Fréttablaðið - 25.10.2016, Síða 36
Rapparinn, söngvarinn og hjarta knúsarinn Drake tilkynnti það í útvarpsþætt
inum sínum OVO Sound á sunnu
dagskvöldið að hann hygðist gefa
út nýja tónlist í desember.
Ekki er á hreinu hvort um er að
ræða eiginlega plötu eða í hvaða
formi þessi nýja útgáfa verður en
hann talaði um að þetta yrði „a play
list“ eða „lagalisti“. Hvað sem þetta
nú er mun það vera titlað More Life.
„Ég vil gefa ykkur samansafn af
lögum sem geta orðið hljóðrás lífs
ykkar, þannig að þetta mun verða
More Life: lagalistinn. Allt saman ný
tónlist frá mér,“ sagði Drake meðal
annars í þættinum. Rapparinn kan
adíski spilaði þrjú ný lög sem vænt
anlega munu verða hluti af þessari
nýju útgáfu sem hann sendir frá sér
í desember, Two Birds One Stone,
Fake Love og Sneakin‘, það síðast
nefnda ásamt hinum unga rappara
21 Savage sem hefur verið að gera
það gott upp á síðkastið.
Annars var Drake nokkuð dular
fullur og gaf ekki mikið upp um eðli
þessarar útgáfu en hann gaf samt í
skyn að það yrði eitthvað um sam
vinnuverkefni eins og í Sneakin‘.
Drake gaf síðast út plötuna Views
í apríl og hefur henni meðal annars
verið streymt ótal oft og slegið öll
fyrri met yfir streymisfjölda. Hann
hefur einnig verið mjög upptekinn
í allt sumar en hann lagði land undir
fót og spilaði á slatta af tónleikum.
Hann tilkynnti einnig fyrir um
tveimur vikum að Evrópuferðalag
hans myndi hefjast í janúar og því
má búast við að hann mæti með nýtt
og ferskt efni til Evrópu. – sþh
Drake tilkynnir að hann ætli að gefa út nýtt efni í desember
Það er alltaf blússandi fjör hjá rapparanum kanadíska en hann er í miklu stuði
þessa dagana og fullt af tónlist á leiðinni.
Leikritið er byggt lauslega á samnefndri kvikmynd frá árinu 1984, eftir John Hughes. Það fjallar um hóp unglinga sem þekkjast lítið sem ekkert en
neyðast til að verja heilum laugar
degi saman á bókasafni, undir eftirliti
kennara sem hefur innleitt eftirsetu
að hætti bandarískra menntaskóla, í
Verzlunarskóla Íslands,“ segir Dom
inique Gyða Sigrúnardóttir, leikstjóri
sýningarinnar The Breakfast Club,
sem Verzlunarskóli Íslands mun
frumsýna 4. nóvember næstkomandi
í bláa sal Verzlunarskólans.
Um er að ræða afmælissýningu
skólans, en mikil tilviljun er að sama
sýning var sett upp í Verzlunar
skólanum fyrir 30 árum, árið sem
hið nýja húsnæði skólans var tekið
í notkun. „Þetta er algjör tilviljun.
Verkið var svo sett upp aftur 1996,
þá var það Jakob Ingimundarson
sem leikstýrði og Jóhannes Ásbjörns
son, betur þekktur sem Jói í „Simmi
og Jói“, fór með eitt af aðalhlutverk
unum í verkinu,“ segir Dominique.
Óhætt að segja að nóg sé um að
vera í uppsetningarferli verksins í
dag, þar sem tæpar tvær vikur eru
Verslunarskóli Íslands setur upp leiksýninguna The Breakfast Club 4. nóvember. FréTTaBlaðið/Ernir.
Dominique Gyða Sig-
rúnardóttir leikstýrir
sýningunni.
þar til hópurinn frumsýnir
leikritið. „Við erum byrjuð
að renna, hljóð og ljós
eru að detta inn. Það
er spennandi staður
að vera á í svona ferli
þegar verkið fer að taka
á sig mynd,“ segir hún.
Leikritið er byggt
lauslega á kvikmyndinni,
en töluverðar breytingar
hafa orðið á þýðingu hand
ritsins. „Ég hafði oft séð myndina
en það var margt sem rann ekki upp
fyrir mér fyrr en ég fór að þýða verkið
og skrifa leikgerðina. Það kom mér á
óvart að það er töluvert um ofbeldi
í kvikmyndahandritinu. Kennarinn
hótar að berja nemanda fyrir að hafa
gert grín að honum og einn af nem
endunum spyr annan mjög persónu
legra og kynferðislegra spurninga
sem myndi flokkast sem kynferðis
leg áreitni í dag,“ segir Dominique,
og bætir við að hópurinn hafi rætt
þetta vel og verið mjög gagnrýninn
á handritið.
Fjöldi fólks kemur að sýningunni
í ár, aðstoðarleikstjóri er Máni Hug
insson, nemandi á öðru ári, og tón
listarmaðurinn Daði Freyr Pétursson,
betur þekktur sem
Mixophrygian, sér
um tónlistina.„Við
höfum mikla trú á
að tónlistin muni
koma áhorfendum
skemmtilega á óvart,“
segir Dominique.
Með aðalhlutverk í sýning
unni fara þau Höskuldur Þór Jónsson,
Karítas Bjarkardóttir, Mikael Emil
Kaaber, Selma Kristín Gísladóttir,
Viktor Pétur Finnsson og Þórdís Jak
obsdóttir en þau þykja öll efnilegir
leikarar.
„Krakkarnir hafa unnið hörðum
höndum við að gera karakterana
að sínum án þess að glata megin
einkennum upprunalegu fyrir
myndanna. Þau hafa vikulega gefið
út svokölluð karaktermyndbönd á
heimasíðu leikritsins á Facebook,
leiksýning Verzlunarskóla Íslands
2016. Myndböndin hafa fengið frá
bær viðbrögð og skapað smá eftir
væntingu,“ segir Dominique.
gudrunjona@frettabladid.is
Ég vil gefa ykkur
samansafn af
lögum sem geta orðið
hljóðrás lífs ykkar.
setja aftur upp
fyrstu sýningu
skólans
Verzlunarskóli Íslands frumsýnir leikverkið
The Breakfast Club 4. nóvember næstkom-
andi. Þrjátíu ár eru frá því að sama sýning
var sett upp í skólanum. Dominique Gyða
Sigrúnardóttir leikstjóri segir leikhópinn hafa
verið gagnrýninn á handrit sýningarinnar.
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r28 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
Lífið
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
C
-E
C
F
C
1
B
0
C
-E
B
C
0
1
B
0
C
-E
A
8
4
1
B
0
C
-E
9
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K