Fréttablaðið - 25.10.2016, Qupperneq 2
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
Veður
Gengur í austan hvassviðri, fyrst suð
vestan lands með rigningu og hlýnar í
veðri. Snýst í ákveðna sunnanátt síð
degis með skúrum og léttir til norð
austanlands um kvöldið. sjá síðu 20
siglufjörður Skemmdir hafa verið
unnar fimm sinnum í sumar og
haust á nýjum golfvelli á Siglufirði.
Ökutækjum hefur ítrekað verið
ekið yfir nýsáð svæði sem hafa við
það stórskemmst. Egill Rögnvalds-
son, vallarstjóri á golfvellinum, segir
mælinn fullan.
„Við höfum reynt að hafa hendur
í hári þessara skemmdarvarga. Við
vitum ekki nægilega mikið um öll
þessi skipti en við höfum séð til ein-
staklings í einu tilfelli,“ segir Egill.
„Vegna þessa hefur kæra verið lögð
inn á borð lögreglunnar. Við erum
að byggja upp fyrir á annað hundrað
milljóna króna og því leiðinlegt að
alltaf sé verið að skemma.“
Mikil uppbygging tengd ferða-
þjónustu hefur átt sér stað á Siglu-
firði síðustu ár og er uppbygging
golfvallar og skíðasvæðis í firðinum
einn liður í þeirri uppbyggingu. – sa
Golfvöllur
skemmdur
ítrekað
Snjór í Esjunni
Esjan er komin með hvíta hettu þótt enn bóli ekkert á snjókomu hjá því fólki sem virti fjallið fyrir sér við Sólfar Jóns Gunnars Árnasonar í Reykja-
vík í gær. Engin snjókoma er í kortunum fyrir höfuðborgarbúa en Veðurstofa spáir snjókomu meðal annars við Skagafjörð, Eyjafjörð, Húsavík og á
Austfjörðum á næstu dögum. Fréttablaðið/GVa
stjórnmál Fulltrúar stjórnar-
andstöðuflokkanna í Þingvalla-
nefnd eru undrandi á orðum
Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis-
ráðherra og formanns nefndarinnar,
um að endanleg ákvörðun um
nýtingu forkaupsréttar Þingvalla-
nefndar á eign á Valhallarstíg nyrðri
7 við Þingvallavatn verði tekin í dag.
Ríkisútvarpið hafði ummælin eftir
Sigrúnu á sunnudag.
Á lóðinni er grunnur að 159 fer-
metra sumarhúsi í eigu Boga Páls-
sonar sem kenndur er við Toyota.
Þar áður hafa meðal annars athafna-
konan Sonja Zorilla og forsetinn
fyrrverandi, Vigdís Finnbogadóttir,
átt Valhallarstíg nyrðri 7. Eignin er
metin á um 85 milljónir króna.
„Ég hafði fengið þau skilaboð frá
formanni og varaformanni nefnd-
arinnar að það væri búið að taka
þessa ákvörðun. Í gær [á sunnudag]
sagði hún að hún ætlaði hins vegar
ekki að tjá sig um þetta mál fyrr en
endanleg afgreiðsla þess lægi fyrir
sem væri á fundi nefndarinnar á
morgun [í dag],“ segir Róbert Mars-
hall, fulltrúi Bjartrar framtíðar í
nefndinni. Hann sagði að miðað
við þau ummæli væri ekki búið að
taka endanlega ákvörðun og fagnar
hann því.
Róbert segir að það hafi mátt
skilja á fundi nefndarinnar að meiri-
hluti hafi ákveðið að falla frá for-
kaupsrétti. „Það fór fram atkvæða-
greiðsla um það,“ segir Róbert en
hann var ekki viðstaddur fundinn.
Eftir að hafa séð svar Sigrúnar seg-
ist Róbert fagna því að hún líti svo
á að málið sé ekki fullafgreitt. Þá sé
hægt að taka það upp á ný og beita
forkaupsréttinum sem Róbert telur
rétt að gera.
