Fréttablaðið - 25.10.2016, Page 10
Suðurkjördæmi í hnotskurn
201
6
Ellefu framboð bjóða fram lista í Suðurkjördæmi
fyrir alþingiskosningar 2016. Hér fyrir neðan má sjá
efstu menn á hverjum lista.
Fjöldi á kjörskrá í
kosningunum 2013
33.619
Stærð kjördæmis
31.802 km2
Sveitarfélög í kjördæminu
Sveitarfélagið Hornafjörður,
Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur,
Rangárþing eystra, Rangárþing ytra,
Ásahreppur, Vestmannaeyjabær,
Flóahreppur, Sveitarfélagið Árborg,
Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hruna-
mannahreppur, Bláskógabyggð,
Grímsnes- og Grafningshreppur,
Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus,
Grindavíkurbær, Sandgerðisbær,
Sveitarfélagið Garður, Reykjanesbær
og Sveitarfélagið Vogar.
2 formenn
stjórnmálaflokka á Alþingi
bjóða fram í Suðurkjördæmi,
þau Sigurður Ingi Jóhannsson
og Oddný G. Harðardóttir.
Fjöldi á kjörskrá
35.458
Karlar
18.223
Konur
17.235
4,5%
Úrslit síðustu kosninga
5,9%
10,2%
Aðrir
11,9%
28,3%
34,5%
4,7%
Þingmenn
Þingmenn sem hætta
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
Haraldur
Einarsson
þingmaður Fram-
sóknarflokksins
Páll Jóhann
Pálsson
þingmaður Fram-
sóknarflokksins
Guðmundur
Karl Þorleifsson
Íslensku þjóð-
fylkingunni
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Framsóknarflokki
Ari Trausti
Guðmundsson
Vinstri grænum
Sturla Hólm
Jónsson
Dögun
Smári
McCarthy
Pírötum
Páll Valur
Björnsson
Bjartri framtíð
Oddný G.
Harðardóttir
Samfylkingunni
Halldór
Gunnarsson
Flokki fólksins
Páll
Magnússon
Sjálfstæðisflokki
Suðurkjördæmi nær frá sveitar-félaginu Hornafirði til sveitar-félagsins Voga og eru þingmenn
kjördæmisins tíu. Framsóknar-
flokkurinn vann þar stórsigur í síð-
ustu kosningum, með 34,5 prósent
atkvæða og Sjálfstæðisflokkurinn
var með 28,3 prósent. Hvor flokkur
fékk fjóra þingmenn kjörna, Sam-
fylkingin og Björt framtíð fengu
síðan hvor sinn manninn.
Það virðist ekki ýkja margt sem
sameinar mannlífið og atvinnulífið
á Reykjanesskaganum annars vegar
og hins vegar á Suðurlandinu. Þó má
segja að á báðum stöðum sé ferða-
þjónustan vaxandi þáttur, eins og
reyndar víðast hvar á Íslandi. Það
kann að hafa áhrif á það að krafan
eftir bættum samgöngum er fólki
mjög ofarlega í huga.
Sólheimar í Grímsnesi er klár-
lega ein af perlum Suðurlands. Guð-
mundur Ármann Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Sólheima, segir þrennt
brenna á sér fyrir kosningarnar. „Það
eru velferðarmálin sem brenna. Það
eru samgöngumálin og mér finnst
líka mikilvægt, sem ekki er mikið
rætt um, og það er að greiða niður
skuldir ríkisins,“ segir hann.
Guðmundur segir að menn verði
að hugsa til þess hvernig þeir ætli
að þróa heilbrigðisþjónustuna.
„Mér finnst það ekki vera æskileg
þróun að miða allt inn á höfuð-
borgarsvæðið þó að það fylgi því
ákveðin hagkvæmni. Mér finnst
mjög sérstakt að fyrir fimmtán til
tuttugu árum gátum við rekið bæði
sjúkrahús og mjög öfluga og góða
heilsugæslu úti um allt land. Þegar
við erum komin hingað þar sem við
höfum úr miklu meira að moða,
bæði tæknilega og fjárhagslega, þá
virðist okkur vera algerlega fyrir-
munað að reka öfluga heilsugæslu
úti um land,“ segir Guðmundur.
