Fréttablaðið - 25.10.2016, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 5 2 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
ÍÞróttir Snorri Steinn Guðjóns
son handknattleiksmaður
leggur landsliðsskóna á hilluna
eftir farsælan feril. 16
lÍfið Leikfélag Verzlunarskóla
Íslands setur upp sýninguna
Breakfast Club. Frumsýning
verður 4. nóvember. 28
plús sérblað l fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
heilbrigðisMál Eftirspurn eftir
þjónustu á endurhæfingarmiðstöð
SÍBS á Reykjalundi er í dag mun
meiri en unnt er að sinna. Á Reykja
lundi bíða nú tæplega þúsund
manns eftir þjónustu og biðin er allt
upp í eitt ár. Ef 300 milljóna króna
niðurskurður frá hruni fengist
bættur væri hægt að auka þjónustu
Reykjalundar til muna.
Magnús Ólason, framkvæmda
stjóri lækninga á Reykjalundi, segir
að nú berist 6070% fleiri beiðnir um
meðferð á Reykjalundi en þjónustu
samningur Reykjalundar leyfir, sem
gerir ráð fyrir að minnsta kosti 1.050
sjúklingum á ári. Um mitt ár 2016
höfðu borist um þúsund beiðnir um
endurhæfingu og stefnir þannig í um
2.000 innlagnarbeiðnir á árinu.
Þjónustusamningur var gerður
við ríkisvaldið um starfsemi Reykja
lundar árið 2001. Þá voru starfandi
á Reykjalundi vel yfir 200 manns í
um 195 stöðugildum faglærðra sem
ófaglærðra. Frá hruni hefur fjár
magn til starfseminnar verið skert
um 25 til 30 prósent og með óum
flýjanlegri fækkun starfsmanna
hefur orðið æ erfiðara að endur
hæfa þá 1.050 sjúklinga á ári sem
þjónustusamningur Reykjalundar
gerir ráð fyrir, að sögn Magnúsar, en
stöðugildin nú eru 159; alls 34 færri
en þau voru þegar best lét.
„Það er góðra gjalda vert að byggja
undir bráðaþjónustuna, en biðlist
arnir okkar eru að nálgast það að
vera tvöfalt lengri en afkastagetan.
Þannig að það er ekki spurning um
að það sé ekki eftirspurn eftir þjón
ustunni,“ segir Magnús og bætir við
að ákveðnir sjúklingahópar fái ekki
viðunandi endurhæfingu eins og
staðan er í dag.
Stór rannsókn í verkjateymi
Reykjalundar á árunum 20042011
sýndi að aðeins 33% voru vinnu
fær fyrir endurhæfingu, en þremur
árum eftir útskrift voru um 60%
í vinnu. Heilsuhagfræðileg úttekt
á árangrinum sýndi að sex vikna
meðferð sem kostaði tólf hundruð
þúsund fyrir hvern einstakling
skilaði að meðaltali 9,7 milljónum
til baka til samfélagsins. Þetta þýðir
að hver króna sem sett er í endur
hæfingu skilar sér áttfalt til baka,
segir Magnús meðal annars í grein
sem var birt nýlega í blaði SÍBS. – shá
Bíða í allt að heilt ár
Óskir fólks um endurhæfingu á Reykjalundi verða á þessu ári nálægt helmingi
fleiri en unnt er að sinna. Hver króna skilar sér áttfalt til baka, sýna rannsóknir.
Það er góðra gjalda
vert að byggja undir
bráðaþjónustuna, en biðlist-
arnir okkar eru að nálgast
það að vera tvöfalt lengri en
afkastagetan.
Magnús Ólason,
framkvæmdastjóri
lækninga
hluti af
þú þarft
nesti á
MORGNANNA
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2
Kvennafrí Kvennafrídagurinn var í gær og söfnuðust þúsundir kvenna saman í miðborg Reykjavíkur, sem og víðar um land, til að mótmæla kyn-
bundnum launamun, eftir að hafa lagt niður störf klukkan 14.38. Boðað var til samstöðufundar á Austurvelli sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Katrín
Halldóra Sigurðardóttir stýrðu. Baráttufundir voru einnig haldnir á Akureyri, Grundarfirði, Hellu og í Neskaupstað. Fréttablaðið/SteFán
feg u r ð Fegurðardrottningar
Íslands segjast aldrei hafa þurft að
þola viðlíka framkomu og Arna
Ýr Jónsdóttir í Miss Grand Inter
national. Hún er hetja með bein
í nefinu, segir framkvæmdastjóri
Ungfrú Ísland.
„When they go low, we go high.
Það þykir mér Arna Ýr hafa gert í
þessu máli,“ segir Linda Pétursdóttir
fyrrverandi alheimsfegurðardrottn
ing. – kg / sjá síðu 30
Fordæmalaus
framkoma
saMfélag Ólga er innan lögregl
unnar á Norðurlandi vestra vegna
yfirstjórnar hennar á svæðinu.
Starfsandinn er í molum og sam
skipti stjórnenda lögreglunnar
við almenna lögreglumenn eru
óásættan leg segir í bréfi sem undir
menn sendu yfirstjórn.
Hafa starfandi lögreglumenn
brugðið á það ráð að senda lögreglu
stjóranum bréf sem hann hefur ekki
svarað. – sa / sjá síðu 4
Ólga í röðum
lögreglunnar
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
C
-C
5
7
C
1
B
0
C
-C
4
4
0
1
B
0
C
-C
3
0
4
1
B
0
C
-C
1
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K