Fréttablaðið - 25.10.2016, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SKRIFSTOFUSKÓLI
NTV OG
MÍMIS
HEFST
8. NÓVEMBER
ALMENNT SKRIFSTOFU- OG
TÖLVUNÁM MEÐ ÁHERSLU Á
AÐ STYRKJA EINSTAKLING-
INN OG GERA HANN HÆFARI
TIL AÐ TAKAST Á VIÐ
KREFJANDI STÖRF. NÁMIÐ
ER NIÐURGREITT OG UNNIÐ
Í SAMVINNU VIÐ MÍMI-
SÍMENNTUN, KOSTAR
49.000 KR OG SNIÐIÐ AÐ
FÓLKI SEM HEFUR STUTTA
SKÓLAGÖNGU AÐ BAKI.
Það er nú bara við hæfi að vitna í Michelle Obama þegar hún sagði: „When they go low, we go high.“ Það þykir mér Arna Ýr hafa gert í
þessu máli,“ segir Linda Péturs
dóttir, athafnakona og fyrrverandi
alheimsfegurðardrottning, spurð
út í fréttir síðustu daga af Örnu Ýri
Jónsdóttur, fegurðardrottningu
Íslands, sem hætti við að taka þátt
í keppninni Miss Grand Inter
national í Las Vegas eftir að hafa
verið skipað að grenna sig.
Forsaga málsins er sú að Arna
Ýr var komin til Las Vegas til
að taka þátt í Miss Grand Inter
national 2016 þegar hún greindi frá
því á samfélagsmiðlum á föstudag
að starfsfólk hefði fært henni þau
skilaboð frá eiganda keppninnar að
hún þyrfti að grenna sig. Eftir fund
með eigandanum daginn eftir sagði
fegurðardrottningin að um mis
skilning hefði verið að ræða, en dró
þá útskýringu til baka á sunnudag
og sagði sér sannarlega hafa verið
sagt að hún væri of feit. Jafnframt
sagðist Arna Ýr þá dauðsjá eftir því
að hafa látið undan þeim beiðnum
aðstandenda keppninnar að leið
rétta „misskilninginn“ svokallaða
og dró sig um leið út úr keppninni.
Linda Pétursdóttir, sem keppti
sjálf í alþjóðlegum fegurðarsam
keppnum á sínum tíma og hefur
meðal annars starfað sem dómari
í slíkum keppnum undanfarin ár,
segist aldrei hafa heyrt um keppn
ina Miss Grand International áður
en hún frétti af raunum Örnu Ýrar
um helgina. „Ég get fullyrt það
að engin virðingarverð alþjóðleg
keppni myndi láta það líðast að
svona væri komið fram við kepp
endur. Ég hef aldrei heyrt um
svona framkomu áður, og hvað þá
að keppanda sé skipað að borða
bara eina salatmáltíð á dag, sem
er beinlínis óheilbrigt. Þetta eru
afskaplega gamaldags viðhorf,“
segir Linda og bætir við að huga
mætti betur að því hvaða erlendu
keppnum er keppt í. „Stóru keppn
irnar tvær, Miss World og Miss Uni
verse, eiga sér mjög langa sögu en
það er fullt af keppnum sem ég
myndi aldrei senda stelpur í og
það segir sína sögu að eigandinn
láti hafa svona hluti eftir sér. Hann
hefur augljóslega enga reynslu. En
Arna Ýr er stórglæsileg stelpa í alla
staði og mjög töff hvernig hún tók á
þessu. Við látum ekki tala svona við
okkur og þessi eigandi er bara ein
hver ruglaður kall sem ætti að snúa
sér að öðru,“ segir Linda, harðorð í
garð eiganda Miss Grand Interna
tional, taílensku sjónvarpsstjörn
unnar Nawat Its ara grisil.
Fanney Ingvarsdóttir, sem var
kosin Ungfrú Ísland árið 2010 og
gegnir nú meðal annars stöðu fram
kvæmdastjóra keppninnar, tekur í
sama streng og segist aldrei hafa
þurft að upplifa nokkuð slíkt sjálf
þrátt fyrir að hafa margsinnis tekið
þátt í alþjóðlegum keppnum. Hún
tekur fram að Arna Ýr hafi ekki
verið send í Miss Grand Internat
ional á vegum Ungfrú Ísland
keppninnar heldur sé það Svíi að
nafni Peter Hadward, eigandi Miss
Queen of Scandinaviakeppninnar,
sem hafi verið iðinn við að senda
íslenska keppendur í ýmsar keppnir
um allan heim síðustu árin. „Peter er
góður maður sem ber að treysta, en
ég veit ekki hvort hann hefur áður
sent stelpur í þessa keppni. Mér brá
mjög mikið og þótti erfitt að heyra
Örnu Ýri segja frá því sem hún gekk
í gegn um úti í Las Vegas, en ég gæti
ekki verið stoltari af henni. Hún er
hetja með bein í nefinu. Það á eng
inn að þurfa að sætta sig við svona
framkomu,“ segir Fanney.
„Ég upplifði ekki neinar svona
óraunhæfar útlitslegar kröfur til
mín þegar ég var að keppa,“ segir
Hugrún Harðardóttir, sem var kosin
Ungfrú Ísland árið 2004 og keppti í
kjölfarið meðal annars í Miss World
og Miss Scandinavia. Hún segir þó
að fréttirnar af Örnu Ýri í Las Vegas
hafi ekki endilega komið henni
mikið á óvart. „Þessi heimur geng
ur voðalega mikið út á svona hluti
og ef manni er ekki sama um það
hvað aðrir segja um útlit manns
ætti maður líklega ekki að vera
þátttakandi í þessum heimi,“
segir Hugrún.
kjartang@frettabladid.is
Við látum ekki tala
svona við okkur
Fegurðardrottningar Íslands segjast aldrei hafa þurft að þola viðlíka
framkomu og Arna Ýr Jónsdóttir í Miss Grand International. Hún er
hetja með bein í nefinu, segir framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland.
Fanney Ingvarsdóttir
Ungfrú Ísland 2010
Hugrún HarðardóttirLinda Pétursdóttir
Ungfrú Ísland 1988 Ungfrú Ísland 2004
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D A G U r30 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
C
-D
9
3
C
1
B
0
C
-D
8
0
0
1
B
0
C
-D
6
C
4
1
B
0
C
-D
5
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K