Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 14

Fréttablaðið - 04.10.2016, Page 14
✿ Eins og svart og hvítt hjá KR-ingum í Pepsi-deildinni sumarið 2016 Bjarni Guðjónsson 1. til 9. umferð -3 8-11 +12 21-9 MARKATALA 48% stiga í 9 leikjum 4 töp 3 jafn tefli 2 sigrar Willum Þór Þórsson 10. til 22. umferð 22 stig Lúkas Kostic með Grindavík 2009. 21 stig Haraldur Haraldsson með KR 1997. 21 stig Steinar Guðgeirsson með Fram 2003. 21 stig Ólafur Örn Bjarnason með Grindavík 2010. 20 stig Kristján Guðmundsson með Keflavík 2013. 19 stig Þórir Sigfússon með Keflavík 1995. 17 stig Ríkharður Daðason með Fram 2013. Flest stig hjá þjálfurum sem hafa tekið við á miðju tímabili Frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. 29 stig Willum Þór Þórsson með KR 2016 (tók við af Bjarna Guðjónssyni). 74 prósent stiga í húsi í 13 leikjum. 25 stig Rúnar Kristinsson með KR 2010 (tók við af Loga Ólafs- syni). 76 prósent stiga í húsi í 11 leikjum. 23 stig Pétur Pétursson með Keflavík 1994 (tók við af Ian Ross). 70 prósent stiga í húsi í 11 leikjum. 23 stig Guðmundur Benediktsson með Breiðablik 2014 (tók við af Ólafi Kristjánssyni). 48 prósent stiga í húsi í 16 leikjum. Fótbolti KR-ingar kórónuðu eina af flottari endurkomum seinni ára um helgina þegar liðið tryggði sér sæti í Evrópu- keppninni með 3-0 sigri á Fylki í lokaumferð Pepsi-deildarinnar. Liðið, sem sat í hópi neðstu liða eftir 9 umferðir með 9 stig og 8 mörk, endar Íslandsmótið sem heitasta lið Pepsi-deildarinnar. Willum Þór Þórsson fékk það verkefni að rífa KR-liðið upp úr volæðinu í vor og setti á endanum nýtt met í stigasöfnun hjá þjálfara sem hefur tekið við á miðju tíma- bili. Síðan þriggja stiga reglan var tekin upp hefur enginn þjálfari náð í fleiri stig á einu tímabili af þeim þjálfurum sem hafa ekki byrjað sumarið með viðkomandi liði. Rúnar átti metið áður Willum Þór bætti í sumar met Rún- ars Kristinssonar frá 2010 en KR fékk þá 25 stig eftir að Rúnar tók við af Loga Ólafssyni um miðjan júlí. KR-liðið fékk 29 stig í þeim 13 leikjum sem Willum Þór stýrði í sumar. Stigametið hafði þar með staðið í sex ár eða síðan KR-ingar skiptu síð- ast um þjálfara á miðju tímabili. Það hefur því borgað sig að skipta um þjálfara í Vesturbænum þegar liðið hefur byrjað mótið illa. Söguleg stigasöfnun Willums KR tryggði sér sæti í Evrópukeppni með mögnuðum endaspretti en liðið vann fimm síðustu leikina. Will- um Þór Þórsson tók við liðinu í tíunda sæti í júní og fór með það upp í bronssætið á þremur mánuðum. Rúnar á það enn á Willum að hafa náð í aðeins hærra hlutfall stiga í boði (76 á móti 74) auk þess að koma KR-liðinu alla leið í bikar- úrslitaleikinn. Það var hins vegar enginn bikar í boði fyrir Willum enda hafði KR dottið út úr 32 liða úrslitum bikarsins á móti 1. deildar liði Selfoss. Rúnar Kristinsson hafði á sínum tíma slegið met Péturs Péturssonar frá 1994 en Pétur tók þá við Kefla- víkurliðinu í byrjun júlí og landaði 23 stigum í 11 leikjum. Fjórfaldaði sigurleikina KR var aðeins tveimur stigum frá fallsæti þegar Willum Þór tók við liðinu af Bjarna Guðjónssyni eftir þriðja tap Vesturbæinga í röð í lok júní. Liðið vann aðeins 2 af 9 leikj- um sínum með Bjarna í brúnni en sigrarnir voru 9 í 13 leikjum eftir að Willum tók sæti hans. Íslandsmeistarar FH voru á end- anum aðeins fimm stigum á undan KR en KR-ingar unnu báðar inn- byrðisviðureignir liðanna í sumar. Willum Þór gerði