis. Við erum ekki
komin á þann stað að fá stjörnu
meðferðina hvar sem við förum, þó
það eigi vissulega til að gerast við og
við.“
Vissulega eru allir mennskir
Of Monsters and Men hefur sumsé
verið á tónleikaferðalagi síðan á
síðasta ári. Ferðin hófst í Suður
Ameríku og hefur síðan teygt sig til
Mexíkó, Ástralíu, Singapúr, Filipps
eyja, Bandaríkjanna og nú síðast
Kanada áður en heim var haldið. Eðli
málsins samkvæmt hefur því býsna
margt á daga hljómsveitarmeðlima
drifið, svo sem heimsókn til spjall
þáttadrottningarinnar Ellenar í októ
ber í fyrra og í lok maí birtust þau í
hinum nafntoguðu þáttum Game of
Thrones. Þá hefur OMAM túrað með
enska indírokkbandinu Florence
and the Machine undanfarið.
Hvernig skyldi mórallinn vera í
svona umfangsmiklum ferðalögum?
„Mórallinn er yfirleitt mjög góður
þegar við erum á túr. Við gerum í því
að hafa í kringum okkur fólk sem er
jákvætt og bjartsýnt og hugsar í lausn
um en ekki í vandamálum. Þú þarft að
vera mjög þolinmóður og umburðar
lyndur til þess að túra og við erum
heppin með hóp hvað það varðar. En
vissulega eru allir mennskir og auðvi
tað getur nándin reynst erfið. Það fá
allir hins vegar tíma fyrir sig þegar við
förum á hótel og það er gott að nýta
hann til þess að endurræsa og undir
búa sig fyrir komandi rútulíf,“ útskýrir
Ragnar einlægur.
ný plata í kortunum
„Eftir því sem maður túrar meira
því meira fer maður að hlakka til að
byrja á næstu plötu. Við erum mörg
hver byrjuð að semja en undirbún
ingurinn byrjar ekki af fullri alvöru
fyrr en eftir að við hættum að túra
með þessa plötu,“ segir Ragnar
spurður út í frekari plötusmíð. „Ég er
rosalegur stoltur og þakklátur fyrir
móttökurnar sem Beneath The Skin
hefur fengið og það hefur verið mikið
ævintýri að túra hringinn í kringum
heiminn með tvær plötur „undir
beltinu“. Fram undan bíða okkar
enn þá nokkur stutt ferðalög en
svo er planið held ég bara að slappa
svolítið af, ná í rassgatið á íslenska
sumrinu og hefjast síðan handa við
þriðju plötuna.“
Líkt og áður segir er bandið komið
til landsins og mun stíga á Valhallar
sviðið í Laugardalnum á sunnu
dagskvöld. Sléttri viku síðar verður
hljómsveitin á Englandi að skemmta
gestum Glastonburyhátíðarinnar.
Gert er ráð fyrir að um fimmtán
þúsund manns sjái sveitina í Laugar
dalnum á meðan seldir miðar á
Glastonbury eru hundrað þrjátíu
og fimm þúsund. Munurinn er tals
verður, krefst stærri hátíðin öðruvísi
undirbúnings? „Nei. Við tæklum flest
festivalagigg á mjög svipaðan hátt.
Það skiptir eiginlega ekki máli hvort
maður er að fara að spila fyrir fimm
þúsund manns eða þrjátíu þúsund.
Það eina sem hægt er að gera hvort
sem er, er að vera í augnablikinu og
njóta þess sem maður er að gera. Það
sem þú gefur frá þér færðu yfirleitt
margfalt til baka á svona giggum,“
útskýrir hann. gudrun@frettabladid.is
of Monsters and Men er með tvær plötur „undir beltinu“ eins og ragnar orðaði það. Þau eru þegar farin að horfa að þriðju.
Mynd/MereditH truax
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R34 L í F i ð ∙ F R É T T A B L A ð i ð
Lífið
1
7
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
4
-3
8
6
8
1
9
C
4
-3
7
2
C
1
9
C
4
-3
5
F
0
1
9
C
4
-3
4
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
6
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K