Fréttablaðið - 04.10.2016, Qupperneq 26
Breski bílaframleiðandinn MG
er í eigu kínverska fyrirtækis-
ins SAIC Motor og þar á bæ hefur
verið ákveðið að flytja fram-
leiðslu þess eina bíls sem MG
framleiðir í Bretlandi, MG3, til
Kína. MG3 hefur hingað til verið
framleiddur í Longbridge á Mið-
Englandi og munu a.m.k. 25
starfsmenn MG þar missa vinnu
sína vegna þessarar ákvörðun-
ar. Framleiðslunni á MG3 verð-
ur hætt í Longbridge í lok þessa
árs. Ástæða flutningsins er lægri
framleiðslukostnaður í Kína og
með honum er hægt að selja bíl-
inn á lægra og samkeppnishæf-
ara verði. SAIC Motor keypti MG
árið 2007 af Nanjing Automobile,
sem hafði keypt MG Rover árið
2005.
Bretar búnir að missa flest sín
bílamerki
Framleiðsla MG bíla, sem hafði
legið niðri í nokkurn tíma, var
aftur hafin árið 2011 með fram-
leiðslu millistærðarbílsins MG6,
en framleiðsla á MG3 hófst svo
árið 2014. Framleiðsla MG3-bíls-
ins í Longbridge var þó eingöngu
fólgin í því að setja vélar og
skiptingar í bílana, sem og fjöðr-
unarbúnað og aðalljós. Að öðru
leyti var bíllinn settur saman
annars staðar. MG3 er frem-
ur smár bíll með 106 hestafla og
1,5 lítra vél og hann kostar að-
eins frá 8.214 pundum í Bretlandi
og telst því með ódýrustu bílum.
Hann á helst í samkeppni við bíla
eins og Ford Fiesta og Kia Rio í
Bretlandi. Það á ekki af bresk-
um bílaiðnaði að ganga, en fæst
fornfræg merki þessa kunna bíla-
framleiðslulands eru í eigu Breta.
Til dæmis er Jaguar Land Rover í
eigu hins indverska Tata, Bentley
í eigu Volkswagen og Rolls Royce
í eigu BMW.
Framleiðsla MG flutt frá
Bretlandi til Kína
MG 3 er eini bíll MG sem framleiddur hefur verið í Bretlandi. Ferðaþjónustufyrirtækið Ser-
vio hefur fengið tvær stórglæsi-
legar Mercedes-Benz bifreið-
ar afhentar sem eru sérhannað-
ar fyrir lúxusakstursþjónustu.
Um er að ræða mjög vel útbún-
ar V-Class bifreiðar með mikl-
um þægindum og lúxus. ,,Við
erum afar ánægðir að fá þessa
tvo Mercedes-Benz bíla til við-
bótar í þjónustuna okkar. Við
höfum verið með V-Class bifreið-
ar í þjónustu okkar síðan í árs-
byrjun 2015 og þeir hafa reynst
okkur frábærlega. Bílarnir eru
hlaðnir öllum helstu þægindum
og lúxus eins og Mercedes-Benz
er þekkt fyrir.
Mikil eftirspurn eftir
lúxusbílaþjónustu
Það er mikil eftirspurn eftir
lúxusbílum frá viðskiptavinum
okkar sem vilja sérlega þægi-
legan ferðamáta á ferðum sínum
um Ísland. Við erum að bjóða
upp á sérhæfða akstursþjón-
ustu fyrir kröfuharða viðskipta-
vini og því mikilvægt að bílarnir
og öll okkar þjónusta sé í hæsta
gæðaflokki,“ segir Haukur Bent
Sigmarsson, framkvæmdastjóri
Servio. Mercedes-Benz V-Class
bílarnir eru búnir öllum helsta
lúxusbúnaði. Boðið er m.a. upp
á wi-fi, þráðlaust net, um borð
í bílunum. Bílaumboðið Askja,
sem er umboðsaðili Mercedes-
Benz á Íslandi, flytur bílana til
landsins. ,,Við státum af því að
vera með stærsta Mercedes-
Benz lúxusbílaflota landsins.
Það er allt frá E-Class, S-Class,
V-Class og til sérútbúinna stórra
Sprinter bíla.“
Nýir Mercedes-BeNz
V-class lúxusBílar í
þjóNustu serVio
„Það er mikil eftirspurn eftir lúxusbílum frá viðskiptavinum
okkar sem vilja sérlega þægilegan ferðamáta á ferðum
sínum um Ísland. Við svörum því með þessum bílum.“
Ekki dónalegt innanrými í Mercedes-Benz V-Class bílunum.
Komdu í hópinn og fáðu að kynnast frábærri þjónustu. Auðveld innleiðing og fastur
rekstrarkostnaður. Aðgengilegt hvar og hvenær sem er. Við gerum þetta með þér.
Haltu forskotinu með Flota.
Er bílafloti í þínu fyrirtæki?
Floti.is
Trackwell • Laugavegi 178 • 105 Reykjavík • 5100 600
Bílar
Fréttablaðið
8 4. október 2016 ÞRIÐJUDAGUR
1
7
-1
0
-2
0
1
6
0
9
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
F
4
-E
B
0
8
1
A
F
4
-E
9
C
C
1
A
F
4
-E
8
9
0
1
A
F
4
-E
7
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K