Fréttablaðið - 25.10.2016, Síða 16
Snorri Steinn í tölum
1 Snorri Steinn er markahæsti leikstjórnandi íslenska
landsliðsins frá upphafi en hann
skoraði 317 mörkum meira en Geir
Hallsteinsson og 359 mörkum
meira en Sigurður Gunnarsson.
848Snorri Steinn er fimmti markahæsti
leikmaður íslenska landsliðsins
frá upphafi á eftir þeim Guðjóni
Val Sigurðssyni, Ólafi Stefáns-
syni, Kristjáni Arasyni og Valdimar
Grímssyni.
14 Snorri Steinn tók þátt í fjórtán stórmótum með
íslenska landsliðinu allt frá HM í
Portúgal 2003 til EM í Póllandi
2016.
319 Snorri Steinn skoraði 3,8 mörk að
meðaltali í leik í 85 leikjum sínum
á stórmótum með íslenska
landsliðinu. Hann var með 4,3
mörk í leik á sex Evrópumótum, 3,5
mörk í leik í fimm heimsmeistara-
keppnum og 3,2 mörk í leik á
þrennum Ólympíu-
leikum.
48 Snorri Steinn
skoraði flest
mörk íslenska
liðsins á
Ólympíuleikunum
í Peking 2008 eða 48
mörk í 8 leikjum.
Íslenska liðið vann
silfur á leikunum
og Snorri var
kosinn í lið mótsins
en aðeins
Spánverjinn Juanín
García skoraði fleiri
mörk á ÓL 2008.
Í dag
18.40 Liverpool - Tottenh. Sport 2
Bikarkeppni karla í handbolta:
19.30 Þróttur - Afture. Laugardalsh.
19.30 Valur 2 - Stjarnan TM-höllin
björgvin páll í hauka
landsliðsmarkvörðurinn björgvin
páll gústavsson greindi óvænt
frá því í gærmorgun að hann
hafi ákveðið að snúa aftur til
íslands í sumar
og leika með
haukum. gerði
hann tveggja
ára samning við
félagið sem tekur
gildi fyrir næsta
tímabil.
geir Sveinsson, landsliðsþjálfari
íslands, gladdist fyrir hönd björg-
vins páls í samtali við Fréttablaðið.
„Þetta eru frábærar fréttir fyrir
hauka, hann sjálfan og íslenskan
handbolta. Mestu máli skiptir að
hann er afar sáttur við þetta,“ sagði
geir sem segir að það dragi ekki
úr líkum björgvins páls á lands-
liðssæti að spila á íslandi fremur
en í sterkri atvinnumannadeild í
Evrópu.
„alls ekki. Það skiptir engu
máli,“ sagði geir einfaldlega.
vignir og róbErt Ekki
valdir í landSliðið
línumennirnir vignir Svavarsson
og róbert gunnarsson voru ekki
valdir í íslenska landsliðið sem
mætir tékklandi og Úkraínu í
undankeppni EM 2018 í byrjun
næsta mánaðar. geir Sveinsson
landsliðsþjálfari ákvað frekar að
velja kára kristján kristjánsson og
arnar Frey arnarsson en sá síðar-
nefndi hefur verið að spila vel með
kristianstad í Svíþjóð.
geir sagði vignir og róbert
koma áfram til greina í
íslenska landsliðið en að
hann hefði viljað gefa
arnari Frey tæki-
færið nú.
„Ég hringdi í þá
og greindi frá þess-
ari ákvörðun og
sagði þeim
jafnframt
að það
væri engin
ákvörðun
um fram-
tíðina
sem lægi
fyrir.“
sagði
geir.
Íslenski landsliðshópurinn
Markmenn:
Aron Rafn Eðvarðsson Bietigheim
Björgvin Páll Gústavsson Bergischer
Grétar Ari Guðjónsson Selfoss
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson Kristianstad
Arnór Atlason Aalborg
Arnór Þór Gunnarsson Bergischer
Aron Pálmarsson Veszprém
Ásgeir Örn Hallgrímsson Nimes
Bjarki Már Elísson Fuchse Berlin
Bjarki Már Gunnarsson EHV Aue
Geir Guðmundsson Cesson Rennes
Guðjón Valur Sigurðsson RN Löwen
Guðmundur H. Helgason Cesson R.
Gunnar St. Jónsson Kristianstad
Janus Daði Smárason Haukar
Kári Kristján Kristjánsson ÍBV
Ólafur Guðmundsson Kristianstad
Ómar Ingi Magnússon Aarhus
Rúnar Kárason Hannover-Burgdorf
Stefán Rafn Sigurmannsson Aalborg
Theodór Sigurbjörnsson ÍBV
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r16 s p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
hAnDboLtI „Þegar maður hefur
verið í þessu svona lengi, þá er
þetta ekki bara fluga sem maður
fær í höfuðið og slær til. Þetta er
búið að gerjast í mér í þó nokkurn
tíma,“ segir Snorri Steinn guð-
jónsson, en hann tilkynnti í gær
að hann hefði ákveðið að leggja
landsliðsskóna á hilluna.
Snorri er annar silfurdrengjanna
frá peking sem leggur landsliðs-
skóna á hilluna á skömmum tíma
en alexander petersson tók einnig
ákvörðun um að hætta með lands-
liðinu á dögunum.
