Fréttablaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 17.06.2016, Blaðsíða 50
Það er eitthvað sem ger­ist þegar maður spilar heima. Ég held að það sé einhvers konar blanda af auknu stressi og miklu stolti sem tekur yfir líkama manns. Það er erfitt að lýsa því. Við erum svo vön að spila fyrir framan haf af ókunnugu fólki þannig að það er góð tilbreyting að spila heima fyrir fólk sem maður þekkir og þykir vænt um,“ segir Ragnar Þórhallsson, söngvari og gítarleikari Of Monsters and Men. Sveitin er komin hingað til lands og stígur á svið á Secret Solstice hátíðinni sem hófst í gær. Bandið kemur fram á sunnudagskvöld. Of Monsters and Men hefur ekki spilað á Íslandi síðan á síðasta ári þegar sveitin blés til útgáfutónleika í Hörpu vegna plötunnar Beneath the skin. Akkúrat ár er síðan hún kom út og fékk gríðarlega góðar viðtökur, en strax fyrstu vikuna seldist platan í sextíu og eitt þúsund eintökum. Þá fór platan beint í þriðja sæti Bill­ board listans í Bandaríkjunum og náði fyrsta sæti á iTunes. Þá var plat­ an jafnframt sú mest selda á Íslandi sé árið tekið saman. Spurður hvernig um sé að litast, horfir Ragnar aftur um ár, og á þá gríðarlegu velgengni sem raun ber vitni um, svarar hann hógvær að við blasi „aðallega góðar stundir með góðum vinum“. Hann segir sömuleiðis að þó svo sveitin geti fagnað góðu gengi séu þau engan veginn komin í einhvern stjörnumeðferðarpakka. „Ég held að við eigum enn eftir að sanna okkur mikið til að komast á sama stall Eigum enn eftir að sanna okkur mikið Of Monsters and Men hefur verið á tónleikaferðalagi kringum hnöttinn síðan á síðasta ári.„Blanda af auknu stressi og miklu stolti sem tekur yfir líkama manns,“ segir Ragnar, söngvari og gítarleikari sveitarinnar, um að spila á Íslandi. FraM undan bíða Okkar Enn þá nOkkur stutt FErðalög En svO Er planið hEld ég bara að slappa svOlítið aF, ná í rassgatið á íslEnska suMrinu Og hEFjast síðan handa við þriðju plötuna. Sveitin spilaði síðast á Íslandi í ágúst í fyrra, þá á útgáfutónleikunum í Hörpu. Fréttablaðið/anton brink og Björk til dæmis. Við erum ekki komin á þann stað að fá stjörnu­ meðferðina hvar sem við förum, þó það eigi vissulega til að gerast við og við.“ Vissulega eru allir mennskir Of Monsters and Men hefur sumsé verið á tónleikaferðalagi síðan á síðasta ári. Ferðin hófst í Suður­ Ameríku og hefur síðan teygt sig til Mexíkó, Ástralíu, Singapúr, Filipps­ eyja, Bandaríkjanna og nú síðast Kanada áður en heim var haldið. Eðli málsins samkvæmt hefur því býsna margt á daga hljómsveitarmeðlima drifið, svo sem heimsókn til spjall­ þáttadrottningarinnar Ellenar í októ­ ber í fyrra og í lok maí birtust þau í hinum nafntoguðu þáttum Game of Thrones. Þá hefur OMAM túrað með enska indírokkbandinu Florence and the Machine undanfarið. Hvernig skyldi mórallinn vera í svona umfangsmiklum ferðalögum? „Mórallinn er yfirleitt mjög góður þegar við erum á túr. Við gerum í því að hafa í kringum okkur fólk sem er jákvætt og bjartsýnt og hugsar í lausn­ um en ekki í vandamálum. Þú þarft að vera mjög þolinmóður og umburðar­ lyndur til þess að túra og við erum heppin með hóp hvað það varðar. En vissulega eru allir mennskir og auðvi­ tað getur nándin reynst erfið. Það fá allir hins vegar tíma fyrir sig þegar við förum á hótel og það er gott að nýta hann til þess að endurræsa og undir­ búa sig fyrir komandi rútulíf,“ útskýrir Ragnar einlægur. ný plata í kortunum „Eftir því sem maður túrar meira því meira fer maður að hlakka til að byrja á næstu plötu. Við erum mörg hver byrjuð að semja en undirbún­ ingurinn byrjar ekki af fullri alvöru fyrr en eftir að við hættum að túra með þessa plötu,“ segir Ragnar spurður út í frekari plötusmíð. „Ég er rosalegur stoltur og þakklátur fyrir móttökurnar sem Beneath The Skin hefur fengið og það hefur verið mikið ævintýri að túra hringinn í kringum heiminn með tvær plötur „undir beltinu“. Fram undan bíða okkar enn þá nokkur stutt ferðalög en svo er planið held ég bara að slappa svolítið af, ná í rassgatið á íslenska sumrinu og hefjast síðan handa við þriðju plötuna.“ Líkt og áður segir er bandið komið til landsins og mun stíga á Valhallar­ sviðið í Laugardalnum á sunnu­ dagskvöld. Sléttri viku síðar verður hljómsveitin á Englandi að skemmta gestum Glastonbury­hátíðarinnar. Gert er ráð fyrir að um fimmtán þúsund manns sjái sveitina í Laugar­ dalnum á meðan seldir miðar á Glastonbury eru hundrað þrjátíu og fimm þúsund. Munurinn er tals­ verður, krefst stærri hátíðin öðruvísi undirbúnings? „Nei. Við tæklum flest festivala­gigg á mjög svipaðan hátt. Það skiptir eiginlega ekki máli hvort maður er að fara að spila fyrir fimm þúsund manns eða þrjátíu þúsund. Það eina sem hægt er að gera hvort sem er, er að vera í augnablikinu og njóta þess sem maður er að gera. Það sem þú gefur frá þér færðu yfirleitt margfalt til baka á svona giggum,“ útskýrir hann. gudrun@frettabladid.is of Monsters and Men er með tvær plötur „undir beltinu“ eins og ragnar orðaði það. Þau eru þegar farin að horfa að þriðju. Mynd/MereditH truax Guðrún Jóna Stefánsdóttir gudrunjona@frettabladid.is 1 7 . j ú n í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R34 L í F i ð ∙ F R É T T A B L A ð i ð Lífið 1 7 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 4 -3 8 6 8 1 9 C 4 -3 7 2 C 1 9 C 4 -3 5 F 0 1 9 C 4 -3 4 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 6 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.