Það sé hagsmunamál fyrir dreifða
byggð í landinu að hugað sé að
þessu og bætt úr.
Hann segir samgöngumálin líka
mikið hagsmunamál fyrir Suður-
landið. Vegirnir á Suðurlandi séu
allt of mikið lestaðir, sérstaklega
eftir að ferðaþjónustan jókst.
Undir það tekur Olga Lísa
Garðarsdóttir, skólameistari við
Fjölbrautaskóla Suðurlands, sem
segir þjóðveg númer eitt löngu
sprunginn. „Ölfusárbrúin er komin
á kortið en það er ekki nóg að hún
sé á kortinu. Það þarf að fara að
hefjast handa við framkvæmdir og
tvöföldun á Reykjavík-Hveragerði
og klára að tvöfalda Hellisheiðina,“
segir Olga Lísa og bætir við að þetta
sé lífsspursmál fyrir fólkið í Árnes-
sýslu. „Og náttúrlega af því að ég er
með svo mikið af nemendum í upp-
sveitunum, þá er maður alltaf með
lífið í lúkunum hálfan veturinn yfir
því að þau fari sér að voða á leiðinni.
Vegna þess að vegirnir eru illa unnir
og mjóir og orðnir mjög þreyttir,“
segir Olga Lísa.
„Þriðja málið sem brennur á mér
persónulega eru umhverfismálin
í mjög stóru samhengi. Bæði með
tilliti til almenningssamgangna, frá-
veitumála, flokkunar úrgangs og svo
náttúrlega að með aukinni ferða-
mennsku verðum við ofboðslega
vör við hana, bæði á þjóðvegunum
og eins með tilliti til umhverfis-
mála,“ segir Olga Lísa.
Skólameistari hefur áhyggjur
af nemendunum í umferðinni
Skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands segir samgöngumál eitt mesta hagsmunamál Sunnlendinga. Veg-
irnir illa unnir og mjög þreyttir. Framkvæmdastjóri Sólheima segir velferðarmál og samgöngumál brenna
helst á sér. Segir skrítið að unnt hafi verið að reka öfluga heilsugæslu um land allt áður fyrr en ekki núna.
Hvað segja kjósendur?
HvER ERu bRýnuSTu
koSninGAmÁlin?
Sjö þúsund manns búa á Selfossi sem er stærsti þéttbýliskjarninn í sveitarfélaginu
Árborg. FRéTTAblAðið/PJETuR
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@365.is
Kosningar
2016
Mér finnst það ekki
vera æskileg þróun
að miða allt
inn á höfuð-
borgarsvæðið
Guðmundur Ár-
mann Pétursson
Jóna Sólveig
Elínardóttir
Viðreisn
Guðmundur
Sighvatsson
Alþýðufylkingunni
Ég óska þess að
útkoma kosning-
anna verði til þess að íbúar
Reykjanessins fái notið
jafnræðis gagnvart stjórn-
völdum varðandi úthlutun
styrkja og
fjárveitinga í
ýmis brýn
verkefni.
Sigurbjörn Jónsson,
bílstjóri Reykjanesbæ
Búandi í Vest-
mannaeyjum finnst
mér brýnast að koma
samgöngum milli lands og
Eyja og heilbrigðismálum á
hreint.
Salóme Ýr Rúnarsdóttir,
starfsmaður í Efna-
lauginni Straumi
- þvottahúsi
Að mínu mati
skiptir mestu máli
að efla heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni, bæta
samgöngur og stuðla að
uppbyggingu nýrra atvinnu-
tækifæra í kjördæminu.
Ingólfur Örn Jónsson,
rafvirki í Grímsnes-
og Grafningshreppi
2 5 . o K t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-D
9
3
C
1
B
0
C
-D
8
0
0
1
B
0
C
-D
6
C
4
1
B
0
C
-D
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K