Snorri spilaði sinn fyrsta lands-
leik gegn noregi þann 2. nóvem-
ber árið 2001. landsliðsferill hans
spannar því nærri 15 ár og eina 257
landsleiki. á ferlinum fór Snorri á
14 stórmót með landsliðinu og
vann til tvennra verðlauna; á ól
árið 2008 og á EM í austurríki árið
2010.
„auðvitað var þetta gríðarlega
erfið ákvörðun og líklega með erf-
iðari ákvörðunum sem ég hef tekið
sem handboltamaður. Það er engin
ein ástæða fyrir því að ég hætti
núna. Það er hitt og þetta. Ein-
hvern tímann kemur tími á þetta
hjá öllum og mér fannst þetta vera
fínn tímapunktur fyrir mig til þess
að stíga til hliðar. tilfinningin og
hjartað sagði mér að gera þetta og
það er oft gott að fylgja því,“ segir
Snorri Steinn og getur ekki neitað
því að verða svolítið meyr er hann
hugsar til þess að eiga aldrei aftur
eftir að spila fyrir landsliðið.
„Það er óhætt að segja það og ég
er ekkert feiminn við það. Það er
að ljúka risakafla hjá mér og það
er ekkert leyndarmál að landsliðið
hefur gefið mér mínar skemmtileg-
ustu og erfiðustu stundir ferilsins.
áður fyrr þoldi maður ekki ein-
hverja hluti í landsliðinu en þegar
þetta er búið þá þykir manni vænt
um allan tímann í heild sinni. Mér
þykir alveg jafn vænt um verstu
stundirnar og þær bestu. Ég á eftir
að sakna allra þessara stunda og ég
Risakafla í lífi mínu að ljúka
Leikstjórnandi landsliðsins, Snorri Steinn Guðjónsson, hefur lagt landsliðsskóna á hilluna 35 ára að aldri.
Hann segir ákvörðunina hafa verið mjög erfiða. Hann spilaði 257 landsleiki fyrir íslenska landsliðið.
Takk og bless. Snorri Steinn yfirgefur nú landsliðið eftir afar gifturíkan landsliðsferil sem spannaði heil fimmtán ár. fréTTABLAðið/eVA
held að það sé óeðlilegt að sakna
þeirra ekki. Ég vona að ég eigi eftir
að sakna þeirra. að ég hafi ekki
eytt fimmtán árum í eitthvað sem
ég mun ekki sakna.“
Snorri viðurkennir að tilhugs-
unin um að horfa á landsliðið á
næstunni og geta ekkert gert uppi
í sófa heima hjá sér sé óneitanlega
sérstök.
„Það verður erfitt. Ég held að
það sé enginn tímapunktur auð-
veldur til að hætta. Ég held að
fyrstu leikirnir og stórmótin sem
ég missi af verði skrítinn tími.
Ég á örugg-
lega eftir að
horfa á þetta meira sem leikmaður
og það eru örugglega einhver mót í
að ég fari að horfa á landsliðið sem
handboltaunnandi í sófanum með
bjór,“ segir Snorri Steinn léttur, en
hvað stendur upp úr á landsliðs-
ferlinum?
„Það eru auðvitað þessir tveir
verðlaunapeningar sem munu
standa upp úr. Þegar maður finnur
að þetta er búið þá verður maður
svolítið meyr og fer að þykja vænt
um alls konar hluti. Ég ætla ekki að
þylja upp marga hluti núna þó svo
að hver nótt með robba hafi verið
gulls ígildi,“ segir Snorri Steinn
kíminn en þar á hann við línu-
manninn róbert gunnarsson sem
hefur verið herbergisfélagi hans í
landsliðinu um árabil.
leikstjórnandinn magnaði er
orðinn 35 ára gamall og mun ekki
leggja handboltaskóna á hilluna
alveg strax. hann er leikmaður
hjá nimes í Frakklandi þar sem
hann hefur spilað ótrúlega vel.
„Ég á eitt og hálft ár eftir af
samningi mínum við félagið og
við fjölskyldan erum farin að
horfa heim. Þetta er búinn að vera
langur tími ytra og verða 15 ár ef
ég klára samninginn hérna,“ segir
Snorri Steinn sem hefur þegar
tekið ákvörðun um framhaldið
er hann kemur heim.
„Það er ekkert leyndarmál að
ég ætla mér út í þjálfun. Mér
finnst það spennandi tilhugs-
un. Svo verður að koma í ljós
hvað verður úr því. kannski
verð ég ömurlegur þjálfari.
Ef ég spila einhvern leik
eftir að ég kem heim þá
verður það með val. Ef
ég þjálfa eitthvert annað
lið þá mun ég ekki spila
fyrir það. bara þjálfa það.
Ég þori alveg að segja það
og stend vonandi við það.
Þetta eru bara vangaveltur sem ég
er samt ekki að spá mikið í núna.
Það var nógu erfitt að hætta með
landsliðinu.“ henry@frettabladid.is
Þegar maður finnur
að þetta er búið þá
verður maður svolítið meyr.
Ég ætla ekki að þylja upp
marga hluti núna þó svo að
hver nótt með Robba hafi
verið gulls ígildi.
Snorri Steinn Guðjónsson
spoRt
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
C
-F
B
C
C
1
B
0
C
-F
A
9
0
1
B
0
C
-F
9
5
4
1
B
0
C
-F
8
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K