Fréttablaðið - 04.10.2016, Side 4
26. nóvember kl. 20.00
Jólatónleikar í Grafarvogskirkju
Hera Björk • La Angell • Krtinn Sigmundsson • Greta Salóme • Friðrik Dór
Karlakór Kjalninga og sönghópurinn Harmonia amt hljómsveit
undir stjórn Óskars Einarssonar
Miðala á miði.
fornleifar Nauðsynlegt er að ráð-
ast í skráningu fornleifa í Skaftár-
tungu á þeim slóðum sem tíundu
aldar sverð og mannabein fundust
á síðastliðnum vikum. Eins þarf
að gera ráðstafanir til að varðveita
þekktar fornminjar á svæðinu sem
ella munu tapast í ána Eldvatn. Þar
á meðal er kirkjugarður.
Þetta segir Uggi Ævarsson, minja-
vörður Suðurlands, sem hefur um
helgina rannsakað fundarstað bein-
anna í landi Ytri-Ása í Skaftártungu,
en eins og kunnugt er gengu gæsa-
skyttur fram á mannabein á laugar-
dag og var fundarstaðurinn aðeins
nokkrum tugum metra frá þeim
stað þar sem annar hópur gæsa-
veiðimanna fann sverð frá tíundu
öld í september. Er sá fundur talinn
einn sá merkasti í íslenskri forn-
leifafræði í langan tíma enda slíkir
fundir fátíðir. Nærtækt er að álykta
að beinin séu af eiganda sverðsins,
þó sérfræðingar treysti sér ekki til
að fullyrða að svo sé.
„Eftir þetta stóra hlaup í fyrra –
Skaftárhlaupið í október – höfum
við verið að vinna viðbragðsáætlun
fyrir þetta hamfarasvæði næst Eld-
vatninu, og þá sérstaklega af meiri
þunga núna eftir þessa fundi. Þar
er fyrsta vers fornleifaskráning á
þessu svæði strax í haust. Síðan er
viðbúið að þurfi að grafa í tóftir sem
eru á árbakkanum sem eru í hættu.
Þess utan verður unnin vöktunar-
áætlun,“ segir Uggi og bætir við að
nú þegar sé vitað um þrjár tóftir sem
eru í bráðri hættu þar sem verður að
bregðast við strax.
„Svo eru önnur stærri mál eins
og þar sem áin er farin að ógna
gömlum kirkjugarði sem þarf að
verja með grjótgarði og moka upp
úr árfarveginum til að verja þessar
minjar, og þá til að stýra ánni frá
Eldvatn ógnar kirkjugarði
Aðkallandi er að skrá, rannsaka og varðveita fornminjar á bökkum Eldvatns. Verið er að vinna viðbragðs
áætlun á hamfarasvæðinu. Þrjár bæjartóftir í bráðri hættu. Það á einnig við um gamlan kirkjugarð á svæðinu.
Fornleifafræðingar skoða ummerki hlaupsins frá í fyrra ásamt Gísla Halldóri Magnússyni, bónda á Ytri-Ásum. MYnd/UGGi
kirkjugarðinum sem er á árbakk-
anum.“ Uggi segir jafnframt að aldur
þessara minja sem um ræðir sé ekki
þekktur og verði ekki staðfestur
nema með rannsóknum. Mikið sé
hins vegar af gjóskulögum á svæð-
inu svo aldursgreining sé ekkert til-
tökumál þegar þar að kemur.
Uggi og félagar fundu ekkert í
gær til viðbótar því sem hafði þegar
komið í leitirnar um helgina; botn-
inn á kumli þar sem fundust smá
fótabein, auk hluta af mjaðmagrind
sem og bein úr vinstri fæti. Eins hafa
fundist smáhlutir úr járni sem eftir
er að greina, en það er á verksviði til
þess bærra sérfræðinga. Eins verður
ráðist í það í vikunni að aldurs- og
kyngreina beinin.
„Við hreinsuðum allstórt svæði í
kringum fundarstaðinn, til að leita
af okkur allan grun. Hvorki komu í
ljós fleiri grafir né beinagrindur eða
bein,“ segir Uggi.
Almennt séð er það talið eitt af
brýnustu verkefnum Minjastofn-
unar Íslands að safna saman upp-
lýsingum um fornleifar, samræma
skráningu og gögn og miðla áfram
til almennings. svavar@frettabladid.is
Dómsmál Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
og Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrr-
verandi fjármálastjóri Kaupþings,
neituðu bæði sök þegar mál héraðs-
saksóknara gegn þeim var þingfest
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Hreiðar og Guðný eru ákærð fyrir
umboðs- og innherjasvik.
