Fréttablaðið - 04.10.2016, Blaðsíða 22
Þýsk-kínverski bílaframleið-
andinn Borgward, sem ætlar
sér stóra hluti á lúxusbílamark-
aðnum heldur áfram að lokka til
sín yfirmenn annarra þekktra
bílaframleiðenda, nú síðast frá
Mercedes Benz og Kia.
Bílahönnuðurinn og Belg-
inn David Napoleon Genot er nú
tekinn við hönnunardeild Borg-
ward í Evrópu en hann starfaði
hjá Kia, en áður hjá SEAT, Audi
og Renault. Þjóðverjarnir og
verkfræðingarnir Tilo Scweers
og Florian Herbold hafa einn-
ig stokkið á vagninn til Borgw-
ard frá Mercedes Benz og munu
þeir vinna að drifrásum nýrra
bíla Borgward. Þessar nýju
ráðningar hjá Borgward benda
til þess að fyrirtækið ætli inn á
evrópskan bílamarkað.
Í apríl síðastliðnum kynnti
Borgward BX7-jeppa sinn í Kína
og er hann með 2,0 lítra for-
þjöppudrifna vél. Hann hefur
nú þegar selst í 4.000 eintök-
um í Kína að sögn Borgward
og bíða 10.000 pantanir í bíl-
inn afgreiðslu. Borgward hefur
hins vegar sagt að ef fyrirtækið
hefur markaðssetningu í Evrópu
verði það eingöngu með bíla með
tengil tvinnaflrás eða með hrein-
ræktaða rafmagnsbíla.
Borgward ætlar að kynna
minni BX5-jeppling seinna á
þessu ári.
Borgward krækir í yfirmenn Benz og Kia
Borgward BX7 jeppinn hefur selst
í fjögur þúsund eintökum í Kína og
10.000 pantanir bíða afgreiðslu.
Meðal lúxusbíla hefur Audi A6
Allroad átt sviðið hingað til hvað
torfæruhæfa langbaka áhrærir,
ásamt reyndar Volvo XC70 Cross
Country. Nú hefur Mercedes
Benz teflt fram útspili í þessum
flokki bíla með nýjum E-Class
All Terrain.
Þar fer upphækkaður E-Class
Estate með brettaköntum og
hlífðarplötum að framan og
aftan. Hann fæst að sjálfsögðu
aðeins fjórhjóladrifinn og val er
um 19 og 20 tommu felgur. Til að
aðgreina All Terrain-bílinn frá
hefðbundnum E-Class eru ál- og
koltrefjafletir áberandi að innan
og hann með því gerður grófari í
útliti og hæfari í hvers kyns jask.
Annars er mikið lagt í innrétt-
ingu bílsins og fær hann sömu
meðferð og Avantgarde-útgáfa
E-Class. Til að byrja með mun
Mercedes Benz kynna þennan
bíl með 194 hestafla dísilvélina
sem einnig má finna í nýrri kyn-
slóð hefðbundins E-Class og með
henni er All Terrain-bíllinn um 8
sekúndur í 100 km hraða og með
232 km hámarkshraða.
E-Class All Terrain er svar við Audi A6 Allroad
Mercedes Benz E-Class All Terrain er upphækkuð útfærsla af hefðbundnum E-Class bíl.
S
tjarna dagsins sló í
gegn enda um glæsi-
legan og vel útbú-
inn jeppa að ræða
sem beðið hefur verið
eftir í ofvæni. Audi
Q7 e-tron er fyrsti
tengil tvinnbíll heims sem stát-
ar af V6 TDI dísilvél, rafmótor og
quattro fjórhjóladrifi. „Reynsl-
an af Audi Q7 er frábær og vin-
sældir hans hafa án efa haft áhrif
á það hversu mikil spenna skap-
aðist fyrir Q7 e-tron quattro áður
en hann kom í sölu.
Á þriðja tug seldir óséðir
„Við byrjuðum að taka pantan-
ir í mars og seldum hátt í þrjátíu
bíla óséða. Nú þegar hafa fyrstu
eintökin af Q7 e-tron quattro
verið afhent ánægðum eigendum.
Það leggst sérstaklega vel í fólk
hversu vistvænn bíllinn er en Q7
e-tron quattro fer allt að 56 kíló-
metra á rafmagninu en þá tekur
sparneytin dísilvélin við. Toll-
arnir eru afar hagstæðir á um-
hverfisvænum bílum um þessar
mundir og því er Audi Q7 e-tron
quattro á góðu verði sem hugn-
ast viðskiptavinum vel. Það var
mjög gaman að sjá hversu mikla
lukku bíllinn vakti meðal gesta.
Fjölmargir fengu að reynsluaka
honum og það var mikil stemning
í Audi-salnum,“ segir Jóhann Ingi
Magnússon, sölustjóri Audi.
Með 700 Nm tog og 373 hestöfl
Audi Q7 e-tron quattro er vist-
vænn en kraftmikill. Hann er
373 hestöfl og er með 700 Nm í
tog. Það tekur hann aðeins 6,2
sekúndur að komast í hundrað-
ið og hann nær 230 km hámarks-
hraða. Hann er virkilega vel út-
búinn og hefur fengið mikið lof
blaðamanna og ánægðra kaup-
enda hvað varðar aksturseigin-
leika, sparneytni og framúrskar-
andi hleðslutækni. Audi Q7 e-tron
quattro kostar frá kr. 11.390.000
og er með fimm ára ábyrgð.
Týndi sonurinn
frumsýndur
Audi Q7 e-tron quattro var frumsýndur
síðastliðinn laugardag í Audi-sal Heklu.
Á þriðja tug Audi Q7 e-tron seldust óséðir.
Ný kynslóð Toyota Proage er
væntanleg til landsins á allra
næstu vikum, en þessi sendi- og
fjölnotabíll var kynntur fyrir
blaðamönnum í Póllandi fyrir
stuttu. Vinnuþjarkurinn Proage
er mörgum Íslendingnum kunn-
ur og hefur hann verið í þjón-
ustu ófárra íslenskra fyrirtækja í
gegnum tíðina. Nýr Proage verð-
ur fáanlegur í þremur lengd-
um og mörgum útfærslum.
Hann kemur bæði sem tiltölu-
lega hrár flutningabíll sem og
mjög vel búinn fólksflutningabíll
með sæti fyrir allt að 9 manns.
Báðar aftari sætaraðir bíls-
ins eru á brautum. Í lengstu út-
gáfu Proage má koma fyrir far-
angri sem er allt að 3,5 metra
langur og 3 Euro-pallettum, enda
lengsta gerð Proage orðin 40 cm
lengri en fyrr. Lengsta gerðin
ber allt að 1,4 tonna farm, 200 kg
meira en fyrri kynslóð Proage.
Vélar í nýjum Proage eru knún-
ar dísilolíu og eru 95 til 177 hest-
öfl. Proage er einkar lipur bíll og
ljúfur í akstri þrátt fyrir stærð
sína og sannaðist það í reynslu-
akstri hans í Póllandi, en hér mun
bráðlega birtast reynsluaksturs-
grein um bílinn frá þeim akstri.
Nýr Toyota Proace á leiðinni
Proace kemur nú í fjölmörgum útfærslum.
Gæðavottaðar álfelgur
AXARHÖFÐA 16
5673322
Felgur.is
LED Perur
Flott ljós
Bílar
Fréttablaðið
4 4. október 2016 ÞRIÐJUDAGUR
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
F
4
-F
9
D
8
1
A
F
4
-F
8
9
C
1
A
F
4
-F
7
6
0
1
A
F
4
-F
6
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K