Oddný Harðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar og fulltrúi
hennar í nefndinni, tekur í sama
streng. „Það var gengið frá þessu á
síðasta fundi. Þetta finnst mér mjög
skrítið. Þau hljóta bara að ætla að
taka málið upp aftur,“ segir Oddný.
„Ef fjármála- og forsætisráðu-
neytin segja að það séu ekki til fjár-
munir til að kaupa þessa lóð, sem
væri kjörinn staður fyrir almenn-
ing til að komast að Þingvallavatni,
finnst mér að þjóðin ætti að safna
fyrir henni,“ segir Róbert.
Oddný er sammála því að nýta
eigi forkaupsréttinn. „Það er svo
augljóst að það smellpassar við
stefnu þjóðgarðsins að nýta for-
kaupsréttinn á þessari lóð. Þetta er
frábær staður og almenningur á að
fá að njóta hans.“
thorgnyr@frettabladid.is
Talsverð óvissa með
nýtingu forkaupsréttar
Fulltrúar stjórnarandstöðu í Þingvallanefnd undrast orð formannsins um að
ákvörðun um nýtingu forkaupsréttar hafi ekki verið tekin. Þeir segjast hafa skilið
það svo að ekki stæði til að kaupa grunn að sumarhúsi við Valhallarstíg nyrðri.
Eignin sem fulltrúar stjórnarandstöðunnar vilja að nefndin nýti forkaupsrétt á
stendur við Þingvallavatn. Fréttablaðið/pjEtur
KínA Meira en milljón Kínverjar
tóku í gær próf í von um að fá starf
hjá hinu opinbera. Alls voru 19.000
störf í boði en hið allra vinsælasta
reyndist vera skrifstofustaða hjá
valdalausum stjórnmálaflokki.
Opinberum störfum í Kína hefur í
gegnum tíðina verið lýst sem „gylltri
grjónaskál“ en þau þykja vinsæl
sökum veglegs fríðindapakka sem
þeim fylgja. Launin eru stöðug og
þá geta þau að lokum leitt til inn-
göngu í Kommúnistaflokkinn. Á
móti er einkageirinn óskipulagðari
og óvissa varðandi laun og starfs-
frama meiri.
Vinsælasta starfið reyndist vera
ritarastaða hjá Lýðræðisbandalagi
Kína en það er einn átta stjórnmála-
flokka, utan Kommúnistaflokksins,
sem leyfður er í landinu. Flokkurinn
er af mörgum talinn vera til í þeim
eina tilgangi að kínversk stjórnvöld
geti sýnt fram á að fleiri flokkar en
Kommúnistaflokkurinn séu starf-
ræktir í landinu.
Umrætt starf er í Peking og þurfa
umsækjendur aðeins að hafa lokið
grunnnámi í háskóla. Þá er gerð
krafa um tveggja ára reynslu af
vinnumarkaði.
Ríflega 1,5 milljón manna skráði
sig í prófið en um 400 þúsund, ríf-
lega íbúafjöldi Íslands, mætti ekki
í prófið. Kínverjar hvaðanæva að úr
heiminum sneru aftur til ættlands-
ins í von um að hreppa hnossið.
- jóe
Átta þúsund
sóttu um
ritarastarf
Gífurleg ásókn er í prófið enda fríð-
indin sem fylgja opinberum störfum
mikil. NOrDiC pHOtOS/GEttY
Ég hafði fengið þau
skilaboð frá for-
manni og varaformanni
nefndarinnar að það væri
búið að taka
þessa ákvörð-
un.
Róbert Marshall,
Bjartri framtíð
Það var gengið frá
þessu á síðasta
fundi. Þetta finnst mér mjög
skrítið.
Oddný Harðardóttir,
formaður Sam
fylkingar
2 5 . o K t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i ð j u D A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-C
A
6
C
1
B
0
C
-C
9
3
0
1
B
0
C
-C
7
F
4
1
B
0
C
-C
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K