Í ákærunni kemur fram að Hreiðar
hafi, í krafti stöðu sinnar innan bank-
ans, látið Kaupþing veita einkahluta-
félagi sínu, Hreiðari Má Sigurðssyni
ehf., tæplega 575 milljóna króna ein-
greiðslulán án þess að fyrir lægi sam-
þykki stjórnar eða fullnægjandi trygg-
ing. Þann 6. ágúst 2008 nýtti Hreiðar
kauprétt sinn og keypti hlutabréf í
Kaupþingi fyrir 246 milljónir króna.
Seinna sama dag seldi hann einka-
hlutafélagi sínu sömu bréf fyrir
572 milljónir króna, sem hann fjár-
magnaði með láninu. Hreiðar færði
mismuninn, 324 milljónir, tveimur
vikum seinna inn á eigin banka-
reikning.
Félag Hreiðars var tekið til gjald-
þrotaskipta 13. apríl 2011. Upp í
kröfu bankans vegna lánsins feng-
ust um það bil 1,5 milljónir króna.
Hreiðari er gefið að sök í ákærunni
að hafa á þessum tíma búið yfir inn-
herjaupplýsingum um að skráð
markaðsverð hlutabréfa í
Kaupþingi hafi gefið ranga
mynd af verðmæti þeirra
vegna stórfelldrar markaðs-
misnotkunar með hlutabréf
í bankanum frá nóvember
árið 2007 sem Hreiðar
tók sjálfur þátt í.
Guðný Arna er
ákærð fyrir hlut-
deild í meintum
u m b o ð s sv i ku m
Hreiðars. Hún er
sökuð um að hafa
veitt liðsinni í
verki við að koma þeim
fram, einkum með fyrir-
mælum og samskiptum
við lægra setta starfs-
menn um uppgjör og
frágang vegna verð-
bréfaviðskipta og
fyrir lánveitingar til félags Hreiðars.
Hún hafi vitað eða ekki getað dulist
að tryggingar fyrir lánveitingu væru
ófullnægjandi og að lánveitingin til
einkahlutafélagsins væri óheimil
og til þess fallin að valda bankanum
verulegri fjártjónshættu. – þh
Hreiðar Már og Guðný neita sök í nýju Kaupþingsmáli
Dómar sem Hreiðar Már hefur hlotið
12. febrúar 2015
Al-Thani-málið
5 og hálfs árs fang-
elsi
Umboðssvik
(Hæstiréttur)
1. júlí 2015
Markaðsmis-
notkunarmálið
Engin refsing
Umboðssvik
(Héraðsdómur)
9. október 2015
Marple-málið
6 mánaða fangelsi
Fjárdráttur og
umboðssvik
(Héraðsdómur)
stjórnsýsla Handverks- og hús-
stjórnarskólinn á Hallormsstað og
sumarhúsið Ísólfsskáli á Stokkseyri
hafa verið friðlýst að tillögu Minja-
stofnunar Íslands. Húsin eru friðuð
með ákvörðun Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar forsætisráðherra með vísan til
laga um menningarminjar.
Friðlýsing Handverks- og hús-
stjórnarskólans nær til ytra borðs
skólahússins ásamt upprunalegum
innréttingum í vefstofu, skrifstofu
skólastjóra, anddyri og svokallaðri
Höll, sem er samkomustaður í miðju
hússins. Undanþegnar friðlýsingu
eru seinni tíma viðbyggingar og múr-
klæðning á útveggjum.
Friðlýsing Ísólfsskála, sem byggður
var fyrir Pál Ísólfsson dómorganista,
tekur til hússins í heild ásamt stein-
hlöðnum görðum á lóðamörkum. – shá
Tvö hús friðlýst
ÍtalÍa Gærdagurinn var einn anna-
samasti dagur sem starfsmenn ítölsku
strandgæslunnar hafa átt við að
bjarga flóttamönnum frá norðurhluta
Afríku og Miðausturlöndum. Strand-
gæslan segir, samkvæmt frásögn Dan-
marks Radio, að hún hafi komið að
björgun 5.600 hælisleitenda og flótta-
manna. Þar af er stór hluti börn. Þar á
meðal voru 700 manns sem ferðuðust
saman á fiskibát.
Samkvæmt tölum frá Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna
hafa 130 þúsund manns flúið í ár yfir
Miðjarðarhafið frá Norður-Afríku til
Ítalíu. Að auki hafa margir komið frá
Sýrlandi, Afganistan og Írak. – jhh
Á sjötta þúsund
bjargað í gær
Skólahúsið er byggt á árunum 1929-30.
FréTTAblAðið/VAlli
Við hreinsuðum
allstórt svæði í
kringum fundarstaðinn, til
að leita af okkur allan
grun. Hvorki komu í ljós
fleiri grafir né
beinagrindur
eða bein.
Uggi Ævarsson,
minjavörður
Suðurlands
4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i Ð j U D a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
F
4
-F
4
E
8
1
A
F
4
-F
3
A
C
1
A
F
4
-F
2
7
0
1
A
F
4
-F
1
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K