Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 2

Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 2
Veður Ákveðin sunnanátt á landinu, en dregur heldur úr vindi þegar líður á daginn. Víða skúrir sunnan og vestan til á landinu, en léttir til um landið norðaustanvert. Milt í veðri, hiti 7 til 16 stig. sjá síðu 18 Lýðræðisflokkurinn (s.u.s.m) Stjórnmálahreyfing um siðvæddan markaðsbúskap. Stofnfundur Lýðræðisflokksins Verður haldinn í Haukahúsinu Ásvöllum 1 fimmtudaginn 6. október kl. 20. Stefnum á að bjóða fram í öllum kjördæmum. Helstu baráttumál: Lýðræði í stað olnbogastjórnmála og hrossakaupa. Fjármálalífið á Íslandi og siðlausir lánasamningar svo sem verðtryggingin. Eignarhald á bankastofnunum og framtíðar skipan fjármálakerfisins. Auðlindir þjóðarinnar varðir. Erum ekki Evrópuflokkur. Verja stjórnarskrána fyrir minnihlutaöflum. Ná sátt um heilbrigðiskerfið. Fast tekið á aflandsfélögum og peningaþvottavélum. Kynntu þér stofnskjal flokksins. Áhugasamir sendi vefpóst á lydraedisflokkurinn@simnet.is sAMFÉLAG Adam Williams, 25 ára breskur lögregluþjónn og stuðn- ingsmaður íslenska landsliðsins í fótbolta, sem stunginn var eftir leik Íslands og Frakklands á Evrópu- mótinu í fótbolta í sumar, er kom- inn hingað til lands ásamt unnustu sinni. Hann hyggst sjá leiki Íslands gegn Finnlandi og Tyrklandi í und- ankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvelli. Adam komst í fréttirnar eftir að ókunnugur maður réðst á hann eftir leik Íslands og Frakklands. Bati hans hefur verið snöggur og hann er snúinn aftur til fyrri starfa. „Ég hef verið að sinna skrifstofuvinnu hjá lögreglu að undanförnu en býst við að snúa aftur út á götuna þegar ég kem heim frá Íslandi.“ Eftir að fréttir bárust af árásinni settu íslenskir stuðningsmenn sig í samband við aðila hér heima með það að marki að bjóða par- inu hingað til lands og á leik með landsliðinu. Hannes Freyr Sigurðs- son, gallharður stuðningsmaður Íslands, fór fyrir því verkefni. Einn- ig hófst söfnun til styrktar Adam en hann hefur í hyggju að afhenda Barnaspítala Hringsins og Lands- björg hluta upphæðarinnar sem safnaðist. „Það sem gerðist eftir árásina, hvernig Íslendingar brugðust við, við trúðum því ekki. Vinir okkar heima trúðu því ekki heldur. Þetta er í raun lygilegt. Hlutir sem þessir fá þig til að öðlast trú á mannkyn- inu,“ segir Adam. Hann vill endur- gjalda þá góðmennsku með því að gefa til baka hluta peninganna sem söfnuðust. „Ísland og Íslendingar studdu mig í gegnum þá erfiðleika sem ég gekk í gegnum. Ef ég get Trúa vart góðvildinni sem þau mæta á Íslandi Breskur stuðningsmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, sem varð fyrir hnífsstunguárás á Evrópumótinu í Frakklandi, hlakkar mikið til að sjá lands- liðið leika hér á landi. Hann kom hingað til lands í boði Íslendinga. ReykjAvík Nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar að Framnesvegi 40, 42 og 44 hefur verið auglýst. Í skipu- laginu er gert ráð fyrir niðurrifi húsanna sem fyrir eru á lóðunum og að byggð verði ný hús í staðinn með níu íbúðum. Á vef Reykjavíkurborgar segir að nýbyggingarnar eigi að vera í sam- ræmi við byggð á Framnesvegi. Húsin tvö sem verða byggð á lóð- unum eiga hvort um sig hafa sjálf- stætt útlit, til dæmis hvað varðar gluggasetningu og litaval. Ásýnd og efnisval skal vera máluð steinsteypa í samræmi við aðliggjandi byggð. Tekið