Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 10
Pólland Þúsundir kvenna tóku þátt
í mótmælaverkfalli gegn áformum
um fóstureyðingarbann í Póllandi.
Fyrirmynd mótmælanna er fengin
frá kvennafrídeginum á Íslandi árið
1975.
Konur í Póllandi mótmæltu með
því að mæta ekki í vinnuna og sinna
ekki heimilisverkum, rétt eins og
konur gerðu hér á landi fyrir rúm-
lega fjörutíu árum.
Mótmæladagurinn í gær hefur
verið nefndur Svartur mánudagur.
Í tilefni dagsins klæddust konur
svörtu og flykktust út á götur helstu
borga Póllands þúsundum saman,
með mótmælaspjöld og hrópuðu
vígorð gegn áformum stjórnarinnar.
Víða í borgum Evrópu hélt fólk út
á götur til stuðnings pólsku mótmæl-
endunum, þar á meðal í Berlín, Brus-
sel, Belfast og einnig hér í Reykjavík.
Talið er að milljónir manna hafi
tekið þátt í aðgerðunum.
Pólska stjórnin hefur kynnt frum-
varp um allsherjarbann við fóstur-
eyðingum í öllu landinu.
Neðri deild pólska þingsins sam-
þykkti í september að senda frum-
varpið til umfjöllunar í nefnd að
lokinni fyrstu umræðu í deildinni.
Pólska fóstureyðingarlöggjöfin
þykir þó harla ströng fyrir. Nú eru
reglurnar þannig að fóstureyðingar
eru einungis heimilar ef þær stofna
heilsu móðurinnar í hættu, ef vitað
er um fósturgalla eða ef þungun
varð með nauðgun eða sifjaspellum.
Fyrirhuguð lög myndu hins vegar
gera fóstureyðingar ólöglegur í
öllum tilvikum. Einungis tvö önnur
ríki í Evrópu eru með svo stranga
fóstureyðingarlöggjöf, en það er
Malta og Páfagarður.
Ákvæði frumvarpsins eru það
ströng að læknar geta átt á hættu
að verða sóttir til saka ef þeir fram-
kvæma aðgerð til að bjarga lífi
móðurinnar ef það kostar dauða
fóstursins.
Þá geta konur átt yfir höfði sér
fangelsisvist ef þær missa fóstur.
Laga- og réttlætisflokkurinn,
sem er fimmtán ára gamall flokkur
hægrisinnaðra íhaldsmanna, hefur
haldið um stjórnartaumana í Pól-
landi í tæpt ár, eða frá því hann
sigraði með yfirburðum í þing-
kosningum í október á síðasta ári.
Flokkurinn fékk þá 235 þingsæti
af 460 og fer því með meirihluta á
þingi án þess að þurfa stuðning frá
öðrum flokkum.
Kaþólska kirkjan í Póllandi hefur
eindregið stutt stjórnina í þessum
áformum. gudsteinn@frettabladid.is
Pólskar konur
mótmæltu
Áformum pólsku ríkisstjórnarinnar um að banna
fóstureyðingar var harðlega mótmælt í gær með
kvennaverkfalli og fjöldafundum víða í Evrópu.
Konur í Varsjá mótmæla áformum stjórnarinnar um allsherjarbann við fóstur-
eyðingum. Fréttablaðið/EPa
Verði frumvarpið að
lögum geta konur átt yfir
höfði sér fangelsisvist fyrir
að missa fóstur. Læknar ættu
sömuleiðis á hættu málsókn
fyrir aðgerðir til bjargar lífi
móðurinnar ef fósturlát
verður.
umhverfismál Náttúruverndar-
samtökin Fjöregg í Mývatnssveit og
Landvernd hafa kært fyrirhugaða
lagasetningu um Bakkalínur til
Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Að mati samtakanna væru slík lög
brot á rétti umhverfisverndarsam-
taka til að bera ákvarðanir stjórn-
valda undir dómstól eða annan
óháðan og sjálfstæðan úrskurðar-
aðila. Svo segir í tilkynningu frá
Landvernd.
Framkvæmdaleyfi fyrir Bakka-
línum, þar með talið umhverfis-
mat frá 2010, eru nú í skoðun hjá
úrskurðarnefnd umhverfis- og auð-
lindamála í fjórum kærumálum
samtakanna.
Nefndin stefnir að því að
úrskurða í málunum innan tíu
daga. Lagasetningin miðar annars
vegar að því að afturkalla fram-
kvæmdaleyfi sveitarfélaganna sem
kærð voru og koma þannig í veg
fyrir að úrskurðað verði í málinu
og hins vegar að gefa út nýtt fram-
kvæmdaleyfi fyrir línunum.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
segir í tilkynningunni að samtökin
séu einnig að kanna möguleikann
á því að kvarta til eftirlitsnefndar
Árósasamningsins og að senda kæru
til Mannréttindadómstóls Evrópu
verði frumvarpið samþykkt. – shá
Kæra lagasetningu á
Bakkalínur til ESA
Að mati Landverndar
væru slík lög brot á rétti
umhverfisverndarsamtaka
til að bera stjórnvaldsákvarð-
anir undir dómstóla.
4 . o k t ó b e r 2 0 1 6 Þ r i Ð J u d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
F
4
-E
F
F
8
1
A
F
4
-E
E
B
C
1
A
F
4
-E
D
8
0
1
A
F
4
-E
C
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K