Fréttablaðið - 04.10.2016, Síða 8

Fréttablaðið - 04.10.2016, Síða 8
16 -2 68 8 – H VÍ TA H Ú SI Ð /S ÍA Við flytjum hlýju yfir hafið til þeirra sem þér þykir vænt um VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA Vinnumarkaður Kennarasamband Íslands og BHM leggjast gegn frum- varpi efnahags- og fjármálaráð- herra um breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Öll félögin undirrituðu samkomu- lag þess efnis en félögin telja frum- varpið ganga gegn því. Heimildir Fréttablaðsins herma að afstaða BHM sé í aðalatriðum í takt við afstöðu KÍ og BHM. Samkomulagið, sem undirritað var þann 19. síðasta mánaðar, segir til um að réttindi núverandi sjóðs- félaga eigi að vera tryggð. Að mati félaganna tryggir frumvarpið ekki þessa hagsmuni og því ekki annað hægt en að leggjast gegn því. Stjórn BSRB lýsti í gær yfir vonbrigðum með að ekki væri farið eftir því samkomulagi sem undirritað var við vinnslu frumvarpsins. Miklu skiptir fyrir stjórnvöld að samskipti við stóru stéttarfélögin séu á jákvæðum nótum. Gríðar- lega stórar starfsstéttir eru innan vébanda þessara félaga. „Verði frumvarpið að lögum óbreytt gefur það augaleið að það mun hafa mjög neikvæð áhrif á samskipti banda- lagsins við stjórnvöld, hvort sem heldur er í kjarasamningagerð eða öðru,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, og telur mikilvægt að breyta frumvarpinu í átt að sam- komulaginu. „Í vinnuferlinu var alltaf boðað að málið yrði unnið í fullri sátt. Samkomulagið nær utan um þau atriði sem samkomulag Segja samkomulagið virt að vettugi KÍ og BSRB segja frumvarp fjármálaráðherra ganga þvert gegn samkomulagi sem skrifað var undir þann 19. september. Verði frum- varpið að lögum gæti það haft mikil neikvæð áhrif á samskipti félaganna við ríkið sem hafi áhrif á komandi kjarasamningagerð. Skrifað var undir samkomulagið hinn 19. september síðastliðinn í Hannesarholti á Grundarstíg. Fréttablaðið/GVa náðist um og frumvarpið er ekki að fanga innihald þess.“ Samkomulagið milli aðila var undirritað við hátíðlega athöfn þann 19. september. Frumvarpinu var dreift á Alþingi daginn eftir. Þórður Hjaltested, formaður KÍ, segir ekki annað hægt en að krefj- ast þess að málið verði ekki sam- þykkt á komandi þingi. „Hér er ekki á ferðinni nein stefnubreyting af okkar hálfu. Við erum enn aðilar að samkomulaginu. Það frumvarp sem lagt var fyrir þingið gengur bara þvert gegn samkomulaginu. Því vonumst við til að þingið fresti afgreiðslu þessa frumvarps, menn vinni það betur og það komi til þings á ný eftir kosningar. Þá gefst mikilvægur tími til að fara vel ofan í þetta mikilvæga mál,“ segir Þórður. Ekki náðist í Bjarna Benedikts- son fjármálaráðherra við vinnslu fréttarinnar. sveinn@frettabladid.is Samkomulagið nær utan um þau atriði sem samkomulag náðist um og frumvarpið er ekki að fanga innihald þess. Elín Björg Jóns- dóttir, formaður BSRB Hér er ekki á ferðinni nein stefnubreyting af okkar hálfu. Við erum enn aðilar að samkomu- laginu. Þórður Hjaltested, formaður KÍ Helstu atriði samkomulagsins l Launakjör á opinberum og almennum vinnumarkaði verða samræmd og jöfnuð. l Launafólki verður gert betur kleift að færa sig milli almenns og opinbers vinnumarkaðar hvenær sem er starfsævinnar án þess að það hafi teljandi áhrif á ávinnslu lífeyrisréttinda. l Sjóðfélögum í lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna verða tryggð sambærileg réttindi og þeir hafa nú með 120 milljarða króna framlagi hins opinbera til að mæta ófjármögnuðum framtíðarskuldbindingum vegna þeirra. l Lífeyriskerfi opinberra starfs- manna verður fullfjármagnað og kerfið sjálfbært. 4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i ð J u D a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 5 -0 3 B 8 1 A F 5 -0 2 7 C 1 A F 5 -0 1 4 0 1 A F 5 -0 0 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.