KR tvisvar að Íslandsmeisturum í upphafi 21. aldar en liðið náði hvorugt árið jafn miklum hluta af stigum í boði og í sumar. KR fékk 74 prósent stiga í boði eftir að Willum Þór tók við en hafði náð í 67 prósent (2002) og 61 prósent (2001) stiga í boði þegar Willum gerði Vesturbæjarfélagið að meistara. Pólitíkin að trufla þjálfarann Þrátt fyrir fyrir frábæran og sögu- legan árangur hjá Willum Þór í sumar er ólíklegt að þingmaðurinn geti haldið áfram með liðið. Fram undan eru kosningar hjá Fram- sóknarmanninum og KR-ingar vilja örugglega ganga frá þjálfaramálum sínum fyrir þær. Stóra spurningin er hvort forráðamenn KR eru tilbúnir að bíða eftir örlögum Willums Þórs í pólitíkinni. ooj@frettabladid.is Rúnar Kristinsson. 74% stiga í 13 leikjum 2 töp 9 sigrar 2 jafn- tefli Í dag 20.00 Körf.kvöld: Upphitun Sport ÓLÍKt HLutSKiPti SnæFELLS- Liðanna Í SPánni áRLEGu Hin árlega spá þjálfara, fyrir- liða og forráðamanna liðanna í Domino’s-deildunum í körfubolta var opinberuð í gær. Samkvæmt spánni verður Snæfell Íslands- meistari í kvennaflokki fjórða árið í röð en liðið fékk nokkuð afgerandi kosningu í efsta sætið. nýliðum Skallagríms er spáð 2. sæti og Grindavík því þriðja. Ef marka má spána verður KR ekki Íslandsmeistari fjórða árið í röð í karlaflokki en Stjörnunni var spáð titlinum. Garðbæingar fengu einu stigi meira en KR í spánni. tinda- stóli er spáð 3. sætinu. Ef spáin rætist fara Skallagrímur og Snæfell niður í 1. deild. Fjölni er spáð sigri í 1. deild karla og Breiða- bliki í 1. deild kvenna. StjÓRaSKiPti Hjá SWanSEa Enska úrvalsdeild- arliðið Swansea City, sem Gylfi Þór Sigurðs- son leikur með, skipti um knattspyrnu- stjóra í gær. Ítalinn Francesco Guid olin var látinn taka pokann sinn á 61 árs afmælinu sínu og við starfi hans tekur Bandaríkja- maðurinn Bob Bradley. Eigendur Swansea, sem keyptu félagið í sumar, eru bandarískir og hafa nú fengið landa sinn í stjórastólinn. Bradley verður fyrsti bandaríski stjórinn í sögu ensku úrvalsdeild- arinnar. Bradley, sem er 58 ára gamall, var síðast við stjórnvölinn hjá Le Havre í Frakklandi. Þar áður stýrði hann Stabæk í noregi en hann er kannski þekktastur fyrir að þjálfa bandaríska landsliðið og það egypska. Swansea situr í 17. sæti úrvalsdeildarinnar eftir sjö umferðir og hefur ekki unnið leik síðan í 1. umferðinni. Fringi hverfur á braut og með það sama er Stjörnunni spáð titlinum. Það er ekki að spyrja að því. #dominos365 Friðrik Ingi Rúnarsson @Fridrikingi REFiRniR mEð FuLLt HúS Füchse Berlin fer frábærlega af stað í þýsku 1. deildinni í handbolta en liðið hefur unnið alla sex leiki sína. Í gær báru Berlínarrefirnir sigurorð af Hannover-Burgdorf, 29-30, á útivelli. Bjarki már Elísson skoraði þrjú mörk úr jafn mörgum skotum hjá Füchse Berlin en Rúnar Kárason komst ekki á blað hjá Hannover. Erlingur Richardsson er á sínu öðru tímabili sem þjálfari Füchse Berlin og liðið virðist hafa bætt sig mikið frá því í fyrra. Læri- sveinar Erlings eru á toppi þýsku deildarinnar með 12 stig en Füchse Berlin og Flensburg eru einu liðin sem eru enn með 100% árangur. Flensburg hefur leikið fimm leiki en Füchse Berlin sex eins og áður sagði. 4 . o K t ó b E R 2 0 1 6 Þ R i Ð J U D A G U R14 s P o R t ∙ F R É t t A b l A Ð i Ð Sport 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A F 4 -E B 0 8 1 A F 4 -E 9 C C 1 A F 4 -E 8 9 0 1 A F 4 -E 7 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.