Fréttablaðið - 04.10.2016, Side 28

Fréttablaðið - 04.10.2016, Side 28
ToyoTa auris 1,2 Turbo Finnur Thorlacius reynsluakstur – Söluhæsta bíltegund á Íslandi er og hefur lengi verið Toyota og einn vinsælasti bíll Toyota er Auris, sem telst til þriðja minnsta fólksbíls Toyota, á eftir Aygo og Yaris. Toyota Auris má nú fá með nýrri vél, sem eins og hjá mörgum öðrum bílafram- leiðandanum er minni en í boði hefur verið áður, þ.e. 1,2 lítra, en með aðstoð frá forþjöppu. Þar fer ferlega skemmtileg og furðu öflug vél miðað við lítið sprengi- rými og ég er ekki frá því að með henni sé komin skemmti- legasta útfærsla Auris. Vélin er 116 hestöfl, mengar eingöngu 106 g/km af CO2 og með upp- gefna eyðslu upp á 4,6 lítra. Í reynsluakstrinum náðist reynd- ar ekki sú tala, enda oft frísk- lega ekið, en Aurisinn lá á milli 6 og 7 lítra eyðslu allan tímann, hvort sem farið var um borg- ina eða í utan bæjarakstri. Þessi nýja vél í Auris er kærkomin viðbót í fjölbreytta útgáfuflóru Auris. Víða erlendis selst Auris langmest í Hybrid-útfærslu, t.d. að 75% hluta í Bretlandi, og eru kaupendur þar að leita að lítilli eyðslu. Hún næst nú einnig með þessari vél án þyngdar þeirra rafhlaða og rafmótora sem eru í Hybrid-bílnum. Laglegri, en á marga fríða samkeppnisbíla Núverandi kynslóð Auris er frá árinu 2012, en hann hefur þó fengið velkomna andlitslyftingu og er allur hinn laglegasti fyrir bragðið. Þar er hann lítill eftir- bátur margra keppinauta sinna í sama flokki, þ.e. C-stærðar- flokki. Þar er að finna bíla eins og Volkswagen Golf, Ford Focus, Opel Astra, Peugeot 308, Mazda3, Honda Civic og Nissan Pulsar svo einhverjir séu nefnd- ir. Það er því ljóst á þessari upp- talningu að Toyota Auris á í ansi harðri samkeppni við sölu- háa bíla, ekki síst í Evrópu. Með ágætri andlitslyftingu og þessari nýju vél stenst hann samkeppn- ina, en er þó eftirbátur margra þeirra er kemur að aksturseigin- leikum. Auris vinnur það þó upp með alkunnri lágri bilanatíðni vegna vandaðrar smíðar og hárri endursölu allra Toyota-bíla. Miklu betri akstursbíll Jákvæðar breytingar hafa orðið á aksturseiginleikum Auris engu að síður og tiltölulega líf- laus stýring eldri gerðarinn- ar er horfin og mun meira næmi tekið við. Fjöðrunin hefur einnig batnað en þó gætir meiri hliðar- halla í beygjum en hjá mörg- um samkeppnisbílum hans. Það verður þó sagt að Auris er kom- inn miklu nær bestu akstursbíl- unum í þessum harða flokki en hann var áður. Fyrir vikið var reynsluakstur bílsins ánægju- legur og ágætt afl nýju vélar- innar skemmdi alls ekki fyrir. Reynsluakstursbíllinn var með sjálfskiptingu, en einnig má fá bílinn með beinskiptingu, en hann kostar 280.000 kr. minna. Með beinskiptingunni þurfa eig- endur þó að sætta sig við bæði meiri eyðslu og meiri mengun bílsins. Er þetta ágætt dæmi um að sjálfskiptingar nútímans eru orðnar svo góðar að ógerningur er að haga skiptingu í beinskipt- um bílum þannig að þeir eyði minna en með sjálfskiptingu. Traustur bíll sem sjaldan dvelur á verkstæðunum Toyota hefur breytt ansi mörgu 1,2 l bensínvél, 116 hestöfl fram- hjóladrif eyðsla 4,6 l/100 km í blönduðum akstri Mengun 106 g/km CO2 hröðun 10,1 sek. hámarkshraði 200 km/klst. verð 3.590.000 kr. Umboð Toyota á Íslandi l Ný og skemmtileg vél l Gott skottrými l Alkunn ending l Aksturseiginleikar l Fótabil í aftursæti l Verð ToyoTa auris 1,2 Turbo keMUr á óvart Rockford-Fosgate hljóðkerfi 650 vött – öflugt og hljómgott Aftursæti á brautum og góð þriðja sætaröð Gott aðgengi að skottrými og mikið pláss. Flottari auris og ný vél Auris hefur fengið andlitslyftingu með skemmtilegri 1,2 lítra vél með forþjöppu og bættir aksturseiginleikar hans gera hann að enn eigulegri bíl. Hefur fríkkað mjög við breytingarnar. Toyota Auris 1,2 Turbo. með þessari andlitslyftingu Auris, þar á meðal í innrétt- ingu hans og er hún laglegri fyrir vikið. Þó verður ekki sagt að hann setji ný viðmið í þess- um flokki. Enn má segja að efn- isnotkun sé fremur hrá og ódýr, en það á svo sem við margan keppinautinn, enda ekki bílar í lúxusflokki. Framsætin eru fín og sætis staða góð, en fótabil að aftan gæti verið meira. Fyrir vikið er þó farangursrými mjög gott og stærra en í flestum keppi- nautum hans, eða 360 lítrar. Í bílnum er nú tvívirk tölvustýrð miðstöð og nýr og afar velkom- inn 7 tommu upplýsingaskjár. Allir tengimöguleikar eru til staðar og bíllinn er í heild ágæt- lega búinn. Með honum er enn og aftur kominn afar áreiðan- legur bíll frá Toyota sem ekki mun dvelja mikið á bifreiðaverk- stæðum landsins. Með nýju 1,2 lítra Turbo-vélinni fæst hann frá 3.590.000 krónum. Ford Focus kostar frá 3.350.000 kr. með 125 hestafla bensínvél og Volks- wagen Golf kostar frá 3.340.000 kr., einnig með 125 hestafla bens- ínvél. Mazda3 kostar 3.090.000 með 100 hestafla bensínvél. Bílar Fréttablaðið 10 4. október 2016 ÞRIÐJUDAGUR 1 7 -1 0 -2 0 1 6 0 9 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A F 4 -F E C 8 1 A F 4 -F D 8 C 1 A F 4 -F C 5 0 1 A F 4 -F B 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.