er fram í skilmálum að ekki verði veitt leyfi fyrir gistihúsastarf- semi eða skammtímaleigu í nýju húsunum. – jhh Byggt upp á Framnesvegi Hlaupið í haustvindi Undanfarna daga hefur fólk streymt inn á líkamsræktarstöðvar til þess að koma sér form fyrir veturinn. Svo eru aðrir sem vilja ekki sjá líkamsrækt- arstöðvarnar og hlaupa frekar úti í náttúrunni, sama hvernig viðrar. Það á við um þessar vinkonur sem hlupu í Heiðmörk í gær. Fréttablaðið/Vilhelm adam og Catherine eiga erfitt með að lýsa þakklætinu sem þau finna fyrir í garð Íslendinga. Fréttablaðið/anton brink orðið Íslendingum að liði með þessu móti þá geri ég það með bros á vör.“ „Ísland er afar fallegt og við erum mjög spennt yfir því að verja næstu átta dögum hérna,“ segir Adam en hann og Catherine Janes, unnusta hans, lentu hér í gær. Hann hlakkar mjög til leikjanna tveggja en bíður þess einnig með eftirvæntingu að komast í ýmsar dagsferðir meðan á fríi þeirra stendur. „Við Catherine viljum koma á fram- færi einlægum þökkum til Íslendinga og allra þeirra sem aðstoðuðu okkur. Við trúum þessu varla ennþá,“ segir Adam að lokum. johannoli@frettabladid.is ALþinGi Samkeppniseftirlitið óttast að ný lög um kjararáð geti veikt stofn- unina í aðhaldi sínu gagnvart stjórn- völdum. Frumvarp Bjarna Benedikts- sonar um kjararáð gerir ráð fyrir að laun forstjóra Samkeppniseftirlitsins verði tekin úr kjararáði og ákvörðun um laun falin fjármálaráðuneytinu. Samkeppniseftirlitið hefur bent á í umsögn sinni um frumvarpið að þetta geti veikt stofnunina sem þurfi að vera sjálfstæð. Samkeppniseftirlitið hefur það að hlutverki að rannsaka opin- bera aðila og því mikilvægt að það sé engum háð. „Samkeppniseftirlitið vill af þessu tilefni vekja athygli á því að við sam- þykkt samkeppnislaga var tekin upp sú skipan að þriggja manna stjórn færi með yfirstjórn eftirlitsins, réði stofnuninni forstjóra og tæki ákvörð- un um starfskjör hans. Þessari skipan var ekki síst komið á til þess að tryggja sjálfstæði stofnunarinnar,“ segir í umsögn eftirlitsins. – sa Lög um kjararáð valda áhyggjum ReykjAvíkuRboRG Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og flugvallar- vina, segir að hún hafi ekki þegið nein boð um ferðir á vegum borgar- innar og gagnrýnir upphæðina sem borgin þurfti að reiða fram fyrir náms- og kynnisferð skóla- og frí- stundaráðs til Alberta í Kanada í fyrra. Sveinbjörg var ekki á ferðalanga- lista borgarfulltrúa sem birtur var í Fréttablaðinu í síðustu viku þar sem heildarferðakostnaður Reykjavíkur- borgar var birtur fyrir árið 2015. „Ég hef skilning á að borgarstjóri hafi embættisskyldur erlendis en það er fullt sem þarf að vinna í borg- inni. Ég hef lýst því yfir að verk mín eiga að vera í Reykjavík. Að vera að senda heilu deildirnar í vikuferð til Kanada á kostnað annarra, það er ekki minn tebolli,“ segir hún. – bbh Ferðast ekki á kostnað borgara Það sem gerðist eftir árásina, hvernig Íslendingar brugðust við, við trúðum því ekki. Vinir okkar heima trúðu því ekki heldur. Adam Williams lögregluþjónn Tekið er fram í skil- málum að ekki verði veitt leyfi fyrir gistihúsastarfsemi eða skammtímaleigu. 4 . o k t ó b e R 2 0 1 6 þ R i ð j u D A G u R2 F R É t t i R ∙ F R É t t A b L A ð i ð 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 4 -E 1 2 8 1 A F 4 -D F E C 1 A F 4 -D E B 0 1 A F 4 -D D 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.